Ætla að færa hlutinn í Sjóvá út úr Síldarvinnslunni fyrir skráningu

Eign­ar­hlutur Síld­ar­vinnsl­unnar í SVN eigna­fé­lagi, stærsta eig­anda Sjóvá, verður greiddur út sem arður til eig­enda hennar áður en Síld­ar­vinnslan verður skráð á markað síðar á þessu ári. Stærstu eig­end­urnir eru Samherji og fjöl­skylda Björg­ólfs Jóhanns­sonar.

Félag í eigu Síldarvinnslunnar er stærsti einstaki eigandi Sjóvár.
Félag í eigu Síld­ar­vinnsl­unnar er stærsti ein­staki eig­andi Sjóvár. Mynd: Nasdaq Iceland

Fyrir hlut­hafa­fundi í Síld­ar­vinnsl­unni hf., sem fer fram næst­kom­andi föstu­dag, liggur til­laga um um að færa eign­ar­hlut félags­ins í SVN eigna­fé­lagi ef. yfir til hlut­hafa áður en að Síld­ar­vinnslan verður skráð á markað. Það á að gera í formi arðsút­hlut­unar í skatta­legu til­liti en hlut­hafar eiga þó einnig kost á því að fara fram á greiðslu í reiðufé að frá­dregnum fjár­magnstekju­skatti, fari þeir fram á það.

Þetta kemur fram í fund­ar­boði sem birt var á heima­síðu Síld­ar­vinnsl­unnar í lok síð­ustu viku.

Eina eign SVN eigna­fé­lags er 14,52 pró­sent hlutur í trygg­inga­fé­lag­inu Sjóvá, en félagið er stærsti eig­andi þess. Miðað við núver­andi gengi bréfa í Sjóvá er virði hlut­ar­ins tæp­lega 5,7 millj­arðar króna. SVN eigna­fé­lag er því sem næst skuld­laust miðað við síð­asta birta árs­reikn­ing.

Markaðsvirðið gæti verið allt að 100 milljarðar

Tilkynnt var um það í byrjun febr­úar að stefnt væri á skrán­ingu Síld­ar­vinnsl­unnar á markað seint í vor eða snemma í sumar. Fyr­ir­tækið er eitt stærsta sjáv­ar­út­vegs­fyr­ir­tæki lands­ins en eigið fé þess var 46 millj­arðar króna á núvirði í lok árs 2019 og miðað við að rekstr­ar­hagn­aður félags­ins á því ári var á níunda millj­arð króna má ætla að það hafi auk­ist í fyrra.

Kjarninn greindi frá því í frétta­skýr­ingu 10. febr­úar síð­ast­lið­inn að búast megi við því að mark­aðsvirði Síld­ar­vinnsl­unnar verði í kringum 100 millj­arða króna markið, sam­kvæmt sér­fræð­ingum sem rætt var við.

Þetta verður ekki í fyrsta sinn sem Síld­ar­vinnslan er skráð á mark­aði. Hún var skráð í Kauphöll um ára­tuga­skeið frá 1994 til 2004. En félagið er tölu­vert öðru­vísi, og mun stærra, nú en það var þá.

Verð­mætasta bók­færða eign félags­ins voru veiði­heim­ildir, aðal­lega í upp­sjáv­ar­teg­undum, sem voru sagðar 228,3 millj­ónir dala í lok árs 2019. Á gengi dags­ins í dag gera það um 30 millj­arðar króna. Raun­veru­legt virði þeirra heim­ilda er mun meira, lík­lega nær 80 millj­örðum króna. Sá loðnu­kvóti sem nú hefur verið úthlutað mun bæta afkomu Síld­ar­vinnsl­unnar á yfir­stand­andi ári.

Samherji stærsti eigandinn

Stærsti ein­staki eig­andi Síld­ar­vinnsl­unnar er Sam­herji hf. með 44,6 pró­sent eign­ar­hlut. Auk þess á Kald­bak­­ur, félag í eigu Sam­herja, á 15 pró­­sent hlut í öðru félagi sem á 5,3 pró­­sent hlut í Síld­­ar­vinnsl­unni. Sam­herji á því, beint og óbeint, 49,9 pró­sent í Síld­ar­vinnsl­unni. Þor­steinn Már Bald­vins­son, annar for­stjóri Sam­herja, er stjórn­ar­for­maður félags­ins. Auk þess á Síld­ar­vinnslan 0,92 pró­sent í sjálfri sér, sem þýðir að sam­an­lagður eig­in­hlutur hennar og eign­ar­hluti stærsta eig­and­ans fer nálægt 51 pró­senti.

Sam­herji Ísland ehf., félag að öllu leyti í eigu Sam­herja hf, er með næst mesta afla­hlut­­­­deild í íslenskri efna­hags­lög­­­sögu allra sjá­v­­­­ar­út­­­­­vegs­­­fyr­ir­tækja á Íslandi, eða 7,02 pró­­­­sent. ­Út­­­­­­­gerð­­­­­­­­ar­­­­­­­­fé­lag Akur­eyr­­­­­­­­ar, sem er líka í 100 pró­­­­­­­­sent eigu Sam­herja, heldur svo á 1,3 pró­­­­­­­­sent kvót­ans og Sæból fjár­­­­­­­­­­­­­­­fest­inga­­­­­­­­fé­lag, sem það sama gildir um, heldur á 0,64 pró­­­­­­­­sent hans.

Sam­an­lagt er þessi blokk Sam­herja og Síld­ar­vinnsl­unnar með að minnsta kosti 17,5 pró­­­­sent afla­hlut­­­­deild.

Gamli forstjórinn á meðal næst stærstu eigenda

Næst stærsti eig­andi Síld­ar­vinnsl­unnar er félagið Kjálka­nes ehf. Á meðal helstu hlut­hafa þess er Björgólfur Jóhanns­son, sem var þangað til fyrir skemmstu hinn for­stjóri Sam­herja, og fjöl­skylda hans. Sami hópur á einnig útgerð­ar­fé­lagið Gjög­ur, sem heldur á 2,29 pró­sent af öllum úthlut­uðum afla­heim­ild­um.

Ef sá kvóti er talin með ofan­greindu er ljóst að rétt undir fimmt­ungur (19,79 pró­sent) af öllum úthlut­uðum afla­heim­ildum lands­ins eru á höndum fyr­ir­tækja sem eru að ein­hverju leyti í eigu þeirra tveggja manna sem sátu saman í for­stjóra­stólum Samherja, þangað til að Björgólfur ákvað að hætta fyrr á þessu ári.

Báðir þessir aðilar munu selja hluti í Síld­ar­vinnsl­unni í því hluta­fjár­út­boði sem er framundan og ættu að geta leyst út margra millj­arða króna hagnað.

Verði til­lagan um að greiða eign­ar­hlut­inn í Sjóvá út til hlut­hafa sam­þykkt mun hann því að mestu renna til Samherja og Kjálka­ness.

Þriðji stærsti eig­and­inn er Sam­vinnu­fé­lag útgerð­ar­manna í Nes­kaup­stað sem á tæp­lega ell­efu pró­sent hlut. Það var stofnað árið 1932 og starfar sem eign­ar­halds­fé­lag auk þess sem það rekur versl­anir og umboðs­starf­semi. Það hefur meðal ann­ars nýtt arð­inn af eign sinni í Síld­ar­vinnsl­unni til þess að styrkja menn­ingar- og félags­mál í heima­byggð.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár