Er lausnin stríð? Trump boð­aði frið og hót­aði á víxl á blaða­manna­fundi eftir loft­árásir Írana á tvær banda­rískar her­stöðvar í Írak. Dæmi eru um að for­setar stór­auki vin­sældir sínar til skamms tíma með stríði. Mynd: Shutterstock

Korter í stríð

Allir virð­ast hafa grætt á átök­unum milli Írans og Banda­ríkj­anna. Stríð mun til skamms tíma þjappa almenn­ingi saman að baki leið­tog­anum, bæði í Íran og Banda­ríkj­unum. Gunnar Hrafn Jónsson kort­leggur leið­ina að stríðs­á­tökum sem geta farið úr bönd­unum.

Stríð virt­ist nán­ast óum­flýj­an­legt eftir að Banda­ríkja­stjórn felldi æðsta hers­höfð­ingja Írans í óvæntri loft­árás en von er um stund­ar­frið eftir tak­mark­aða hefnd­ar­að­gerð Írana sem kost­aði að sögn engin manns­líf. Ástandið er hins vegar nú orðið svo eld­fimt að það virð­ist aðeins tíma­spurs­mál hvenær blóðsút­hell­ingar hefj­ist fyrir alvöru. Öflugir hags­munir knýja á um stríð og her­skáir banda­menn Trumps virð­ast ekki ætla að linna látum fyrr en allt fer í bál og brand.

Það má segja að stríð á milli Banda­ríkj­anna og Írans hafi verið í kort­unum allt frá árinu 1979 þegar sjálf­skip­uðum kon­ungi lands­ins var steypt af stóli í bylt­ingu sem leiddi strang­trú­aða klerka til valda. Konungur sá hafði lengi verið leppur ráða­manna í Washington og stjórnað land­inu með harðri hendi í óþökk alls þorra almenn­ings. Hann átti allt sitt ríki­dæmi að þakka útsend­urum CIA sem hjálp­uðu honum að ræna völdum af lýð­ræð­is­lega kjörnum for­sæt­is­ráð­herra árið 1953.

Fyrir vikið varð sendi­ráð …

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár