Paul Krugman mælir með Of Monsters and Men

Paul Krugman, Nóbels­verðlauna­hafi í hagfræði árið 2008 og pistla­höfundur New York Times, segir í stuttum pistli á vef bandaríska blaðsins að endur­reisn Íslands eftir efnahags­hrun og hljóm­sveitin Of Monsters and Men séu í reynd óskyldir hlutir, en hann hafi samt einkar gaman af hljóm­sveitinni. Vísar hann sérstak­lega til lagsins Crystals sem nú hljómar ótt og títt á öldum ljós­vakans um allan heim.

Í pistlinum vísar hann á tvö myndbönd af hljóm­sveitinni spila lagið, fyrst hefð­bundna útgáfu sveitarinnar og síðan órafmagnaða útgáfu.

Krugman segist einkar ánægður með nýja efnið með hljóm­sveitinni.

Hin alíslenska Of Monsters and Men gaf út nýja plötu sína Beneath the Skin 9. júní síðastliðinn, og eru vinsældir sveitarinnar að vaxa hratt um allan heim.

https://www.youtube.com/watch?t=16&v=TReXq34mQvY

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár