Eflingarfólk vinnur meira en aðrir fyrir lægri laun

Tæpur helm­ingur félags­manna Eflingar hafði miklar áhyggjur af fjár­hags­legri stöðu sinni sam­kvæmt kjara­könnun félags­ins. Þá hafði tæp­lega þriðj­ungur þurft að sækja sér fjár­hags­lega aðstoð.

Efling hefur um margra ára skeið látið vinna könnun á meðal eigin félags­manna þar sem kjör þeirra eru könnuð, sem og við­horf þeirra. Nýjasta slík könnun, sem opin­ber er, var unnin árið 2018 og birt í nóv­em­ber það ár. Fjöldi þátt­tak­enda var yfir 1.000 og þykir könn­unin gefa góða vís­bend­ingu um við­horf og stöðu félags­manna Eflingar.

Í könn­un­inni kom fram að Efl­ing­ar­fólk vann almennt meira en annað full­vinn­andi fólk árið 2018, miðað við tölur Hag­stof­unnar um vinnu­tíma allra á vinnu­mark­aði. Með­al­fjöldi vinnu­stunda á viku hjá öllum var sam­kvæmt Hag­stof­unni 44,6 stundir en Efl­ing­ar­fé­lagar unnu 46,5 stundir á viku að með­al­tali. Yfir helm­ingur svar­enda í könnun Eflingar fékk þá greiddar yfir­vinnu­greiðslur, 52,6 pró­sent, og 72 pró­sent svar­enda fengu ein­hverjar greiðslur ofan á grunn­laun sín.

Langflestir undir miðgildi launa

Árið 2018 voru heild­ar­laun full­vinn­andi launa­manna í land­inu að með­al­tali 721 þús­und krónur á mán­uði sam­kvæmt tölum …

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár