Óttast mengun frá efnavopnum heimsstyrjaldar í Eystrasalti

Unnið er nú að því af kappi að kanna hvort að spreng­ing­arnar í Nord Stream-gasleiðsl­unni í Eystra­salti hafi rótað upp mengun for­tíðar: Leifum úr efna­vopnum sem dembt var í hafið eftir síð­ari heims­styrj­öld.

Metangas streymdi í stríðum straumum út í andrúmsloftið er sprengingarnar urðu í Nord Stream.
Metangas streymdi í stríðum straumum út í and­rúms­loftið er spreng­ing­arnar urðu í Nord Stream. Mynd: EPA

Er spreng­ingar urðu í Nord Stream-gasleiðsl­unni skammt undan dönsku eyj­unni Borg­und­ar­hólmi á dög­unum fóru vís­inda­menn þegar í stað að velta fyrir sér umhverf­is­á­hrifum atviks­ins. Atviks sem margir vilja meina að hafi verið skemmd­ar­verk. Gríð­ar­legt magn af metangasi fór út í and­rúms­loftið í kjöl­far þess að um hálfur kíló­metri af gasleiðsl­unum miklu hrein­lega splundrað­ist. Þetta er eitt og sér að sjálf­sögðu áfall fyrir heims­byggð­ina sem vinnur nú að því sam­eig­in­lega mark­miði að draga úr losun gróð­ur­húsa­loft­teg­unda.

En sumir vís­inda­menn höfðu aðrar og alvar­legri áhyggjur. Að spreng­ing­arnar, sem urðu 26. sept­em­ber gætu raskað og rótað í haugum af leifum efna­vopna sem var hrúgað á einmitt þessar slóðir í Eystra­salt­inu árið 1947. Það var gert er afvopnun Þýska­lands, eftir ósigur Hitlers og nas­ism­ans, var fram­kvæmd.

[adspot]

Í frétt á vef vís­inda­tíma­rits­ins Nature segir að um 32 þús­und tonnum af efna­vopnum, sem inni­héldu um 11 þús­und tonn af virkum efnum, hafi verið komið fyrir á hafs­botni ekki langt frá Borg­und­ar­hólmi. Nature hefur eftir Hans Sand­er­son, umhverf­is­fræð­ingi við Háskól­ann í Árósum, að með tím­anum hafi járn­hylkin sem eit­ur­efnin voru geymd í að öllum lík­indum tærst og efnin lekið smám saman út í botn­lögin.

[links]Sand­er­son hefur áhyggjur af því að hinar kröft­ugu spreng­ingar sem urðu í gasleiðsl­unni gætu hafa orðið til þess að efnin losn­uðu úr botn­lög­unum og út í sjó­inn. Hafi það gerst gætu þau skaðað líf­ríkið.

Hann segir að meðal efna sem legið hafi á botni Eystra­salts­ins sé hið geisla­virka sesín (caesium-137), fjöl­b­róm­aður dífený­leter, sem er eitrað loga­varn­ar­efni, auk þung­málma á borð við kvika­silfur, blý og kadmíum.

„Eystra­saltið er í raun eitt meng­að­asta haf jarðar,“ segir Sand­er­son. „Botn­lögin þar eru full af drasli.“

Eins nálægt haugunum og hugsast gat

Áður en Nord Stream-gasleiðsl­urnar voru lagðar um Eystra­saltið milli Rúss­lands og Þýska­lands var Sand­er­son meðal þeirra sem tók þátt í að gera umhverf­is­mat fram­kvæmd­ar­innar. Hann segir spreng­ing­arnar í sept­em­ber hafa orðið „eins nálægt efna­vopnarusla­haugnum og mögu­legt var“.

Er Sand­er­son sá myndir af vett­vangi, sá metangas­bólurnar risa­vöxnu yfir göt­unum sem höfðu mynd­ast í kjöl­far spreng­ing­anna, seg­ist hann hafa gert sér grein fyrir að rót hefði kom­ist á botn­lögin. Að sand­ur­inn sem eit­ur­efnin hafi lekið út í um ára­tuga­skeið hefði þyrl­ast upp.

Teymi hans er nú að safna gögnum úr vöktun á svæð­inu og búa til líkan um hvað gæti mögu­lega hafa gerst. Einnig er verið að safna sýnum úr sjónum. Í kjöl­farið munu vís­inda­menn­irnir svo tvinna þau gögn saman við upp­lýs­ingar um líf­ríkið á þessum slóðum. Þannig á að reyna að meta hvaða áhrif losun eit­ur­efn­anna úr botn­lög­unum gæti haft á ólíkar teg­undir.

Þegar rót kemst á botnset sest það ekki strax. Ekki nærri því strax, segir Sand­er­son við Nature. Í Eystra­salt­inu eru haf­straum­arnir ekki sér­stak­lega sterkir. Þetta er kyrrt haf í þeim skiln­ingi. Þetta hefur m.a. þau áhrif að sjór­inn er mjög lag­skiptur. Hlýrri sjór og kaldur bland­ast ekki stöðugt líkt og ef straum­arnir væru sterkir.

[adspot]

Fleiri við­mæl­endur Nature sem hafa rann­sakað ýmsa þætti Eystra­salts­ins, m.a. tog­veiðar um það síð­ustu ára­tugi, taka undir áhyggjur Sand­er­sons. Einn þeirra bendir á að spreng­ing­arnar hafi orðið á hrygn­ing­ar­svæði þorsks en tíma­setn­ingin gæti hjálpað til því þorsk­ur­inn hrygnir að vori. Engu að síður mun spreng­ingin ein og sér, alveg óháð því hvort að eitrið úr efna­vopn­unum hafi losnað úr álögum botns­ets­ins. Sem dæmi þá blómg­ast ákveðnir þör­ungar að hausti, líf­verur sem eru mik­il­vægar fyrir heil­brigði vist­kerf­is­ins. Hafi þær orðið fyrir áhrifum gæti það haft hlið­ar­verkun upp allan fæðu­p­íramíd­ann.

Vís­inda­menn frá Þýska­landi, Danmörku og Svíþjóð munu taka höndum saman við þessa rann­sókn. Öll ríkin stunda rann­sóknir að ákveðnu marki í Eystra­salti.

Sand­er­son von­ast til þess að nið­ur­stöður ber­ist sem fyrst. Hann bíður þeirra í ofvæni. „Ég er áhyggju­fullur vegna þeirrar stað­reyndar að þetta er mjög mengað botnset,“ segir hann við Nature. Hafi efnin úr vopn­unum losnað úr læð­ingi við spreng­ing­arnar gæti það valdið skaða. Ekki er hægt að slá því föstu fyrr en nið­ur­stöð­urnar liggja fyrir.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

eystrasalt

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár