Ég er bara ruglaður af því ég trúi á ævintýrið

Það er hverju sam­fé­lagi nauð­syn­legt að sumir þegnar þess séu gúgúgaga, sem er þá ekk­ert svo gúgúgaga. Þetta segir hand­bolta­goð­sögnin, heim­spek­ing­ur­inn og sagna­mað­ur­inn Ólafur Stef­áns­son. Hann streit­ist á móti því að fest­ast í hlaupa­hjóli hamst­urs­ins, nýtur óvissunnar sem lífið að lok­inni atvinnu­mennsku hefur verið og leitar ævin­týrin og þver­sagnir uppi. Hann óskar öðrum þess að taka líf­inu ekki of alvar­lega og vera þess í stað vak­andi fyrir töfrum og leynd­ar­dómum lífs­ins.

Ég er bara ruglaður af því ég trúi á ævintýrið
Í augna­blik­inu hvergi Þessa dag­ana ein­kenn­ist líf Ólafs af mik­illi óvissu, enda hefur hann verið að sigla á mið sem eru honum sum kunnug en önnur ókunn. Hann kann vel að meta það ástand. Mynd: Heiða Helgadóttir

Flest þekkjum við íþrótta­mann­inn Ólaf Stef­áns­son, fyrr­ver­andi fyr­ir­liða íslenska lands­liðs­ins í hand­bolta. Hann naut mik­illar virð­ingar sem fyr­ir­liði enda þökk­uðu margir honum sterka liðs­heild og gott gengi liðs­ins. Ólafur vakti sér­staka athygli fyrir sýn sína á lífið og leik­inn og þótti sem fyr­ir­liði hafa ein­stakt lag á að hvetja liðs­fé­laga sína áfram og búa yfir þeim galdri að gera félaga sína að betri leik­mönnum. Síðan hann hætti að spila hand­bolta hefur honum skotið upp koll­inum í fjöl­miðlum af og til í tengslum við fjöl­breytt verk­efni, stundum við aðstæður sem vekja umtal og undrun. Myndband af honum, þar sem hann sagði hópi eldri borg­ara sögu á væg­ast sagt lif­andi hátt, var dreift víða og vakti mikla kátínu, en í því sást hann með skrýt­inn hatt á höfði, hlaup­andi á milli fólks­ins, spilandi á meló­díku og gítar. Þá spurðu sumir sig: „Er Ólafur Stef­áns­son orð­inn eitt­hvað rugl­aður?“ Það liggur beint við að spyrja hann sjálfan að því, svo það verður fyrsta spurn­ingin sem hann fær, þar sem við sitjum and­spænis hvort öðru á kaffi­hús­inu í Perlunni á björtum vetr­ar­morgni. „Það er mjög eðli­leg spurn­ing, því já, ég er einmitt orð­inn rugl­aður,“ segir hann, hlær og kippir sér ekk­ert upp við þessa óvið­eig­andi spurn­ingu. „Ég er bara rugl­aður af því að ég trúi á ævin­týrið. Ég er rugl­aður því ég bendi á að veru­leikur okkar sé ein­tómir töfrar. Und­an­farið hef ég verið að gera flest öfugt við það sem maður „á“ að vera að gera. Ég held að það sé hollt fyrir öll sam­fé­lög að hafa nokkra svona gúgúgaga. Leiðin okkar úr viðjum van­ans, úr kast­ala menn­ing­ar­innar yfir í óvissu­skóg­inn, liggur alltaf í gegnum ólógík og til að upp­lifa hana þarf að hvíla hinn eilíft útreikn­andi huga. En þarna liggur líka skemmti­leg­asta mót­sögn lífs­ins. Um leið og ég skil­greini mig sem gúgúgaga í ein­hverjum mark­vissum til­gangi þá er ég það ekki lengur. Þá er ég bara gæi sem hefur einmitt það hlut­verk inni í tann­hjól­inu. Sem sagt, ég er með­vitað að rugla. Ég er að reyna að verða rugl­aðri og sjá hvað ég kemst langt með það. Mér tekst ekk­ert alltof vel upp, því á end­anum þarf ég til dæmis, rétt eins og aðrir, að vinna fyrir mér. Ég vildi stundum að ég gæti verið rugl­aðri.“ 

Ég er að reyna að verða rugl­aðri og sjá hvað ég kemst langt með það“ 

Hann segir það alla tíð hafa verið ríkt í honum að greina og gagn­rýna umhverfi sitt. Í reynd sé breyt­ingin sem hafi orðið á honum ekki eins mikil og hún lítur út fyrir utan frá. Eini mun­ur­inn sé sá að í dag sé allt undir þegar hann greinir veru­leik­ann en áður fyrr hafi það ein­skorð­ast við íþrótt­ina. „Ég hef aldrei verið rólegur í neinu umhverfi. En á síð­ustu fimm árum eða svo hefur skoð­ar­inn færst út úr hand­bolta­búbblunni og yfir á allt,“ segir hann.

Vatnið sléttað með kökuspaða

Við mæltum okkur mót í Perlunni að morgni í þeirri trú að það væri rólegur tími, án þess að gera okkur grein fyrir því að hún fyllist reglu­lega af grunn­skóla­nem­endum sem koma til að skoða Nátt­úru­minja­safnið eða aðrar sýn­ingar þar. Það sem átti að verða spjall í næði fer því að miklu leyti fram undir hlaupum og hlátra­sköllum sem kom ekki að sök. Ólafur lætur þau ekki slá sig út af lag­inu, enda þaul­vanur því að vera umkringdur börnum, ekki bara sem hand­bolta­þjálf­ari – hann er til að mynda nýsnú­inn aftur í þjálfun og tek­inn við fjórða flokki karla hjá Val – heldur líka sem sagna­maður, sem er hans stærsta ástríða í dag. Hann hefur óbilandi trú á kraft­inum sem býr innra með öllum, sér­stak­lega börnum, og vill að þau við­haldi honum lengur í lífi sínu. „Ég er að reyna að koma sagna­hefð inn í skól­ana. Með því er ég að reyna að hægja á krökk­unum og fá þau til að skoða innra með sér hvort þetta kerfi sem við búum við sé það sem þau vilja. Börn kunna í raun ekki að mót­mæla á sniðugan hátt og gera það ómeð­vitað sem þolendur, kvart­arar og fórn­ar­lömb. Í núver­andi kerfi fer barnið úr því að vera tíma­laus rann­sak­andi, eins og það er á leik­skóla, yfir í þennan þol­anda. Smám saman hverfur barnið og úr verður ein­hver ósátt týpa sem er ekki alveg að fíla það sem er í gangi en kann ekki leiðir til að mót­mæla því. Svo skrifum við þetta allt á ein­hverja horm­óna.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár