Hinn pólitíski fasismi sem hræðir Íslendinga til að þegja

Bóka­dómur um Allt kann sá er bíða kann – Æsku og athafna­sögu Sveins R. Eyj­ólfs­sonar.

Sveinn R. Eyj­ólfs­son hefur haft meiri áhrif á íslenskt fjöl­miðlaum­hverfi en flestir, ef ekki allir, Íslend­ingar. Hann er mað­ur­inn sem stýrði Vísi, stofn­aði Dag­blaðið og sam­ein­aði þau tvö svo saman í DV. Hann er mað­ur­inn á bak­við stofnun Vísir.is, næst stærsta frétta­vefs lands­ins. Og hann stofn­aði Frétta­blaðið, lang­mest lesna dag­blað lands­ins síð­asta einn og hálfan ára­tug­inn. Þetta gerði Sveinn án þess að mikið bæri á honum per­sónu­lega.

Í nýút­kominni æsku- og athafna­sögu sinni, „Allt kann sá er bíða kann“ segir Sveinn enda að hann sé nán­ast manna­fæla sem eigi í erf­ið­leikum með að mynda sam­band við fólk og líði ekki vel í marg­menni.

Dómurinn birt­ist fyrst í nýj­ustu útgáfu Mannlífs.

Flugdólgurinn sem vildi stela beinagrind

Upp­bygg­ing sög­unnar er sér­stök. Fyrsti hluti hennar fjallar um upp­vaxt­arár Sveins, fjöl­skyldu hans, sam­ferð­ar­fólk og atvik sem mót­uðu hann. Síðari hlut­inn er síðan athafna­saga hans þar sem megin áherslan er á þátt­töku hans í við­skipta­líf­inu og tengsl við fjöl­miðlun. Sagan er því per­sónu­leg framan af en verður síðan eins og önnur bók. Lýsing á ferða­lagi um heima við­skipta og fjöl­miðl­unnar. Þetta er ekki endi­lega slæmt.

Ýmislegt er eft­ir­minni­legt úr fyrri hluta sög­unnar, af æsku­árum Sveins. Þar ber til að mynda ástæð­una fyrir því að hann studdi ætið Gunnar Thorodd­sen í öllu hans stjórn­mála­starfi, hvert sem það leiddi hann. Hún er ein­föld, Gunnar, þá borg­ar­stjóri, útveg­aði móður hans félags­lega íbúð. Þar eru líka skemmti­legar mann­lýs­ingar á köflum. Til dæmis af Ómari Kon­ráðs­syni, sem var sam­nem­andi Sveins í lækn­is­fræði sem þeir flosn­uðu síðar báðir upp úr. Í bók­inni stendur: „Ómar varð frægur tann­læknir. Og seinna frægur fyrir að vera á nátt­slopp í flug­vél og haga sér dólgs­lega.“ Þetta er ein­falt, fyndið, hníf­beitt og tengir les­and­ann strax ljós­lif­andi við fræg­asta flug­dólg Íslands­sög­unnar.

Sagan af Vísi og Dagblaðinu

Bita­stæð­ustu frá­sagn­irnar eru þó frá tíma Sveins sem blaða­út­gef­anda. Sá tími byrj­aði þegar hann réð sig sem fram­kvæmda­stjóra Dag­blaðs­ins Vísis árið 1958 og lauk þegar hann missti frá sér Frétta­blaðið sum­arið 2002. Í milli­tíð­inni kom Sveinn auk þess að fjölda ann­arra verk­efna sem voru til­raunir til að brjóta upp fákeppni, ein­okun og ægi­vald Kol­krabbans á íslensku atvinnu­lífi, t.d. Haf­skipum og Arn­ar­flugi. Þá átti Sveinn líka jarðir víða og lýsir sér sem eins manns fast­eigna­sölu sökum umsvifa á fast­eigna­mark­aði.

Sveinn lýsir því vel hvernig stjórn­mála­menn og annað áhrifa­fólk reyndi ítrekað að hafa áhrif á fjöl­miðla­rekstur eða að hrein­lega bregða fæti fyrir þá sem í slíkum stóðu, og sýndu ekki blíðu­hót gegn vald­inu. Í bók­inni rekur hann til að mynda hvernig Þor­steinn Pálsson var gerður að meðrit­stjóra Vísis á móti Jónasi Krist­jáns­syni til að skapa meira jafn­vægi gagn­vart sam­fé­lags­vald­inu, sem var auð­vitað Sjálf­stæð­is­flokk­ur­inn. Hann rekur hvernig hót­anir bár­ust vegna leið­ara­skrifa og hvernig Jónasi var á end­anum bolað út frá Vísi vegna skrifa sinna og skoð­ana á mönnum og mál­efnum.

Það varð til þess að þeir tveir, Sveinn og Jónas, stofn­uðu Dag­blaðið og hófu beina sam­keppni við Vísi, sinn gamla vinnu­stað. Þegar það gerð­ist var Sveinn boð­aður á fund Geirs Hall­gríms­sonar, þá for­manns Sjálf­stæð­is­flokks­ins og for­sæt­is­ráð­herra. Þar bað Geir hann um að hætta við að stofna blaðið. Í bók­inni er haft eftir Geir: „Ég stend ekki í orða­skaki við fólk, ef þú ferð ekki að til­mælum mínum hef ég ekk­ert meira um málið að segja[...]Eitt að lokum, Sveinn, gerðu ekk­ert sem getur skaða Sjálf­stæð­is­flokk­inn eða sjálfan þig.“

Að skera mann niður úr snöru

Það voru þó ekki bara áhrifa­menn úr Sjálf­stæð­is­flokknum sem voru að skipta sér að þar sem þeir áttu ekk­ert erindi. Sveinn rekur einnig frekar hjá­kát­lega fjár­kúg­un­ar­til­raun sem hann varð fyrir af hendi for­manns Alþýðu­flokks­ins.

Það eru einnig sögur af fyr­ir­greiðslu. Til að mynda hjálp­aði Albert Guð­munds­son, þá áber­andi stjórn­mála­maður, Sveini eitt sinn þegar fjár­hags­vand­ræði steðj­uðu að og lét hann hafa eina milljón króna til að greiða laun. Sér­stak­lega var tekið fram að greið­inn yrði að vera á milli þeirra tveggja. Og Sveinn þagði yfir honum þar til hann skrif­aði bók­ina.

Sveinn segir líka sögur af Davíð Oddssyni, einum fyr­ir­ferða­mesta manni íslensks sam­tíma. Davíð hefur enda, á síð­ustu fjórum ára­tugum, náð að vera borg­ar­stjóri, for­maður Sjálf­stæð­is­flokks­ins, for­sæt­is­ráð­herra, utan­rík­is­ráð­herra, seðla­banka­stjóri og nú síð­ast rit­stjóri Morg­un­blaðs­ins, þar sem hann situr enn og skrifar sög­una um sjálfan sig eftir eigin höfði.

[box]Davíð átti það til að boða Svein í morg­un­kaffi þegar hann var borg­ar­stjóri og síðar for­sæt­is­ráð­herra. Munum að á þessum tíma, á níunda og tíunda ára­tug síð­ustu aldar, var Sveinn einn umsvifa­mesti og áhrifa­mesti útgef­andi fjöl­mið­ils lands­ins. Í bók­inni segir Sveinn: „Auðvitað sagði Davíð ýmis­legt á þessum fundum en ég skildi ekki fyrr en seinna að hann var í raun og veru að senda mér skila­boð og leggja mér ákveðnar lífs­reglur. Því miður lét ég undir höfuð leggj­ast að fara eftir þeim og það kom sér illa síðar meir.“

Önnur saga af Davíð, sem Sveinn hefur eftir fyrr­ver­andi stjórn­ar­manni Árvakurs, er nán­ast komískt. Hún fjallar um það að Davíð vildi árum saman láta reka Styrmi Gunn­ars­son, þá rit­stjóra Morg­un­blaðs­ins og æsku­vin Sveins, úr starfi vegna skoð­ana hans á kvóta­kerf­inu. Eftir síend­ur­teknar kvart­anir ákvað stjórn Árvakurs að kalla Styrmi á fund og segja honum upp. Í stuttu máli þá hringdi Davíð inn á fund­inn, bað um að fá að tala við Styrmi, sem hann hafði ekki yrt á árum saman, og bauð honum að setj­ast í auð­linda­nefnd sem rík­is­stjórnin hafði skipað. „Við þetta ger­breytt­ist við­horf Styrmis til kvóta­kerf­is­ins og síðan hefur hann étið úr lófa Davíðs. Þeir sem þekkja Davíð vel vita að þetta er sér­grein hans: Hann kemur mann­inum í gálgann en þegar á að fara að sparka undan honum stólnum þá sker hann mann­inn úr snör­unni,“ segir Sveinn í bók­inni.

Upphafið að endalokunum

Á ára­tug­unum fyrir ald­ar­mót náði Sveinn að byggja upp fjöl­miðla­veldi á Íslandi. Útgáfu­fé­lagið sem hann átti stóran hlut í og stýrði, Frjáls fjöl­miðlun, velti stórum fjár­hæðum og þegar best lét störf­uðu um 400 manns hjá því. Flagg­skiptið var alltaf DV, sam­einað blað Dag­blaðs­ins og Vísis.

Árið 2001 seldi Sveinn ráð­andi hlut í DV til hóps sem sam­an­stóð af Ágúst Ein­ars­syni, bróð­ur­syni hans Einari Sig­urðs­syni (sem er sonur Guð­bjargar Matth­í­as­dóttur, aðal­eig­anda m.a. Ísfélags Vest­manna­eyja og Árvakurs) og Óla Birni Kárasyni, nú þing­manni Sjálf­stæð­is­flokks­ins. Óli Björn hafði áður rit­stýrt Við­skipta­blað­inu sem Frjáls fjöl­miðlun hafði náð yfir­ráðum yfir. Í bók­inni segir Sveinn að stærsta og brýn­asta umbóta­verk­efnið sem ráð­ist var í eftir þá yfir­töku hafi verið að „skipta út rit­stjór­anum sem hafði starfað á blað­inu frá upp­hafi. Úr varð að gera hann að rit­stjóra DV. Á ensku máli er þetta víst kallað „að sparka manni uppi stig­ann“ og var það heilla­skref fyrir Við­skipta­blaðið en til óheilla fyrir DV og okkur sjálfa.“

Í síð­ustu lestr­ar­könn­un­inni sem gerð var áður en að Sveinn seldi DV var með­al­lestur blaðs­ins yfir 40 pró­sent og lest­ur­inn á helg­ar­blað­inu yfir 50 pró­sent. „Þetta var staðan á blað­inu þegar við afhentum það nýjum eig­endum. Blaðið hafði aldrei tapað pen­ingum frá því að það var stofnað ef undan eru skilin miss­erin eftir að virð­is­auka­skatti var skellt á dag­blöð. Auðvitað var ýmis­legt framundan sem vitað var að hefði áhrif, stöð­ugur vöxtur net­miðla eins og Vísis og Frétta­blaðið nýja en kaup­endur DV vissu það líka og hrun blaðs­ins eftir að þeir tóku við verður tæp­lega skýrt með þessu[...]Það þarf ekki að hafa um þetta mörg orð. Þeir félagar tóku við blað­inu sem hafði­verið rekið með góðum árangri í tutt­ugu ár[..]Þeir ráku blaðið í rúmt ár, töp­uðu hund­rað millj­ónum á mán­uði, fóru á hvín­andi haus­inn og vinir þeirra í Lands­bank­anum sátu uppi með líkið.“

Fréttablaðið fer

Sveinn hafði selt hluti í DV til að fjár­magna nýjasta ævin­týri sitt, frí­blaðið Frétta­blaðið. Fyrsta ein­tak þess kom út 23. apríl 2001. Á meðal þeirra sem komu að útlits­hönnun blaðs­ins var Gunnar Smári Egilsson, sem Sveinn kallar galdra­mann á því sviði. Þótt við­skipta­á­ætlun Sveins, og Eyjólfs sonar hans sem starf­aði með föður sínum á þessum tíma, hafi stað­ist að sögn Sveins þá rataði Frétta­blaðið í fjár­hags­leg vand­ræði. Því hafi verið leitað til Jóns Ásgeirs Jóhann­es­sonar að kaupa blaðið. Upp­haf­lega hafi staðið til að hann myndi greiða 400 millj­ónir króna fyrir það.

Frásögn Sveins af því sem gerð­ist í kjöl­farið er nokkuð hörð gagn­rýni á ýmsa ein­stak­linga, sér­stak­lega Gunnar Smára, sem hann segir að hafi skyndi­lega horfið úr vinn­unni einn dag­inn, í miðjum samn­ings­við­ræð­unum, og fengið „starfs­fólkið til að hóta því að leggja niður störf ef við drifum ekki í að semja við traustan aðila sem þau sögð­ust vita að hefði áhuga á að taka yfir eign­ar­hald og rekstur Frétta­blaðs­ins.“ Síðar hafi verið upp­lýst að lög­maður Ragnar Tómasson, sem starf­aði fyrir Jón Ásgeir, og Gunnar Smári hefðu gert með sér sam­komu­lag. „Gunnar Smári sæi um að þvinga okkur til samn­inga en Ragnar sæi á móti um að Gunnar Smári yrði ráð­inn yfir­maður blaðs­ins ef allt gengi eftir.“

Á end­anum sam­þykktu feðgarnir að gefa eftir blaðið gegn því að gert yrði upp við blað­bera þess. Jón Ásgeir eign­að­ist því Frétta­blaðið á 12-14 millj­ónir króna. Það er í dag í eigu eig­in­konu hans. Eftir þessi við­skipti tók við margra ára upp­gjör Sveins við kröfu­hafa sem honum tókst þó að koma út úr stand­andi og án þess að verða tek­inn til gjald­þrota­skipta.

Hræðsluástandið sem ríkti, og ríkir enn

Sam­an­dregið er saga Sveins mjög áhuga­verð. Bókin er um margt merki­leg heim­ild um mik­il­vægan þátt í íslenskri fjöl­miðla­sögu en ekki síður um heim sem var, og er að mörgu leyti til ennþá, þar sem eld­veggirnir sem ættu að vera á milli stjórn­mála, við­skipta og fjöl­miðla eru lágir eða hrein­lega tál­sýn. Þá eru sögur af fyr­ir­ferða­miklu fólki af öllum þessum sviðum bæði stór­skemmti­legar og mjög dap­ur­legar.

Sveinn lýsir þessu ástandi ágæt­lega í lok bók­ar­innar þar sem hann segir að und­an­farna ára­tugi hafi hér „ríkt ákveðið hræðslu­á­stand, ein­hvers konar póli­tískur fas­ismi. Menn hafa ekki þorað að tjá hug sinn af ótta við blóð­hund­unum yrði sigað á þá, eins og dæmin sanna. Ég neita að taka þátt í þess háttar þöggun.“

Niðurstaða: Þrjár og hálf stjarna af fimm.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

bókadómur

Mest lesið undanfarið ár