Fjórði hver án samnings

Yfir 50.000 laun­þegar á íslenskum vinnu­mark­aði eru nú án samn­inga. Meðal þeirra eru félags­menn í öllum stétt­ar­fé­lögum kenn­ara, allar fag­stéttir heil­brigð­is­starfs­manna, 5.000 félags­menn í Eflingu og 7.000 í BHM. Samn­ingar um 97% starfs­manna Land­spít­al­ans eru lausir, ótíma­bundið verk­fall félags­manna Eflingar í Reykja­vík hófst í byrjun vik­unnar og verk­fall hátt í 16.000 félags­manna í BSRB hefur verið boðað. Formenn stétt­ar­fé­laga segj­ast lang­þreyttir á aðgerða­leysi við­semj­enda og segja félags­menn sína vera farna að ókyrr­ast.

Fjórði hver án samnings

Um 120 kjara­samn­ingar eru nú lausir og þessir samn­ingar ná yfir um 25% af þeim tæp­lega 196.000 sem eru á vinnu­mark­aði hér á landi. 43 mál eru nú á borði rík­is­sátta­semj­ara, sem er óvenju mik­ill fjöldi sam­kvæmt upp­lýs­ingum frá emb­ætt­inu og þar af hefur sjö verið vísað þangað það sem af er þessu ári. Yfir 60 sátta­fundir hafa verið haldnir í Karp­hús­inu á þeim átta vikum sem liðnar eru af þessu ári, auk nokk­urs fjölda vinnufunda. 

Gylfi Dalmann Aðal­steins­son, dós­ent við við­skipta­fræði­deild HÍ og sér­fræð­ingur í mál­efnum vinnu­mark­aðar, segir að það sé ekki nýtt að svo margir kjara­samn­ingar hafi verið lausir á sama tíma, en athygli veki hversu lengi ein­stakir samn­ingar hafi verið lausir. „En það sem vekur einna mesta athygli er hversu mik­ill órói er á almenna mark­aðnum. Líklega er …

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár