Þingmaður Sjálfstæðisflokks gagnrýnir aftur kostnað við hælisleitendur

Ásmundur Frið­riks­son seg­ist hafa heyrt að kostn­aður vegna mót­töku hæl­is­leit­enda á Íslandi verði 3-6 millj­arðar króna í ár. Það sé á við ein til tvö Dýra­fjarð­ar­göng.

Ásmundur Friðriksson, þingmaður Sjálfstæðisflokksins.
Ásmundur Frið­riks­son, þing­maður Sjálf­stæð­is­flokks­ins. Mynd: Birgir Þór Harðarson

Ásmundur Frið­riks­son, þing­maður Sjálf­stæð­is­flokks, segir að kostn­aður vegna mót­töku á hæl­is­leit­endum hafi farið langt fram úr áætl­unum á und­an­förnum árum. Hann segir að í febr­úar menn séð það strax „að þegar talað var um 500 hæl­is­leit­endur á þessu ári vor komnir 700 en núna eru menn farnir að tala um að þetta verði á annað þús­und og kannski meira og kostn­að­ur­inn sem ég hef heyrt er 3-6 millj­arðar, eða ein til tvö Dýra­fjarð­ar­göng á ári.“ Þetta kom fram í við­tali við Ásmund á Útvarpi Sögu í gær.

Samkvæmt tölum sem birtar eru á vef Útlend­inga­stofn­unar sóttu 1.132 um vernd hér­lendis á árinu 2016. Af þeim var alls 111 manns veitt vernd, við­bót­ar­vernd eða mann­úð­ar­leyfi til að dvelja á Íslandi. Öðrum var annað hvort synjað, þeir end­ur­sendir, veitt vernd í öðru ríki eða drógu til baka umsóknir sínar. Á fyrstu fimm mán­uðum árs­ins 2017 sóttu alls 370 manns um vernd. Af þeim hafa 52 fengið vernd, við­bót­ar­vernd eða mann­úð­ar­leyfi. Í des­em­ber 2016 voru 820 umsækj­endur hér­lendis annað hvort þjón­u­staðir af sveit­ar­fé­lögum eða Útlend­inga­stofnun. Þeim hefur farið hratt fækk­andi og 1. júní voru þeir 545 tals­ins.

Bar kostnað við hælisleitendur saman við skurðstofu í Vestmannaeyjum

Þetta er ekki í fyrsta sinn sem Ásmundur gerir athuga­semd við kostnað rík­is­ins vegna hæl­is­leit­enda. Í sept­em­ber í fyrra gagn­rýndi hann að fjár­fram­lög til Útlend­inga­stofn­unar hafi auk­ist vegna fjölg­unar hæl­is­leit­enda hér á landi og fjölgun hæl­is­leit­enda. „Hæl­is­leit­end­ur er annar flokkur flótta­manna sem stöðugt sækir til lands­ins og er að mestu sam­an­settur af ungum karl­mönnum sem koma hing­að ­vega­bréfa­laus­ir. Í nýsam­þykktum lögum um útlend­inga eru skila­boð Alþingis skýr til þessa hóps og eru að skila sér,“ sagði Ásmundur og tal­aði svo um mikla fjölgun hæl­is­leit­enda hér á land­i.

Hann sagði dval­ar­gjöld hæl­is­leit­enda sem ekki fái úrlausn sinna mála vera 234 þús­und krónur á mán­uði á meðan lág­marks­elli­líf­eyrir væri 212 þús­und krón­ur. Þegar hann sagði þetta hróp­aði Helgi Hrafn Gunn­ars­son, þáver­andi þing­maður Pírata, „skammastu þín“ á Ásmund.

Ásmundur sagði 1200 millj­ónir sam­tals fara til Útlend­inga­stofn­unar á ári vegna hæl­is­leit­enda. „Það sama og myndi kosta að reka skurð­stofu á Heil­brigð­is­stofnun Suð­ur­lands á sjúkra­hús­inu í Vest­manna­eyjum en þar er enga skurð­stofu eða fæð­ing­ar­hjálp að hafa,“ sagði Ásmund­ur. Hann gagn­rýndi að lokum útlend­inga­lögin nýju og sagði Íslend­inga ekki læra af reynslu ann­arra ríkja. 

Spurði hvort múslimar væru bakgrunnsskoðaðir

Ásmundur hefur líka vakið athygli fyrir ummæli sín um múslima og ógn­ina sem hann telur Íslandi stafa af hryðju­verka­mönnum. Í jan­úar 2015 varp­aði hann fram þeirri spurn­ingu í Facebook-stöðu­upp­færslu, nokkrum dögum eftir skotárás­ina á rit­stjórn­ar­skrif­stofur franska teikni­mynda­blaðs­ins Charlie Hebdo, hvort þeir 1.500 múslimar sem búi á Íslandi hafi verið athug­aðir og hvort ein­hverjir úr þeirra hópi hafi fengið þjálfun hjá sam­tökum sem skil­greind hafa verið sem hryðju­verkaógn. Ásmundur spurði enn­fremur hvort inn­an­rík­is­ráðu­neytið hefði gert rað­staf­anir vegna þess­ara ógna.

Stöðu­upp­færsla Ásmundar, og frétta­flutn­ingur af henni sem fylgdi í kjöl­farið vakti mikla athygli og skömmu síðar við­ur­kenndi Ásmundur í við­tali við Kastljós að hann þekkti sam­fé­lag múslima „nán­ast ekki neitt“. Múslimar hefðu hins vegar sjálfir áhyggjur af því að „múslim­istar“ vilji koma til Íslands.

Um mán­uði síðar, í febr­úar 2015, var umræða um störf þings­ins á Alþingi. Þar steig Ásmundur í pontu og lýsti yfir von­brigðum sínum með sam­fé­lags­um­ræð­una um þá hættu sem steðji að hinum frjálsa heimi og þjóð­fé­lögum vegna fjölg­unar á árásum ein­stak­linga og hvers konar öfga­hópa.

Orðrétt sagði Ásmundur: „Hér á landi á engin slík umræða sér stað og það er spurn­ing hve lengi við ætlum að skila auðu í umræðu um öryggi íbú­anna. Hér haf­ast menn öðru­vísi að. Þeir sem vekja athygli á hætt­unni er steðjar að nágrönnum okkar eru skotnir niður og ataðir auri í sam­fé­lags­um­ræð­unni sem aldrei kemst á það stig að ræða um mál­efnið. [...] Tján­ing­ar­frelsi er fótum troðið en það virð­ist oft og tíðum aðeins vera fyrir útvalda. Ég þakka hæst­virtum inn­an­rík­is­ráð­herra Ólöfu Nordal fyrir að hefja umræð­una um hvort taka skuli upp for­virkar rann­sókn­ar­heim­ildir hér á landi. Tökum umræð­una í sam­fé­lag­inu um þá ógn sem steðjar að í nágranna­löndum okkar. Við getum ekki tekið þá áhættu að hún ber­ist ekki hingað“.

Í mars 2015 var Ásmundur annar aðal­gesta sjón­varps­þátt­ar­ins Eyjunnar, sem þá var á dag­skrá Stöðvar 2. Þar ræddi hann aftur um að ógnin af hryðju­verka­mönnum væri stað­reynd og sagði: „Núna eru þeir ekki aðeins komnir til Dan­merkur, þeir eru að spíg­spora hér í bænum þessir menn. Við getum mætt þeim á götu núna. Ég held að miðað við þau við­brögð sem ég hef fengið við þessu, þessi gríð­ar­legu við­brögð sem ég fékk við þessum mál­flutn­ingi mínum, þakk­læti frá fólk­inu í land­inu, segir mér það að við þurfum að taka þessa umræðu eins og inn­an­rík­is­ráð­herr­ann er byrjuð að tala um for­virkar rann­sókn­ar­heim­ildir og við þurfum auð­vitað að gera þetta æsinga­laust“. 

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið undanfarið ár