Voru nálægt skiln­aði Hjónin, sem leit­uðu á náðir Kjartans Pálma­sonar ráð­gjafa, til að fá aðstoð í hjóna­bandserf­ið­leikum sínum treystu honum bæði fyrir sínum per­sónu­leg­ustu málum. Konan segir Kjartan hafa spilað með þau bæði. Þau séu heppin að honum hafi ekki tek­ist að eyði­leggja líf þeirra saman. Mynd: Heiða Helgadóttir

Niðurbrotnar í kjölfar framkomu þerapista

Kæru konu til land­læknis, vegna van­rækslu, mis­taka og ótil­hlýði­legrar fram­komu þerapist­ans Kjartans Pálma­sonar, var vísað frá á þeim grund­velli að hann beri ekki lög­verndað starfs­heiti. Hann falli af þeim sökum ekki undir verk­svið emb­ætt­is­ins. Margar konur kvört­uðu undan fram­komu manns­ins til fyrrum vinnu­veit­enda sem brugð­ust seint við. Formenn fag­fé­laga sál­fræð­inga og félags­ráð­gjafa lýsa yfir áhyggjum vegna starfa þeirra sem veita aðstoð vegna per­sónu­legra vanda­mála og jafn­vel sál­rænna kvilla, en hafa ekki form­lega menntun til að styðj­ast við.

Hjónin Sigríður og Gunnar voru á við­kvæmum stað í sínu sam­bandi þegar þau gerðu sér grein fyrir því að ef hjóna­band þeirra ætti að halda þyrftu þau að leita sér aðstoðar. Þau voru komin á fer­tugs­aldur og höfðu verið saman frá tví­tugu. Sigríður lýsir því þannig að það hafi komið fyrir þeirra sam­band eins og svo margra ann­arra, að lítið var eftir af því annað en vin­skap­ur­inn. „Á þessum tíma var sam­bandið okkar orðið að engu, við vorum bara vinir. Við rákum okkar fína heim­ili saman en höfðum algjör­lega fjar­lægst. Kunn­ingja­kona mín benti mér á Kjartan Pálmason þerapista og sagði mér að hann væri að gera góða hluti í vinnu með pör.“

Þau pönt­uðu sér tíma í hjóna­bands­ráð­gjöf hjá Kjartani og þeim leist báðum strax vel á hann. Það gladdi Sigríði að Kjartan næði vel til manns­ins hennar, enda hafði Gunnar verið skept­ískur á ráð­gjöf­ina, enda ekki vanur að …

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár