Tíu mikilvægustu hlutirnir sem eru að gerast í heiminum í dag

Business Insider tekur saman tíu mikil­vægustu hlutina sem eru að gerast í heiminum í dag. Eins og undan­farið eru fréttir um flóttamanna­krísuna áberandi.


  1. Miðborg Peking er lokuð til þess að hægt sé að halda risavaxna herskrúð­göngu til að minnast þess að 70 ár eru liðin frá því að Japanir gáfust upp í seinni heim­styrjöldinni. Xi Jinping, forseti Kína, hefur einnig tilkynnt að kínverski herinn verði minnkaður.

  2. Forsætis­ráðherra Ungverja­lands, Viktor Orban, mun hitta leiðtoga Evrópu­sambands­ríkja í Brussel í dag til að ræða flóttamanna­krísuna, en þúsundir flótta­manna eru enn stranda­glópar fyrir utan stærstu járnbrauta­stöðina í Búdapest.

  3. Banda­ríkin fylgjast nú með fimm kínverskum herskipum sem eru undan ströndum Alaska, en það er í fyrsta sinn sem kínverski sjóherinn hefur verið með skip á þessum slóðum.

  4. Barack Obama Bandaríkja­forseti hefur tryggt sér nægan stuðning innan öldunga­deildar þingsins fyrir samkomu­laginu við Íran.

  5. Deutsche Bank varar við því að óvissa á mörkuðum, sem hefur verið mikil undan­farna daga, muni halda áfram á næstunni.

  6. Flugmenn Lufthansa gætu verið á leið í verkfall enn á ný vegna lang­varandi vinnu­deilna.

  7. Nærri 150 milljónir starfs­manna í Indlandi fóru í verkfall í gær til að mótmæla áformum Narendru Modi forsætis­ráðherra um að breyta vinnu­lögum í landinu og gera atvinnu­rekendum auðveldara að ráða og reka starfs­fólk.

  8. Alþjóða­gjaldeyris­sjóðurinn segir að hægari efnahags­vöxtur í Kína hafi stærri áhrif á hagkerfi heimsins en búist var við.

  9. Skýrsla Sameinuðu þjóðanna segir að stríð í heiminum hamli skóla­göngu þrettán milljóna barna í Miðausturlöndum og Norður-Afríku.

  10. Elon Musk, forstjóri Tesla, hefur greint frá því að fyrir­tækið muni hefja fram­leiðslu á ódýrari tegund rafmagns­bíla eftir tvö ár, og hægt verði að forpanta slíka bíla í mars á næsta ári.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár