Fjölgar enn á biðlistum eftir félagslegu húsnæði

948 ein­stak­lingar bíða nú eftir félags­legri leigu­í­búð í Reykja­vík. Síðustu fimm mán­uði hefur biðlist­inn lengst um rúm­lega hund­rað ein­stak­linga.

948 ein­stak­lingar eru nú á biðlista eftir félags­legu hús­næði í Reykja­vík­ur­borg, sam­kvæmt nýjum tölum úr gagna­safni vel­ferð­ar­sviðs Reykja­vík­ur­borgar. Það sem af er ári hafa fimm­tíu ein­stak­lingar bæst við biðlista eftir félags­legu hús­næði í borg­inni.

Í byrjun síð­asta árs voru 723 ein­stak­lingar á biðlista, og í lok árs­ins voru 874 á list­anum. Inn á milli tókst að fækka á biðlist­anum milli mán­aða, enda var 165 félags­legum íbúðum úthlutað á síð­asta ári, fleiri en á und­an­förnum árum. Frá nóv­em­ber á síð­asta ári hefur hins vegar fjölgað hratt á biðlist­anum.

Langstærsti hóp­ur­inn sem er á biðlista eft­ir félags­legu leigu­hús­næði í Reykja­vík eru ein­hleypir karl­menn. Meira en helm­ingur þeirra sem eru á biðlista eftir slíku hús­næði til­heyra þessum hópi, eða 495 tals­ins af 948.

[adspot]

Næst­stærsti hóp­ur­inn sem bíður eftir félags­legu leigu­hús­næði eru ein­hleypar kon­ur, 231 tals­ins. Þriðji stærsti hóp­ur­inn sem bíður eftir íbúð eru ein­stæðar mæð­ur, en þær eru 167. 25 hjón eða sam­býl­is­fólk með börn bíða félags­legs leigu­hús­næðis og 17 barn­laus hjón eða sam­býl­is­fólk. Þrettán ein­stæðir feður eru á biðlista eftir félags­legu leigu­hús­næð­i.

Biðlistar eftir félags­legu hús­næði hafa lengst í borg­inni frá árinu 2013, en gagna­safn borg­ar­innar nær aftur til byrj­unar árs­ins 2013 hvað þetta varð­ar. Nú eru sem fyrr segir 948 á biðlista eftir félags­legu hús­næði í borg­inni, en fjöld­inn fór fyrst yfir 900 í febr­úar síð­ast­liðn­um, þegar list­inn taldi 904.

[links]Mest er eft­ir­spurnin eftir eins til tveggja her­bergja íbúð­um, en 717 eru nú á biðlista eftir slíkum íbúð­um. 151 er að bíða eftir þriggja her­bergja íbúð og 80 bíða eftir fjög­urra her­bergja íbúð eða stærri.

Biðlist­inn eftir íbúðum er lang­lengstur í Vest­ur­bæ, mið­borg og Hlíð­um, þar sem 320 mans eru á biðlista eftir íbúðum. 216 eru nú á biðlista eftir íbúð í Laug­ar­dal og Háa­leiti og 163 í Breið­holti. 126 eru á biðlista eftir íbúð í Árbæ og Graf­ar­holti og 123 í Graf­ar­vogi og á Kjal­ar­nes­i.

Biðlist­arnir eru flokk­aðir niður eftir þjón­ustu­mið­stöðvum borg­ar­inn­ar. Lengdin á biðlist­unum hefur breyst nokkuð frá því árið 2013, en þá voru fleiri á biðlista eftir íbúðum í Breið­holti en í Vest­ur­bæ, mið­borg og Hlíð­u­m. Árið 2014 fækk­aði á biðlista eftir félags­legu hús­næði í Breið­holti úr 230 í upp­hafi árs í 160 í lok árs, á meðan biðlist­inn í Vest­ur­bæ, mið­borg og Hlíðum lengd­ist.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

velferðarmál

Mest lesið undanfarið ár