Síldarvinnslan gæti verið nálægt 100 milljarða króna virði

Stefnt er að því að Síld­ar­vinnslan, eitt stærsta sjáv­ar­út­vegs­fyr­ir­tæki lands­ins, verði skráð á hluta­bréfa­markað fyrir mitt þetta ár.

Búast má við því að mark­aðsvirði Síld­ar­vinnsl­unnar, sem til­kynnti í síð­ustu viku um fyr­ir­hug­aða skrán­ingu á markað, verði öðru hvor megin við 100 millj­arða króna, sam­kvæmt sér­fræð­ingum sem Kjarninn hefur rætt við.

Þar má meðal ann­ars horfa til þess marg­fald­ara sem er á eigið fé eina útgerð­ar­fé­lags­ins sem er skráð í Kauphöll Íslands sem stendur, Brims. Eigið fé þess var 53,5 millj­arðar króna í lok sept­em­ber síð­ast­lið­ins en mark­aðsvirðið er um 108 millj­arðar króna.

Eigið fé Síld­ar­vinnsl­unnar var um 46 millj­arðar króna á núvirði í lok árs 2019 og miðað við að rekstr­ar­hagn­aður félags­ins á því ári var á níunda millj­arð króna má ætla að það hafi auk­ist í fyrra.

Ef miðað er við að það megi marg­falda eigið fé Síld­ar­vinnsl­unnar með rúm­lega tveimur til að fá út mark­aðsvirði, líkt og er hjá Brim, má ætla að það hafi verið um 94 millj­arðar króna miðað við stöðu mála í lok árs 2019, og vaxið síðan. Þann fyr­ir­vara verður þó að hafa á þessum útreikn­ingum að Brim og Síld­ar­vinnslan eru ekki eins fyr­ir­tæki, þó þau stundi bæði veiðar og vinnslu.

Þetta verður ekki í fyrsta sinn sem Síld­ar­vinnslan er skráð á mark­aði. Hún var skráð í Kauphöll um ára­tuga­skeið frá 1994 til 2004. En félagið er tölu­vert öðru­vísi, og mun stærra, nú en það var þá.

Selja að minnsta kosti 25 prósent

Þegar um frumút­boð er að ræða á skipu­legan verð­bréfa­markað miða kaup­hallir almennt við að hlutur almennra fjár­festa í skráðu félagið verði að lág­marki að vera 25 pró­sent eftir skrán­ingu.

Ósenni­legt verður að telj­ast, í ljósi sterkrar eig­in­fjár­stöðu Síld­ar­vinnsl­unnar, að félagið sé að fara að sækja sér nýtt hlutafé. Mun senni­legra er að núver­andi hlut­hafar ætli að selja hlut af sinni eign.

Í til­kynn­ingu vegna fyr­ir­hug­aðrar skrán­ingar á heima­síðu Síld­ar­vinnsl­unnar segir ein­ungis að stjórn félags­ins telji það „vel til þess fallið að vera skrá á markað hvað stærð varðar.“ Þar var einnig haft eftir Gunnþóri Ingv­ars­syni, for­stjóra Síld­ar­vinnsl­unnar, að þessi leið sé farin til að „efla félagið og opna Síld­ar­vinnsl­una fyrir fjár­festum.“

Sé það rétt, að eig­endur Síld­ar­vinnsl­unnar séu að fara að selja hlut af eign sinni, munu þeir hagn­ast veru­lega. Félagið hefur enda vaxið hratt á skömmum tíma og er nú á meðal stærstu sjáv­ar­út­vegs­fyr­ir­tækja lands­ins.

Eigið fé Síld­ar­vinnsl­unnar var 94,6 millj­ónir dala, um tólf millj­arðar króna á núvirði, í lok árs 2010. Það var 360,5 millj­ónir dala, um 46 millj­arðar króna á núvirði, í lok árs 2019. Eigið fé Síld­ar­vinnsl­unnar hefur því nálægt fjór­fald­ast á tæpum ára­tug.

Þessi vöxtur hefur meðal ann­ars átt sér stað í gegnum miklar fjár­fest­ingar. Fyrir vikið heldur Síld­ar­vinnslan beint á um 5,2 pró­sent af öllum úthlut­uðum afla. Auk þess heldur Berg­ur-Hug­inn, sem er að öllu leyti í hennar eigu, nú á á um 2,7 pró­sent alls kvóta. Þá á Síld­­­ar­vinnslan 75,20 pró­­­sent hlut í Run­ólfi Hall­freðs­­­syni ehf., sem heldur á 0,62 pró­­­sent af úthlut­uðum kvóta.

Verð­mætasta bók­færða eign félags­ins voru veiði­heim­ildir, aðal­lega í upp­sjáv­ar­teg­undum, sem voru sagðar 228,3 millj­ónir dala í lok árs 2019. Á gengi dags­ins í dag gera það um 30 millj­arðar króna. Raun­veru­legt virði þeirra heim­ilda er mun meira, lík­lega nær 80 millj­örðum króna. Sá loðnu­kvóti sem nú hefur verið úthlutað mun bæta afkomu Síld­ar­vinnsl­unnar á yfir­stand­andi ári.

Samherjaforstjórarnir

En hverjir eru það sem munu þá selja sinn hlut fyrir tugi millj­arða króna?

Stærsti ein­staki eig­andi Síld­ar­vinnsl­unnar er Sam­herji hf. með 44,6 pró­sent eign­ar­hlut. Auk þess á Kald­bak­­ur, félag í eigu Sam­herja, á 15 pró­­sent hlut í öðru félagi sem á 5,3 pró­­sent hlut í Síld­­ar­vinnsl­unni. Sam­herji á því, beint og óbeint, 49,9 pró­sent í Síld­ar­vinnsl­unni. Þor­steinn Már Bald­vins­son, annar for­stjóri Sam­herja, er stjórn­ar­for­maður félags­ins. Auk þess á Síld­ar­vinnslan 0,92 pró­sent í sjálfri sér, sem þýðir að sam­an­lagður eig­in­hlutur hennar og eign­ar­hluti stærsta eig­and­ans fer nálægt 51 pró­senti.

Björgólfur Jóhannsson og Þorsteinn Már Baldvinsson, forstjórar Samherja, eru báðir á meðal stærstu eigenda Síldarvinnslunnar.
Björgólfur Jóhanns­son og Þor­steinn Már Bald­vins­son, for­stjórar Samherja, eru báðir á meðal stærstu eig­enda Síld­ar­vinnsl­unnar.

Sam­herji Ísland ehf., félag að öllu leyti í eigu Sam­herja hf, er með næst mesta afla­hlut­­­­deild í íslenskri efna­hags­lög­­­sögu allra sjá­v­­­­ar­út­­­­­vegs­­­fyr­ir­tækja á Íslandi, eða 7,02 pró­­­­sent. ­Út­­­­­­­gerð­­­­­­­­ar­­­­­­­­fé­lag Akur­eyr­­­­­­­­ar, sem er líka í 100 pró­­­­­­­­sent eigu Sam­herja, heldur svo á 1,3 pró­­­­­­­­sent kvót­ans og Sæból fjár­­­­­­­­­­­­­­­fest­inga­­­­­­­­fé­lag, sem það sama gildir um, heldur á 0,64 pró­­­­­­­­sent hans.

Sam­an­lagt er þessi blokk Sam­herja og Síld­ar­vinnsl­unnar með að minnsta kosti 17,5 pró­­­­sent afla­hlut­­­­deild.

Næst stærsti eig­andi Síld­ar­vinnsl­unnar er félagið Kjálka­nes ehf. Á meðal helstu hlut­hafa þess er Björgólfur Jóhanns­son, hinn for­stjóri Sam­herja, og fjöl­skylda hans. Sami hópur á einnig útgerð­ar­fé­lagið Gjög­ur, sem heldur á 2,29 pró­sent af öllum úthlut­uðum afla­heim­ild­um. Ef sá kvóti er talin með ofan­greindu er ljóst að rétt undir fimmt­ungur (19,79 pró­sent) af öllum úthlut­uðum afla­heim­ildum lands­ins eru á höndum fyr­ir­tækja sem eru að ein­hverju leyti í eigu þeirra tveggja manna sem sitja í for­stjóra­stólum Sam­herja.

Við­mæl­endur Kjarnans segja nokkuð víst að báðir þessir aðilar, Samherji og Kjálka­nes, hafi hug á að selja hlut í Síld­ar­vinnsl­unni í hluta­fjár­út­boð­inu sem framundan er.

Þriðji stærsti eig­and­inn er Sam­vinnu­fé­lag útgerð­ar­manna í Nes­kaup­stað sem á tæp­lega ell­efu pró­sent hlut. Það var stofnað árið 1932 og starfar sem eign­ar­halds­fé­lag auk þess sem það rekur versl­anir og umboðs­starf­semi. Það hefur meðal ann­ars nýtt arð­inn af eign sinni í Síld­ar­vinnsl­unni til þess að styrkja menn­ingar- og félags­mál í heima­byggð.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

kauphöll

Mest lesið undanfarið ár