Formaður ÖBÍ: Fjármálaáætlun ríkisstjórnarinnar mun halda við og búa til félagsleg vandamál

Þuríður Harpa Sig­urð­ar­dóttir, for­maður ÖBÍ, gagn­rýnir fjár­mála­á­ætlun rík­is­stjórn­ar­innar harð­lega.

1. maí-ganga
1. maí-ganga Mynd: Birgir Þór Harðarson

„Fjár­mála­á­ætlun rík­is­stjórn­ar­innar mun halda við og búa til félags­leg vanda­mál, frekar en að færa fram lausnir. Það er ekki verið að græða sár, sem við þurfum svo mjög á að halda, heldur er þetta eins og að setja plástur yfir gröft,“ segir Þuríður Harpa Sig­urð­ar­dóttir, for­maður ÖBÍ, um fyrstu við­brögð banda­lags­ins við frum­varpi til fjár­mála­á­ætl­unar sem odd­vitar rík­is­stjórn­ar­innar kynntu í gær. Frá þessu er greint í frétt ÖBÍ.

Hún segir jafn­framt að í frum­varp­inu felist ekki aðgerðir til að tryggja öryrkjum mann­sæm­andi afkomu. „Það er gert ráð fyrir auknum fram­lögum vegna fjölg­unar öryrkja, en ekki verið að ganga fram til að bæta afkomu þeirra sem núna þurfa að reiða sig á almanna­trygg­ing­arnar.“

Að auki hafi lækkun á tekju­skatts­pró­sentu lítið að segja fyrir fólk með lægstar tekjur. Það hefði miklu jákvæð­ari áhrif á þau sem verst eru sett í sam­fé­lag­inu að hækka per­sónu­af­slátt­inn. „Það væri aðgerð sem nýtt­ist best þeim sem minnst hafa og líka auka jöfnuð, sem er hug­tak sem for­sæt­is­rá­herra hefur notað oftar en ég hef tölu á,“ segir Þuríður Harpa.

Í frétt­inni kemur fram að Öryrkja­banda­lag Íslands hafi í mörg ár barist hart fyrir því að órétt­látar krónu-á-móti-krónu skerð­ingar verði afnumdar. Gert sé ráð fyrir að tekið verði á mál­inu í fjár­mála­á­ætlun en segir Þuríður Harpa að þetta þurfi að ger­ast núna. Það sé verið að halda fólki niðri, föstu í fátækt­ar­gildru, með kerf­is­bundnu ofbeldi. Því verði að ljúka strax. Það sjái það allir að það gengur ekki að einum þjóð­fé­lags­hópi sé bein­línis refsað fyrir sjálfs­bjarg­ar­við­leitni. Þetta séu aðgerðir sem ekki þola bið.

Hún segir enn fremur að við­bót í heil­brigð­is­kerfið, átak í geð­heil­brigð­is­málum og við­leitni til að draga úr greiðslu­þátt­töku sjúk­linga séu jákvæðir þættir. En hún spyr á móti, þótt sjúk­linga­gjöld verði lækkuð, hvað það þýði fyrir fólk sem ekki hefur efni á þeim hvort eð er.

„Boltinn er hjá þing­mönnum. Ég skora á þá að standa við yfir­lýs­ingar sínar um aðgerðir gegn fátækt og fyrir rétt­læti og því að fólk geti lifað hér með mann­sæm­andi hætti,“ segir hún.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

velferðarmál

Mest lesið undanfarið ár