Fimm af tutt­ugu og fimm Sjaldan eða aldrei hafa eins margar ljóða­bækur eftir konur komið út á einu ári. Þær Eyrún Ósk Jóns­dóttir, Hanna Óla­dóttir, Þórdís Gísla­dóttir, Brynja Hjálms­dóttir og Sigurlín Bjarney Gísla­dóttir eiga allar ljóða­bók í flóð­inu. Mynd: Heiða Helgadóttir

Heimsmyndir, mannlífsmyndir, sjálfsmyndir

Sjaldan eða aldrei hafa komið út jafn­margar bækur á sviði íslensks skáld­skapar og á þessu ári. Þrð á meðal er mik­ill fjöldi ljóða­bóka og eru kven­höf­undar þar atkvæða­miklar, með að minnsta kosti 25 nýjar ljóða­bækur en ljóða­bækur eftir karla eru mun færri. Hér er rýnt í nokkrar þess­ara bóka eftir höf­unda af ólíkum kyn­slóðum og reynt að gera grein fyrir helstu yrk­is­efnum þeirra. Í grein­inni má hlusta á nokkur skáld­anna lesa úr verkum sínum.

Það kemur eflaust fáum á óvart að ham­fara­hlýnun af manna völdum hvílir þungt á skáldum, ekki síst á því skáldi sem er höf­undur orðs­ins „ham­fara­hlýnun“. Steinunn Sig­urð­ar­dóttir (f. 1950) heldur upp á hálfrar aldar skáld­skap­araf­mæli sitt á þessu ári og í ljóða­bók­inni Dimmumót yrkir hún um Vatna­jökul í for­tíð, nútíð og fram­tíð. Dimmumót skipt­ist í sjö hluta. Í fyrsta hluta hittir les­and­inn fyrir „stelpuna“ sem á örugga æsku og glaða, ekki síst í „pabba­sveit með jökli“ þar sem hún gengur „dagdrauma­leið­ina“ með kýrnar“ og yfir sveit­inni ríkir „Hvíta­gull­fjallið ofar öllu“. Strax í þessum fyrsta hluta birt­ast þó váboðar því það gleymd­ist að jök­ull­inn „er úr vatni gerður // að hann leys­ist upp í það // og flæðir yfir veg allrar ver­aldar“. Við berum sök­ina; erum „Mis­ind­is­menn. / Við óvitar // sem köllum okkur þó homo sapi­ens“:

Við viti­borin skiljum þá ham­far­hlýnun á jörð­inni

…
Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár