Andrés Breta­prins Her­tog­inn af Jórvík, hér með móður sinni, Elísabet annarri drottn­ingu. Mynd: Shutterstock

Viðtalið sem felldi prins

Andrés Breta­prins hefur dregið sig í hlé frá öllum opin­berum störfum í fyr­ir­sjá­an­legri fram­tíð eftir að hann veitti umdeilt sjón­varps­við­tal um vin­skap sinn við banda­ríska barn­a­níð­ing­inn Jeffrey Epstein. Epstein fannst lát­inn í fanga­klefa á dög­unum og hafa tveir fanga­verðir verið hand­teknir vegna máls­ins. Stúlka, sem segir Andrés og Epstein hafa brotið gegn sér ítrekað, hvetur prins­inn til að gefa sig fram við yfir­völd í Banda­ríkj­unum.

Jeffrey Epstein var fjár­festir og auð­kýf­ingur sem fékk snemma það orð­spor að hafa áhuga á ungum stúlkum og villtu djammi. Hann átti valda­mikla vini og þrá­látur orðrómur var uppi um að hann útveg­aði þeim ólög­ráða stúlkur í einka­sam­kvæmum.

Árið 2008 var Epstein sak­felldur eftir langa lög­reglu­rann­sókn. 17 vitni voru yfir­heyrð, þar af fimm brota­þolar, og þótti ljóst að hann hafi vitað að stúlk­urnar væru undir lög­aldri. Ákæran var alls 53 blað­síður að lengd og hefði mjög senni­lega getað orðið til þess að Epstein yrði dæmdur í ævi­langt fang­elsi á sínum tíma. Af ein­hverjum ástæðum féllst sak­sókn­ar­inn hins vegar á mála­miðlun sem kom í veg fyrir alla frek­ari rann­sókn mál­anna. Epstein slapp með 13 mán­aða fang­elsi sem hann afplán­aði að stærstum hluta utan fang­els­is­múr­anna og sam­verka­menn hans sluppu með skrekk­inn.

Síðar kom í ljós að rann­sak­endur ræddu við að minnsta kosti 36 stúlkur sem sögðu sömu sögu af sam­skiptum …

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár