Um framfarir og aðrar mýtur

Bóka­dómur um Fram­farir: Tíu ástæður til að taka fram­tíð­inni fagn­andi.

Bókin Fram­farir: Tíu ástæður til að taka fram­tíð­inni fagn­andi kom út á vegum Almenna bóka­fé­lags­ins, BF – útgáfu og GAMMA Capital Mana­gement ehf. árið 2017. Bókin er skrifuð af sænskum sagn­fræð­ingi, Johan Norberg, kom upp­runa­lega út árið 2016 á ensku og er þýdd yfir á íslensku af Elínu Guð­munds­dóttur.

Bókin er mjög aðgengi­leg. Efni hennar er sett fram með skýrum og auð­les­an­legum hætti. Þessar tíu ástæður til þess að taka fram­tíð­inni fagn­andi fá hver sinn kafla þar sem fram­farir á við­kom­andi sviði eru raktar en þær eru; 1) fæða, 2) heilsa, 3) lífslíkur, 4) fátækt, 5) ofbeldi, 6) umhverfið, 7) læsi, 8) frelsi, 9) jafn­rétti og 10) næsta kyn­slóð. Hver kafli telur um 20 bls., sem er þægi­legur blað­síðu­fjöldi aflestrar og telur bókin í heild 242 bls. með heim­ilda­til­vís­unum.

Það er mik­il­vægt að halda á lofti þeim undra­verðu fram­förum sem orðið hafa á sviði tækni, mann­kyn­inu til heilla og Norberg ferst almennt vel úr hendi að tína til marg­vís­leg dæmi til þess að gefa yfir­lit yfir þró­un­ina í hverjum við­fangskafla, til að mynda um mik­il­vægi Haber-Bosh ferl­is­ins til áburð­ar­fram­leiðslu, Hina grænu bylt­ingu dr. Normans Borlaugs og bólu­setn­ing­ar­lyf Maurice Hillem­ans.

Brengluð sýn á samtímann

Í blá­byrjun bók­ar­innar telur Norberg upp marg­vís­leg dæmi um böl­sýni í sam­tím­anum, og vitnar ýmsar heim­ildir því til stuðn­ings. Árið 1955 töldu 13% Svía aðstæður sínar óbæri­legar, hálfri öld seinna var meira en helm­ingur Svía þess­arar skoð­unar. Einn helsti punktur bók­ar­innar, að það sé í eðli fjöl­miðla leggja ofurá­herslu á ein­staka nei­kvæða hluti, sem brengli skynjun okkar á ástandi heims­ins. “Slík skynjun elur á ótt­anum og for­tíð­ar­hyggj­unni sem Donald Trump beitti í kosn­inga­bar­áttu sinni fyrir nýaf­staðnar for­seta­kosn­ingar í Banda­ríkj­unum.” (Bls. 11)

Norberg bendir á að meðal almenn­ings virð­ast vera við lýði ansi þrá­látir nei­kvæðir for­dómar um stöðu heims­ins og þá sér­stak­lega virð­ist fólk í þró­uðum löndum telja stöð­una í svoköll­uðum þró­un­ar­löndum verri en hún í raun og veru er. Árið 2005 vann Norberg könnun fyrir hönd frjáls­hyggju­hug­veit­una Timbro sem sýndi að Svíar töldu stöðu fátæktar í heim­inum og loft­gæði í Svíþjóð mun verri en þau voru (enda þótt úrtakið hafi aðeins verið 1000 manns). "Þeir sem hlotið höfðu æðri menntun vissu enn minna um árang­ur­inn sem náðst hafði í bar­átt­unni við hungur og fátækt sem varð til þess að ég velti fyrir mér hversu gamlar og úreltar kennslu­bæk­urnar sem þeir lásu væru." (bls. 210). Þetta er áhuga­verður punktur sem Norberg bendir á og sam­landi hans, Hans Rosling hefur einnig sýnt fram á.

Það er umhverfið, auli!

Það er auð­velt að finna alvar­leg aðsteðj­andi umhverf­is­mál. Hér eru tvö nýleg dæmi. Alvar­legur þurrkur í Cape Town, höf­uð­borg Suður-Afríku, hefur leitt til skömmt­unar og því er spáð að vatns­bólin tæm­ist 18. apríl næst­kom­andi. Sífellt er að koma betur og betur í ljós hversu alvar­legt vanda­mál plast­mengun er, vís­inda­menn eru í raun rétt að byrja að skilja umfang vand­ans.

Fram­farir á níu af þessum tíu sviðum sem bókin fjallar um eru til­tölu­lega óum­deildar og auð­velt að finna heim­ildir því til stuðn­ings. Í miðri bók­inni, í kafl­anum Umhverfið, bregst Norberg hins vegar alvar­lega boga­listin. Hann er aug­ljós­lega ekki sér­lega fróður um umhverf­is­mál og reiðir sig of mikið á bók banda­ríska umhverf­is­vá­r­skept­íkers­ins Ronald Baileys, The End of Doom: Environ­mental Renewal in the Twenty-first Century.

Þá eyðir Norberg tölu­verðu púðri í að gagn­rýna í Róm­ar­klúbb­inn, einn fyrsta hóp umhverf­is­vernd­ar­sinna sem árið 1972 hlaut mikla athygli fyrir spár sínar um að auð­lindir jarðar myndu hrein­lega klár­ast innan skamms. Vandinn er að þó svo að stór­gall­aðar spár Róm­ar­klúbbs­ins hafi ekki ræst þá segir það okkur ekk­ert um fram­farir á sviði umhverf­is­mála né stöðu umhverf­is­mála í dag.

Hér á eftir ætla ég að rýna betur í sumar full­yrð­ingar Norbergs um stöðu umhverf­is­mála í heim­inum í dag og rök­styðja álit mitt á trú­verð­ug­leika þeirra. Ég hef þann hátt­inn á að vitna í máls­grein­ina í heild - svo les­and­inn sjái heild­ar­sam­hengi til­vitn­un­ar­innar, feit­letra til­tekin atriði sem mér finn­ast aðfinnslu­verð og fylgja þeim eftir með umfjöllun. [box]

Gagnrýnisraddir hundsaðar

Einn helsti galli bók­ar­innar er að höf­und­ur­inn greinir lítt eða ekki sjón­ar­mið þeirra sem líta fram­tíð­ina gagn­rýnni augum. Á blað­síðu 12 nefnir Norberg tvo rit­höf­unda sem hafa verið áber­andi í umræðu um ástand heims­ins og hvert við stefnum. Annars vegar vitnar hann í orð aðgerða­sinn­ans Naomi Klein um að “sið­menn­ingin stefni í óefni og að við séum að grafa undan lífs­skil­yrðum okkar á jörð­inni”. Klein er þekkt fyrir að gagn­rýna alþjóð­legan kap­ít­al­isma og neyslu­hyggju í bókum sínum No Logo og The Shock Doctrine sem áhuga­vert væri að heyra við­brögð Norbergs við. Norberg velur hins vegar með klaufa­legum hætti að vitna í við­tal við hana vegna nýj­ustu bókar hennar um um hlýnun jarðar, This Changes Everyt­hing. Erfitt er að skilja hvað nákvæm­lega Norberg finnur að orðum Kleins sem hann vitnar í því Norberg segir sjálfur að hugs­an­legar afleið­ingar lofts­lags­breyt­inga séu "alþjóð­legar hörm­ungar".

Hins vegar vitnar hann í blaða­grein frá árinu 2002 eftir breska heim­spek­ing­inn, John Gray, þar sem mann­skepnan er sögð “homo rapi­ens teg­und sem rænir, tor­tímir og siglir hrað­byri að enda­lokum sið­menn­ingar.” Líkt og Klein, hefur Gray skrifað gagn­rýnt um alþjóð­legan kap­ít­al­isma, bók hans False Dawn: The Delusions of Global Capitalism kom út 1998 og var end­ur­út­gefin eftir alþjóð­legu fjár­málakrepp­una. Áhuga­vert hefði verið að heyra við­brögð Norbergs við gagn­rýni Grays í þeirri bók en aftur velur Norberg klaufa­lega til­vísun til þess að vitna í án sam­hengis því áður­nefnd grein Johns Grays fjallar einmitt um líf­fræði­legan fjöl­breyti­leika og tíðni teg­unda­dauða. Er það und­ar­legt að tala um mann­skepn­una sem "homo rapi­ens" í því sam­hengi að teg­undir deyji út 100 falt tíðar af völdum hennar?

Norberg útskýrir ekki til­vitn­anir sínar í skrif þeirra heldur virð­ist ganga út frá því að orðin ein og sér beri með sér hvers vegna ekki þurfi að taka mark á þeim. Þetta sé nei­kvætt tal - verið er að tala mann­kynið niður. Það er synd því að bæði Klein og Gray hafa ýmis­legt fram að færa, Gray kannski ekki síst hvað varðar heim­speki fram­fara hjá mann­kyn­inu en hann gerir skýran grein­ar­mun á tækni­legum fram­förum ann­ars vegar og félags­legum hins vegar. En þetta redd­ast, segir Norberg, í nið­ur­lagi kafla hans um umhverfið sýnir hann jákvæðni gagn­vart fram­tíð­inni sem jaðrar við ósk­hyggju: "Frum­vand­inn við hlýnun jarðar – hungur okkar í orku – er í reynd líka lausnin." (bls 133)

Úrvinnslu aðeins ábótavant

Það má setja lít­il­lega út á ein­staka staf­setn­inga­villur og sömu­leiðis upp­setn­ingu heim­ilda­skrár. Ef flett er upp á heim­ild byggt á fótnótu­núm­eri þá er í sumum til­fellum vísað í end­ur­teknar heim­ildir með seinna nafni höf­undar og ártali. Heim­ildir eru hins vegar skráðar eftir hinu íslenska kerfi þannig að fyrra nafnið kemur á undan og þarf þá að lesa áfram til þess að finna eft­ir­nafnið. Þetta getur verið þreyt­andi, sér í lagi ef fleiri en ein heim­ild er í undir sömu fótnótu.

Heilt yfir nýtir Norberg ágætt safn heim­ilda. Þrjár bækur er vísað í öðrum fremur, sem Norberg við­ur­kennir tekur sjálfur fram í bók­inni.

  • The Great Escape: Health, Wealth, and the Origins of Inequality (2015) eftir Angus Deaton
  • The Better Angels of Our Nature: A History of Violence and Humanity (2012) eftir Steven Pinker
  • The End of Doom: Environ­mental Renewal in the Twenty-first Century (2015) eftir Ronald Bailey

Einstaka óvand­virkni kemur fram í umfjöllun Norbergs. Sem dæmi má nefna að í kafl­anum um hrein­læti (bls 40) segir Norberg frá skraut­legu en í raun sorg­legu slysi (nefnt Erfurter Latrinensturz á þýsku) sem gerð­ist “árið 1183 [þegar] Friðrik II, keis­ari Hins heilaga róm­verska ríkis, [hélt] mikla veislu þegar hirð hans dvald­ist í kast­ala í Erfurt í Þýska­landi. Þegar borð­haldið stóð sem hægt tók gólfið að gefa sig og fjöl­margir virðu­legir gestur duttu niður í safn­þróna. Margir drukkn­uðu í óþverr­anum.” Hið rétta er í fyrsta lagi að þetta gerð­ist árið 1184 og í öðru lagi að til­efnið mun ekki hafa verið veisla sem Friðrik II. hélt (hann fædd­ist ekki fyrr en 1194) heldur sátta­fundur sem Heinrich VI. hélt til þess að sætta deilur um land á milli Lúðvíks III og Erki­bisk­ups­ins Konráðs I. Þessi óná­kvæmni er auð­vitað ekk­ert aðal­at­riði en sýnir óvand­virkni líkt og fleiri atriði úr bók hans.

Nið­ur­staða: Þrjár stjörnur af fimm.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

bókadómur

Mest lesið undanfarið ár