Er gaslekinn í Eystrasalti ógn við loftslagið?

Losun gróð­ur­húsa­loft­teg­unda vegna gaslek­ans í Eystra­salti er gríð­ar­leg en hún er þó aðeins örlít­ill dropi í hafið af umfangi los­unar mann­anna á ári hverju. Fyrir lofts­lagið væri best að bera eld að gas­bólunum miklu.

Grænleitur litur á einni af gasbólunum miklu sem koma upp á yfirborðið í Eystrasalti.
Græn­leitur litur á einni af gas­bólunum miklu sem koma upp á yfir­borðið í Eystra­salti. Mynd: EPA

Það veit eng­inn með vissu hversu mikið gas var inni í leiðsl­unum Nord Stream 1 og 2 sem liggja um Eystra­saltið milli Rúss­lands og Þýska­lands og eru nú orðnar götóttar. Ekkert flæði gass var um þær er spreng­ingar urðu og fjögur göt mynd­uð­ust fyrr í vik­unni. Búið var að skrúfa fyrir nr. 1 og nr. 2 hafði aldrei verið tekin í notkun. En í þeim var þó gas, metan­gas, sem nú streymir upp af hafs­botni í gegnum götin og myndar umfangs­miklar og ólg­andi gas­bólur á yfir­borði.

Þetta er hættu­svæði enda metan­gas mjög eld­fimt. Þess vegna hefur umferð sjó­fara verið bönnuð í 5 sjó­mílna rad­íus umhverfis gas­bólurnar miklu. Enginn gas­gleypir er umhverfis leiðsl­urnar heldur mun, á end­anum, allt gasið sem í þeim var streyma óhindrað út í sjó­inn og and­rúms­loftið.

[adspot]

En þótt engin stofnun í Evrópu viti upp á hár hversu mikið gas var í leiðsl­unum tveimur er talið lík­legt að það hafi numið á bil­inu 150-500 millj­ónum rúmmetra. Það aftur þýðir, ef farið er milli­veg­inn sem er var­lega áætlað, að um 200 þús­und tonn af met­ani muni sam­an­lagt fara út í and­rúms­loftið. Það jafn­ast á við losun 15 millj­óna tonna af koltví­sýr­ingi sem er um 32 pró­sent af árlegri losun Dan­merkur, að mati umhverf­is­stofn­un­ar­innar þar í landi. „Í sam­hengi við losun okkar Dana er þetta mikið en á heims­vísu er þetta lít­ill atburður,“ segir Gorm Bruun Andersen, sér­fræð­ingur við Árósa­há­skóla.

Mat þýsku umhverf­is­stofn­un­ar­innar er var­kár­ari. Þar á bæ er reiknað með að um 7,5 millj­ónir tonna af koltví­sýr­ingi losni sem nemur um 1 pró­senti af árlegri losun Þýska­lands.

Ef los­unin mun að end­ingu nema 250 þús­und tonnum af metan, líkt og ekki er fjar­stæðu­kennt en þó óger­legt að slá föstu, hvorki nú eða síðar, mun hún jafn­ast á akstur 1,3 millj­óna bruna­bíla í heilt ár, að því er fram kemur í frétta­skýr­ingu The Guardian. (Hér er orðið bruna­bíll notað yfir bíl sem knú­inn er jarð­efna­elds­neyti).

Þetta eru stórar tölur, vissu­lega. Í stóra sam­heng­inu hvað varðar losun gróð­ur­húsa­loft­teg­unda frá mann­anna verkum er umfangið hins vegar ekk­ert svo svaka­legt. Því það er heild­ar­los­unin sem er svaka­leg. En þar sem við sjáum gas­bólurnar risa­stóru í Eystra­salti verður okkur um og ó. Bróð­ur­partur allrar los­unar er okkur ein­fald­lega ekki sýni­legur.

[links]Metan er öflug gróð­ur­húsa­loft­teg­und, þ.e. hún hitar and­rúms­loftið meira en koltví­sýr­ingur í sama magni, segir í frétta­skýr­ingu danska rík­is­tú­varps­ins. En hins vegar brotnar hún hraðar niður.

Lekinn er mjög alvar­legur, segir Jeffrey Kargel, vís­inda­maður við Jarð­vís­inda­stofnun Arizona. Og hafi verið unnið skemmd­ar­verk á leiðsl­unum með þessum afleið­ingum er um umhverf­is­glæp að ræða. „Magn gass sem lekur úr lögn­unum er aug­ljós­lega mikið,“ segir hann við Politico, „en þetta er ekki jafn stórt umhverf­isslys og kannski ein­hverjir halda.“

Ígildi 32 millj­arða tonna af koltví­sýr­ingi var los­aður út í and­rúms­loftið á heims­vísu í fyrra og því er gaslek­inn í Eystra­salt­inu, að sögn Kargel, ekki umfangs­mik­ill í því sam­hengi. „Þetta er lítil gas­bóla í haf­inu“ miðað við met­an­losun frá marg­vís­legri vinnslu á hverju ári, s.s. olíu- og kola­vinnslu, hefur Politico eftir öðrum sér­fræð­ingi, Dave Reay, sem fer fyrir lofts­lags­stofnun Edin­borg­ar­há­skóla. Met­an­magnið er á pari við það sem losað er frá olíu- og gasvinnslu Rússa á einni viku, bendir enn einn sér­fræð­ing­ur­inn svo á.

Þótt gasmagnið sé lítið í hinu stóra sam­hengi eins og á undan er rakið og ekki lík­legt til að hafa mikil áhrif á lofts­lag jarðar minnir þessi atburður okkur á hversu hættu­legt er að nota jarð­gas, bendir Bruun Anderson við Árós­ar­há­skóla á. Þegar gas er brennt þá hefur það minni áhrif á lofts­lags en t.d. kol. Þess vegna hefur jarð­gas stundum verið flokkað með „hreinum orku­gjöfum“. En, segir Bruun Anderson, gas getur verið alveg jafn meng­andi og kol. „Þegar gas sleppur þá hefur það áhrif á lofts­lag. Þannig að þegar svona lekar verða þá sýnir það okkur hætt­una sem við tökum með því að nota það.“

Best væri að kveikja í því

Metan er sam­sett úr kolefni og vetni. Þegar það er brennt verður til koltví­sýr­ingur sem hefur um 30-80 sinnum minni áhrif til hlýn­unar lofts­lags á hvert tonn en metan. Og þess vegna má stundum sjá eld­stróka við gasvinnslur. Ef gas sleppur er það brennt til að draga úr meng­andi áhrifum þess, sem þó eru, eðli máls­ins sam­kvæmt, mikil.

Því hafa vaknað spurn­ingar um hvort ekki ætti að bera eld að gas­inu sem nú gýs upp úr Eystra­salti?

Lofts­lags­lega séð er svarið já. En, segir Piers Forster, sér­fræð­ingur í lofts­lags­málum við Háskól­ann í Leeds, slík aðgerð myndi ógna öryggi og jafn­vel hafa ann­ars konar umhverf­is­á­hrif. Í ljósi þess hversu skammt frá landi, nánar til­tekið dönsku eyj­unni Borg­und­ar­hólmi, gaslek­inn er sé íkveikja nær örugg­lega ekki raun­veru­legur val­mögu­leiki.

Danir og Svíar þurfa að bíða rólegir þar til Nord Stream 1 og 2 hafa tæmst af gasi áður en hægt verður að nálg­ast svæðið þar sem lek­inn er að eiga sér stað. Stór­hættu­legt væri að kafa niður að göt­unum fyrr en þá. Hvenær leiðsl­urnar verða orðnar tómar, að minnsta kosti að mestu, er ómögu­legt að segja með vissu, en von­ast er til að það ger­ist jafn­vel um helg­ina. Þá verður gerð rann­sókn á því hvað eig­in­lega átti sér stað og reynt að skera úr um hvort spreng­ing varð í leiðsl­unum, vegna þrýst­ings eða slíks, eða hvort um skemmd­ar­verk hafi verið að ræða.

Fer í bókhaldið hjá Dönum og Svíum

Og það er eitt til sem er mjög áhuga­vert. Af því að gas lekur út á að minnsta kosti einum stað leiðsl­unnar þar sem hún liggur um danska efna­hags­lög­sögu fær­ist los­unin sem þar á sér stað í los­un­ar­bók­hald Dana, að sögn umhverf­is­stofn­un­ar­innar þar í landi. Það sama á því við um gatið sem er á lögn­inni innan sænskrar lög­sögu. Hin götin tvö eru að því er virð­ist á alþjóð­legu haf­svæði.

Örverur í haf­inu geta bundið gróð­ur­húsa­loft­teg­undir svo ekki er víst að allt gasið losni beint út í and­rúms­loftið þótt talið sé að meiri­hluti þess geri það.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

eystrasalt

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár