Fjöldi herskipa við gaslekana – Svæðið skilgreint sem „glæpavettvangur“

Þótt gas flæði ekki lengur út úr gasleiðslum Nord Stream 1 og 2 er enn gas í þeim. Á vett­vang streymir nú fjöldi her­skipa frá nokkrum ríkjum. Rússar gætu talið sig eiga rétt á að koma að rann­sókn­inni þar sem atvikið átti sér stað á alþjóð­legu haf­svæði.

Mynd frá sænsku strandgæslunni sýnir hversu stór hvert og eitt gat á leiðslunni er. Uppstreymið raskaði sjó á um kílómetra svæði.
Mynd frá sænsku strand­gæsl­unni sýnir hversu stór hvert og eitt gat á leiðsl­unni er. Upp­streymið raskaði sjó á um kíló­metra svæði. Mynd: Sænska strandgæslan

Talið er að gas sé hætt að leka út um göt á gasleiðsl­unum Nord Stream 1 og 2 í Eystra­salti. Engin ummerki sjást lengur á yfir­borði sjávar um gas­streymi. Gríð­ar­legt magn metangass hefur sloppið beint út í and­rúms­loftið síð­ustu daga eða frá því að spreng­ingar urðu á hafs­botni í byrjun síð­ustu viku. Fjögur göt hið minnsta eru á leiðsl­unum sem liggja frá Rúss­landi og til Þýska­lands. Spreng­ing­arnar urðu í nágrenni dönsku eyj­unnar Borg­und­ar­hólms og eitt gatanna er innan efna­hags­lög­sögu Dana og annað innan lög­sögu Svía. Tvö eru talin vera á alþjóð­legu haf­svæði.

[adspot]

Nú þegar gas er hætt að leka út úr leiðsl­unum hefst nýr kafli í rann­sókn máls­ins. Dönsk og sænsk stjórn­völd hafa tekið höndum saman við rann­sókn­ina og hafa skip á vegum herja land­anna þegar verið send á vett­vang.

Danska rík­is­út­varpið greindi frá því í morgun að her-, strand­gæslu- og lög­reglu­yf­ir­völd í Danmörku haldi spil­unum nú þétt að sér og vilji ekk­ert gefa upp um hver næstu skref í rann­sókn­inni séu. Ljóst er að senda þarf kaf­ara eða kaf­báta niður að göt­unum á leiðsl­unum því talið er að lögun gatanna og önnur ummerki á svæð­inu gætu gefið vís­bend­ingar um hvað olli spreng­ing­unum. Danskir stjórn­mála­menn hafa þegar sagt um vilja­verk hafi verið að ræða en ekki óhapp af ein­herju tagi. Spjótin bein­ast að Rúss­landi og hafa m.a. úkra­ínsk og pólsk stjórn­völd óhikað sagt að Rússar beri ábyrgð á verkn­að­inum.

[links]Danska orku­stofn­unin segir að þrátt fyrir að engin ummerki um gasleka sjá­ist á yfir­borði sjávar og að gas sé hætt að leka út um götin þýði það ekki að leiðsl­urnar séu orðnar tómar heldur að þrýst­ingur inni í þeim og umhverfis þær sé orð­inn jafn.

Í síð­ustu viku voru sér­fræð­ingar opin­berra stofn­anna ákafir í að tjá sig um gaslek­ann mikla. Nú er hins vegar komið annað hljóð í strokk­inn – það er að segja ekk­ert hljóð – því þessir sömu sér­fræð­ingar vilja ekk­ert segja núna. „Við munum ekki tjá okkur um atburð­ina í Eystra­salti vegna örygg­is­sjón­ar­miða,“ hefur DR eftir sam­skipta­stjóra dönsku varn­ar­mála­stofn­un­ar­innar. Sömu svör hafa frétta­menn sænskra fjöl­miðla fengið í morgun. Enginn vill tjá sig um stöð­una í augna­blik­inu þar sem rann­sókn máls­ins er sögð á við­kvæmu stigi.

Frá því að lek­inn upp­götv­að­ist hefur haf­svæðið verið lokað allri umferð skipa og flug­fara í ákveð­inni hæð.

Meðal skipa sem nú eru á svæð­inu þar sem gaslek­inn átti sér stað er frei­gátan Absalon. Hún er í eigu danska hers­ins og er útbúin bæði vopnum og rat­sjám til rann­sókna á hafs­botni. Einnig eru þar sænsk, norsk, þýsk og og frönsk her­skip. Þá hafa her­þyrlur sveimað yfir svæð­inu í dag. „Ég tjái mig ekki um hvernig rann­sókn­inni verður háttað en ég get greint frá því að þetta er glæpa­vett­vangur að mati sænskra yfir­valda og að örygg­is­lög­reglan og emb­ætti sak­sókn­ara hafa yfir­um­sjón með rann­sókn­inni,“ segir Jimmie Adamsson, sam­skipta­stjóri sænska sjó­hers­ins.

Bent hefur verið á að þar sem að minnsta kosti tvö göt gasleiðsl­unnar eru á alþjóð­legu haf­svæði sé óvissa um hver eigi að bera ábyrgð og fram­kvæma rann­sókn á því sem gerð­ist. Fleiri ríki gætu talið sig eiga rétt að rann­saka vett­vang­inn, m.a. Rússar.

Hins vegar þykir víst að spreng­ing­arnar urðu innan efna­hags­lög­sögu Dan­merkur og Sví­þjóðar og því borð­leggj­andi að yfir­völd í þeim löndum leiði rann­sókn­ina.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

eystrasalt

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár