Sonur stjórnarmanns í Samherja gagn­rýnir RÚV fyrir fréttir af Namibíumálinu

Sonur stjórn­ar­manns í Samherja, Magnús Ósk­ars­son, gagn­rýnir RÚV harð­lega fyrir að fylgja ekki lögum um stofn­un­ina. Hann vill meina að RÚV sýni ekki fag­mennsku, meðal ann­ars í Sam­herj­a­mál­inu í Namibíu. Faðir hans er Óskar Magn­ús­son sem um ára­bil hefur verið stjórn­ar­maður í Samherja og trún­að­ar­maður eig­enda fyr­ir­tæk­is­ins.

Sonur stjórnarmanns í Samherja gagn­rýnir RÚV fyrir fréttir af Namibíumálinu
Nátengdur Samherja um ára­bil Óskar Magn­ús­son er stjórn­ar­maður í Samherja og hefur hann verið nátengdur félag­inu um ára­bil. Mynd: MBL/Ófeigur

Magnús Ósk­ars­son lög­maður gagn­rýnir frétta­stofu Rík­is­út­varps­ins fyrir ófag­leg vinnu­brögð í grein í Morg­un­blað­inu í dag. Gagnrýni Magnúsar í grein­inni, sem birt er í við­skipta­kálfi Moggans undir merk­ing­unni „lög­fræði“, er fjöl­þætt. 

Inntakið í grein­inni er að frétta­menn og starfs­menn RÚV brjóti lögin um Rík­is­út­varpið í störfum sínum, meðal ann­ars í umfjöll­unum sínum um mútu­mál Samherja í Namibíu. Frétta­skýr­inga­þátt­ur­inn Kveikur í Rík­is­út­varp­inu sagði frá mútu­mál­inu í nóv­em­ber síð­ast­lið­inn í sam­vinnu við Stundina, Al Jazeera og Wikileaks og hefur frétta­stofa RÚV síðan haldið áfram umfjöllun um málið líkt og fjöl­margir aðrir miðlar hér á landi. 

Yfir­skriftin er „lög­fræði“Grein Magnúsar, sonar Óskars Magn­ús­sonar Sam­herja­stjórn­ar­manns, er birt í við­skipta­blaði Moggans, sem Samherji var stærsti hlut­haf­inn í, undir yfir­skrift­inni „lög­fræði“.

„Því miður eru of mörg dæmi um það að síðar komi í ljós að slíkur frétta­flutn­ingur reyn­ist hafa verið reistur á …

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.
Tengdar greinar

Samherjaskjölin

„Tími á að íslensk stjórnvöld axli siðferðislega ábyrgð á Samherja“
FréttirSamherjaskjölin

„Tími á að íslensk stjórn­völd axli sið­ferð­is­lega ábyrgð á Samherja“

Leiðtogi namibísku stjón­ar­and­stöð­unnar segir landa sína undr­ast þögn íslenskra stjórn­valda um þá stað­reynd að stærsta spill­ing­ar­mál í sögu Namibíu hafi orðið til fyrir til­stilli íslensks fyr­ir­tækis. Spyr hvort hund­rað millj­óna styrkur Orku­sjóðs sé rík­is­styrkt spill­ing og sendir for­sæt­is­ráð­herra opið bréf og óskar lið­sinnis hennar við að fá Samherja til að greiða bætur og svara til saka.
Samherji sakaður um stórfelld skattalaga- og gjaldeyrisbrot í Namibíu og framsalskrafa væntanleg
RannsóknirSamherjaskjölin

Samherji sak­aður um stór­felld skatta­laga- og gjald­eyr­is­brot í Namibíu og fram­sal­skrafa vænt­an­leg

Rík­is­sak­sókn­ari Namibíu er enn ákveð­inn í því að óska eftir fram­sali þriggja stjórn­enda Sam­herj­a­fé­laga í Namibíu og segir brot á skatta- og gjald­eyr­is­lögum muni mögu­lega bæt­ast við sak­ar­efnin á hendur þeim. Stór­felld skatta­laga­brot Sam­herj­a­fé­laga sögð til rann­sóknar. Sam­herj­a­maður segir íslensk yfir­völd þegar hafa neitað að fram­selja sig.
Íslandsvinkona svo gott sem orðin forseti Namibíu
FréttirSamherjaskjölin

Íslands­vin­kona svo gott sem orðin for­seti Namibíu

Netumbo Nandi-Ndaitwah, utan­rík­is­ráð­herra Namibíu, sem kom hingað til lands í júní og ræddi Sam­herj­a­málið við íslenska ráð­herra og aðstoð­ar­mann eins þeirra, er nú svo gott sem búin að tryggja sér for­seta­emb­ættið í Namibíu. Hún var í morgun kjörin arf­taki for­manns flokks­ins, sitj­andi for­seta sem hyggst setj­ast í helgan stein. Flokk­ur­inn nýtur slíks yfir­burð­ar­fylgis að inn­an­flokks­kosn­ingin er sögð raun­veru­legt for­seta­kjör.
„Þetta eru glæpamenn og hegða sér eftir því“
ViðtalSamherjaskjölin

„Þetta eru glæpa­menn og hegða sér eftir því“

Jóhannes Stef­áns­son, upp­ljóstr­ari í Sam­herj­a­mál­inu, er sáttur við gang rann­sókn­ar­innar hér á landi og segir að fátt geti komið í veg fyrir að málið endi með dómi. Hann gagn­rýnir þó aðgerð­ar­leysi yfir­valda við því þegar Sam­herj­a­menn hafa áreitt, njósnað um eða reynt að hræða hann frá því að bera vitni. Fátt í við­brögðum Sam­herj­a­fólks hafi þó komið honum á óvart, enda fái þau að ganga mun lengra en öðrum lið­ist.

Mest lesið

„Margt sem ég hef séð situr í mér“
5
Viðtal

„Margt sem ég hef séð situr í mér“

Þegar Halla Bergþóra Björns­dóttir varð fyrst kvenna til þess að sinna lög­gæslu á Húsavík fékk hún að heyra að konur ættu ekk­ert erindi í lög­regl­una. Hún lét það ekki á sig fá, varð lög­reglu­stjóri og loks rík­is­lög­reglu­stjóri. Starfið hefur breytt henni, enda hefur hún komið að erf­iðum málum og fengið hót­anir. Á sama tíma hefur hún öðl­ast skarp­ari sýn á lífið, sterk­ari löngun til að gera gagn og fundið fyrir þakk­læti fyrir allt það góða.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár