Hvað mun ráða framtíð Írans?

Mótmæli hafa staðið yfir í Íran síðustu daga en klerka­stjórnin hefur reynt að berja þau niður af hörku. Að mati sérfræðinga er ekki hægt að segja til um hvort að fall íslamska lýðveldisins þar í landi sé yfir­vofandi en þeir segja fimm þætti geta ráðið úrslitum um hver framtíð landsins verður.

Mótmæla klerkastjórninni
Mótmæla klerka­stjórn­inni Mótmæli hafa farið fram víða en tak­markað aðgengi hefur verið að neti í Íran und­an­farna daga. Mynd: AFP

M

ótmæli hafa staðið yfir í meira en tvær vikur og eru þau ein alvarlegasta ógn við klerka­stjórn Írans í mörg ár, bæði hvað varðar umfang og eðli. Þó er of snemmt að spá fyrir um yfir­vofandi fall íslamska lýðveldisins að sögn sérfræðinga.

Mótmælin þróuðust úr því að vera af efnahags­legum toga yfir í kröfur um allsherjar­breytingu á klerka­kerfinu sem hefur verið við stjórnvölinn í Íran frá byltingunni 1979 þegar Íransk­eisara var steypt af stóli.

Yfirvöld hafa beitt harðræði sem, að sögn mann­réttinda­samtaka, hefur leitt til dauða hundruða manna á meðan stjórn æðsta leið­togans Ayatollah Ali Khamenei, sem nú er 86 ára, hefur enn valdið í höndum sér.

„Þessi mótmæli eru að öllum líkindum alvarlegasta ógnin við íslamska lýðveldið í mörg ár, bæði hvað varðar umfang og sífellt skýrari pólitískar kröfur,“ sagði Nicole Grajewski, prófessor við Sciences Po Centre for International Studies í París, í samtali við AFP.

Hún taldi óljóst hvort mótmælin myndu steypa stjórninni af stóli og benti á „hversu djúpt og seigt kúgunar­kerfi Írans er.“

Írönsk yfirvöld hafa boðað til eigin gagn­mótmæla og mættu þúsundir á þau í gær.

Thomas Juneau, prófessor við Háskólann í Ottawa, sagði: „Á þessum tíma­punkti met ég það enn ekki svo að fall stjórnarinnar sé yfir­vofandi. Aftur á móti er ég óvissari um það mat en áður.“

Að mati sérfræðinga munu eftir­farandi þættir ráða því hvort leiðtogar íslamska lýðveldisins haldi völdum:

1. Viðvarandi mótmæli

Lykil­þáttur er „einfald­lega stærð mótmælanna; þau fara vaxandi en hafa ekki náð þeim fjölda sem myndi marka þáttaskil,“ sagði Juneau.

Mótmæla­hreyfingin hófst með verk­föllum á basarnum í Teheran þann 28. desember sem þróuðust út í fjölda­mótmæli í höfuð­borginni og öðrum borgum frá fimmtudeginum síðastliðnum.

Síðustu stóru mótmælin í Íran voru árin 2022–2023. Þau urðu í kjölfar dauða ungu konunnar Mahsa Amini sem hafði verið drepin í haldi lögreglu fyrir að brjóta klæða­reglur kvenna. Þá fóru árið 2009 fram fjölda­mótmæli eftir umdeildar kosningar.

Yfirvöld hafa nú lokað fyrir netaðgengi í nokkra daga sem gerir fólki erfiðara fyrir að meta umfang yfir­standandi mótmæla þar sem færri myndbönd hafa ratað á netmiðla.

Arash Azizi, fyrir­lesari við Yale-háskóla, sagði að „mótmælendur þurfi enn að kljást við að hafa ekki varanleg, skipulögð tengslanet sem geta barist gegn kúguninni.“

Hann sagði að einn möguleiki væri að „skipuleggja verkföll í mikil­vægum atvinnu­greinum“ en það krefðist forystu sem enn væri ekki til staðar.

2. Samheldin elíta

Þótt ástandið á götum úti sé afar mikilvægt segja sérfræðingar litlar líkur á breytingum án þess að sprungur myndist innan forystunnar og liðhlaup eigi sér stað innan öryggis­sveita.

Hingað til hafa engin ummerki verið um slíkt þar sem allar stoðir íslamska lýðveldisins, frá þinginu til forsetans og byltingar­varða­liðsins (IRGC), hafa fylkt sér á bak við Khamenei.

„Eins og staðan er núna eru engin skýr merki um liðhlaup í hernum eða klofning meðal hátt­settra í elítu stjórnarinnar. Sögulega séð hefur þetta verið mikilvæg vísbending um hvort mótmæla­hreyfing geti leitt til falls stjórnarinnar,“ sagði Grajewski frá Sciences Po.

Jason Brodsky hjá bandarísku samtökunum United Against Nuclear Iran sagði mótmælin „söguleg“ en bætti við að nokkur mismun­andi atriði þyrfti til að fella stjórnina. Þar á meðal „liðhlaup í öryggis­sveitunum og sprungur í pólitískri elítu íslamska lýðveldisins.“

3. Hernaðaríhlutun Ísraels eða Bandaríkjanna

Donald Trump, forseti Banda­ríkjanna, sem hefur hótað hernaðar­legum hefndar­aðgerðum vegna harðræðisins, tilkynnti á mánudag 25 prósenta tolla gegn viðskipta­löndum Írans.

Hvíta húsið sagði að Trump forgangs­raðaði diplómatískum aðgerðum en hefði ekki útilokað árásir. Banda­ríkin tóku stuttlega þátt í 12 daga stríði Ísraels gegn Íran í júní í fyrra.

Það stríð leiddi til dauða nokkurra hátt­settra íranskra öryggis­fulltrúa, neyddi Khamenei til að fara í felur og afhjúpaði hversu djúpt leyni­þjónusta Ísraels hafði seilst inn í íslamska lýðveldið.

Bandarískar árásir myndu gjör­breyta ástandinu að sögn sérfræðinga.

Íranska utan­ríkis­ráðuneytið sagði á mánudag að það hefði opnar samskipta­leiðir við Washington þrátt fyrir skort á stjórnmála­sambandi.

„Bein hernaðar­íhlutun Banda­ríkjanna myndi gjör­breyta framvindu kreppunnar,“ sagði Grajewski.

Juneau bætti við: „Stjórnin er viðkvæmari en hún hefur verið, bæði innanlands og land­fræðilega, síðan á verstu árum Íran-Írak stríðsins“ sem stóð frá 1980–1988.

4. Skipulögð andstaða

Reza Pahlavi, sonur keisarans sem steypt var af stóli og býr nú í Banda­ríkjunum, hefur gegnt stóru hlutverki í að hvetja til mótmæla og slagorð sem styðja konungs­veldið hafa verið áberandi.

En þar sem engin raun­veruleg pólitísk andstaða er eftir innan Írans er samfélag útlaga enn verulega klofið milli pólitískra fylkinga sem eru þekktar fyrir að berjast jafn mikið innbyrðis og gegn íslamska lýðveldinu.

„Það þarf að vera forystu­bandalag sem raun­verulega táknar breiðan hóp Írana en ekki bara eina pólitíska fylkingu,“ sagði Azizi.

5. Heilsa Khameneis

Khamenei hefur nú verið við völd síðan 1989 þegar hann varð æðsti leiðtogi, embætti sem hann á að gegna til lífstíðar, eftir dauða Ruhollah Khomeini, stofnanda byltingarinnar.

Hann lifði af stríðið við Ísrael og kom fram opinber­lega á föstudag til að fordæma mótmælin með ögrandi hætti.

Óvissa hefur lengi ríkt um hver gæti tekið við af honum en meðal möguleika eru annars vegar dular­fullur en valda­mikill sonur hans, Mojtaba, eða hins vegar að valdið verði fært til nefndar frekar en einstaklings.

Atburðarás af þeim toga, milli óbreytts ástands og algerrar breytingar, gæti leitt til „meira og minna formlegrar yfirtöku byltingar­varðanna,“ sagði Juneau.

Kjósa
7
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár