„Við erum ýmsu vön hér á hjara veraldar“

For­sæt­is­ráð­herra segir að hvetja þurfi til einka­fjár­fest­ingar og að stjórn­völd muni tryggja með jákvæðum hvötum að kraftur hennar styðji við græna umbreyt­ingu, kolefn­is­hlut­leysi og sam­drátt gróð­ur­húsa­loft­teg­unda.

Katrín Jakobsdóttir, forsætisráðherra.
Katrín Jak­obs­dóttir, for­sæt­is­ráð­herra. Mynd: Skjáskot/Alþingi

Katrín Jak­obs­dóttir for­sæt­is­ráð­herra hélt stefnu­ræðu á Alþingi í kvöld en þar sagði hún að fjár­mála­á­ætl­unin sem dreift var í dag sýndi stað­fastan vilja stjórn­valda til að verja þann árangur sem náðst hefði í upp­bygg­ingu heil­brigðis- og vel­ferð­ar­kerfis og nýja sókn í menntun, rann­sóknum og nýsköpun.

Í fjár­fest­inga­átaki stjórn­valda væru fjöl­breyttar fjár­fest­ingar; sam­göngu­mann­virki, bygg­ingar, þekk­ing­ar­greinar, skap­andi greinar og grænar fjár­fest­ingar. Rík­is­sjóði yrði beitt af fullum þunga til að skapa við­spyrnu fyrir almenn­ing og atvinnu­líf í land­inu.

„Þetta verður græn við­spyrna. Hvetja þarf til einka­fjár­fest­ingar og stjórn­völd munu tryggja með jákvæðum hvötum að kraftur hennar styðji við græna umbreyt­ingu, kolefn­is­hlut­leysi og sam­drátt gróð­ur­húsa­loft­teg­unda. Einnig við hátækni og þekk­ing­ar­iðnað sem verður mik­il­væg stoð í efna­hags­lífi fram­tíðar. Þessi eru líka áherslu­at­riði stjórn­valda í nýjum mark­á­ætl­unum á sviði vís­inda og tækni,“ sagði hún enn fremur.

2020 getur tæpast talist viðburðalítið

For­sæt­is­ráð­herra hóf ræð­una með því að benda á að árið 2020 yrði tæp­ast talið við­burða­lítið í Íslands­sög­unni. „Óveður, jarð­hrær­ingar, snjó­flóð og að lokum það smæsta en þó rúm­frekasta í lífi okkar allra – kór­ónu­veiran sjálf – orðin eins og þaul­sæt­inn ætt­ingi í ferm­ing­ar­veislu sem átti að vera lokið. Eins og Albert Camus orð­aði það í sinni frægu sögu, Plágunni:

„Drepsóttir og styrjaldir koma fólkinu ávallt jafnmikið á óvart. Plágan fer út fyrir ímyndun mannsins, menn segja því að hún sé óraunveruleg, vondur draumur sem líði hjá. En hún líður ekki ævinlega hjá.“

Katrín sagði að þessi ganga ætl­aði að verða löng og ekki sæi alveg fyrir end­ann á henni. Það væri jafnan það sem gerði göngu­ferðir erf­iðar – að vita ekki alveg hve mikið væri eftir. „Eitt vitum við þó, þessu lýkur, og ég veit að okkur mun takast að færa líf okkar í betra horf.“

Framundan er tími endurreisnar

Íslend­ingum hefur, að mati Katrínar, tek­ist að fást við far­ald­ur­inn án þess að þurfa að grípa til jafn harka­legra aðgerða og í flestum nágranna­lönd­unum. Met­fjöldi hefði ferð­ast inn­an­lands í sumar og margir heim­sótt staði á land­inu sem þeir hefðu aldrei komið á áður – umræðu­efni kaffi­tím­ans á fjöl­mörgum vinnu­stöðum hefðu verið áfanga­staðir eins og Stuðla­gil og Græni-hryggur, Stórurð og Látra­bjarg.

„Margoft í þessum far­aldri hef ég verið stolt sem mann­eskja af því að til­heyra sam­fé­lagi þar sem leið­ar­stefið hefur verið að treysta hvert öðru og standa saman. Það gat aldrei orðið auð­velt að ganga í gegnum slíkan far­aldur, og við höfum ekki yfir­stigið alla erf­ið­leika. En það eru for­rétt­indi að búa í slíku sam­fé­lagi.

Þegar fyrsta smitið barst til Íslands ákváðu stjórn­völd að gera það sem þyrfti, og frekar meira en minna, til að koma sam­fé­lag­inu í gegnum þann mikla efna­hags­lega skell sem leiðir af far­aldr­inum. Við gripum sam­stundis inn í með efna­hags­að­gerðum til að tryggja afkomu fólks og styðja við almenn­ing og atvinnu­líf í gegnum erf­iða tíma. Framundan er tími end­ur­reisnar þar sem við munum efla opin­bera fjár­fest­ingu, verja vel­ferð og beita til þess krafti rík­is­fjár­mál­anna,“ sagði hún.

Ánægjulegt að aðilar vinnumarkaðarins sýndu þá ábyrgð að segja ekki upp samningum

Þá telur Katrín Íslend­inga njóta þess að hafa búið í hag­inn. Hún sagði að staða þjóð­ar­bús­ins væri sterk, skuldir hefðu verið greiddar niður og Seðla­bank­inn réði yfir öfl­ugum gjald­eyr­is­vara­forða. Pen­inga­stefnan hefði skilað lægstu vöxtum lýð­veld­is­sög­unnar. Mikil sam­vinna stjórn­valda og aðila vinnu­mark­að­ar­ins um bætt sam­skipti á vinnu­mark­aði hefði skilað marg­vís­legum árangri, til að mynda stofnun nýs þjóð­hags­ráðs og kjara­töl­fræði­nefndar.

Hún nefndi jafn­framt þær aðgerðir sem stjórn­völd kynntu í vik­unni. „Þar fara saman aðgerðir sem ætlað er að auka umsvif, fjölga störfum en stuðla um leið að grænni umbreyt­ingu og auk­inni fjöl­breytni í íslensku atvinnu­lífi. Það er ánægju­legt að aðilar vinnu­mark­að­ar­ins sýndu þá ábyrgð að segja ekki upp samn­ingum og halda frið­inn á vinnu­mark­aði. Þar með getum við sam­hent snúið okkur að stóru áskor­un­inni sem er að skapa störf og tryggja að atvinnu­leysi verði ekki langvar­andi böl í sam­fé­lagi okkar,“ sagði hún.

Sérstaklega þarf að huga að ólíkum afleiðingum faraldursins á karla og konur

„Þegar heims­sagan er skoðuð reyn­ast far­aldrar á borð við þann sem enn geisar iðu­lega valda auknum ójöfn­uði í heim­inum. Þeim mun mik­il­væg­ara er að tryggja jöfnuð og félags­legt rétt­læti í þessum ham­förum. Á þeirri braut erum við nú; rétt­lát­ara skatt­kerfi var lög­fest hér í fyrra og nú um ára­mót munu skattar lækka á tekju­lægri hópa. Við höfum ákveðið að lengja fæð­ing­ar­or­lof og í vetur mun Alþingi glíma við hvernig staðið skuli að skipt­ingu þess milli for­eldra,“ sagði Katrín.

Sér­stak­lega þyrfti að huga að ólíkum afleið­ingum far­ald­urs­ins á karla og konur en sjá mætti merki þess að heim­il­is­of­beldi hefði auk­ist um allan heim og þar væri Ísland engin und­an­tekn­ing. Þess vegna hefði ein af fyrstu aðgerðum rík­is­stjórn­ar­innar verið að styrkja Kvenna­at­hvarfið og ráð­ist hefði verið í mark­vissa vit­und­ar­vakn­ingu um þetta sam­fé­lags­mein.

„Til að auka jöfnuð höfum við eflt félags­lega hús­næð­is­kerfið og aukið mögu­leika tekju­lægri hópa á að eign­ast hús­næði. Í vetur munum við takast á við að bæta rétt­ar­stöðu leigj­enda og draga úr vægi verð­trygg­ingar í hús­næð­is­lána­kerf­inu. Við höfum dregið úr kostn­aði sjúk­linga í heil­brigð­is­kerf­inu og eflt þjón­ust­una, ekki síst á sviði geð­heil­brigð­is­mála. Við höfum stór­eflt heilsu­gæsl­una um land allt og hafið bygg­ingu nýs Land­spít­ala við Hring­braut. Alþingi sam­þykkti sér­stakar ráð­staf­anir til að koma til móts við tekju­lægri hópa aldr­aðra og við drógum úr skerð­ingum á greiðslum til örorku­líf­eyr­is­þega.

Framundan eru síðan stór verk­efni til að vinna gegn kenni­tölu­flakki og félags­legum und­ir­boðum. Dregin verður varn­ar­lína um fjár­fest­ing­ar­banka­starf­semi í fjár­mála­kerf­inu. Frumvarp um laga­stoð gegn umsát­ursein­elti og end­ur­skoðuð jafn­rétt­islög verða lögð fram, eins ný ákvæði sem styrkja stöðu barna með ódæmi­gerð kynein­kenni í því skyni að efla enn lagaum­hverfið í þágu hinsegin fólks. Staða fylgd­ar­lausra barna á flótta verður end­ur­skoðuð sem og aðferða­fræði við hags­muna­mat barna sem hingað koma í leit að skjóli,“ sagði hún.

Vonar að þingið standist prófið

Stjórn­ar­skráin bar á góma í ræðu for­sæt­is­ráð­herra en hún sagði að Alþingi fengi tæki­færi þennan vetur til að takast á við ýmis ákvæði í stjórn­ar­skrá, meðal ann­ars ákvæði um að auð­lindir sem ekki eru háðar einka­eign­ar­rétti yrði þjóð­ar­eign.

„Um þetta hefur verið deilt hér á Alþingi allt frá því snemma á sjö­unda ára­tug 20. aldar. Þingmenn úr ólíkum flokkum hafa tekið þetta mál upp og gert að sínu. Og nú fær Alþingi tæki­færi til að stíga þetta skref og setja slíkt ákvæði, skýrt og knappt, inn í stjórn­ar­skrá til að tryggja rétt­læti til fram­tíðar. Ásamt fleiri ákvæðum um umhverfis- og nátt­úru­vernd, íslenska tungu og íslenskt tákn­mál, for­seta og fram­kvæmda­vald, þjóð­ar­at­kvæða­greiðslur og þjóð­ar­frum­kvæði. Alþingi getur ákveðið að nýta þetta tæki­færi til að sýna hvernig þessi sam­kunda tekst á við stór og mik­il­væg mál. Alþingi getur ákveðið að breyta stjórn­ar­skrá með skyn­sam­legum hætti með almanna­hags­muni að leið­ar­ljósi.

Alþingi getur ákveðið að stand­ast þetta mik­il­væga próf og eiga efn­is­lega umræðu um þessi mál fremur en að fest­ast í hjól­förum lið­inna ára og ára­tuga. Við höfum nefni­lega frá­bært tæki­færi til að horfa til fram­tíðar og taka góðar ákvarð­anir fyrir kom­andi kyn­slóðir.“

Örlög hvers og eins skipta máli

Katrín sagði enn fremur að Íslend­ingar byggju í sterku sam­fé­lagi. Sam­fé­lagi þar sem örlög og saga allra væru sam­tvinnuð en þó væru örlög hvers og eins sér­stök. Og þó að hlut­verk stjórn­mála­manna væri fyrst og fremst að hugsa um sam­fé­lagið sem heild þá skipti máli að hugsa um örlög hvers og eins. Ákvarð­an­irnar sner­ust um heild­ar­hags­muni en áhrifa þeirra gætti hjá ein­stak­lingum sem hver fyrir sig eða með öðrum reyndu að fá það besta út úr líf­inu.

„Hugsið bara um unga parið sem sér núna fram á að geta varið meiri tíma með nýfæddu barni sínu af því að við sam­þykktum að lengja fæð­ing­ar­or­lof. Ungi pilt­ur­inn sem ég hitti um dag­inn sem hafði fæðst í lík­ama stúlku og var núna búinn að segja öllum frá því að hann væri drengur og leið vel með það af því að nú fjalla lögin ekki lengur um „kynátt­un­ar­vanda“ heldur sam­þykkti Alþingi lög um kyn­rænt sjálf­ræði.

Vís­inda­menn sem hafa þurft að berj­ast fyrir hverri krónu til að geta stundað rann­sóknir sínar en hafa nú betri mögu­leika á að sinna þekk­ing­ar­leit sinni, sam­fé­lag­inu öllu til hags­bóta, vegna þess að við höfum ákveðið að stór­auka fram­lög til grunn­rann­sókna og þró­unar. Frum­kvöðlar sem sjá mögu­leika á að nýsköp­un­ar­fyr­ir­tækin þeirra geti vaxið enn frekar með bættum stuðn­ingi við nýsköpun því að Alþingi sam­þykkti hærri end­ur­greiðslur og Alþingi sam­þykkti nýsköp­un­ar­sjóð­inn Kríu. Tekju­lágt ungt fólk sem nú á færi til að kaupa sér eigið hús­næði með nýjum hlut­deild­ar­lánum, af því að við hér inni sam­þykktum einmitt að skapa það færi.

Ábyrgð­ar­menn­irnir sem fengu bréf um að þeir væru ekki lengur ábyrgð­ar­menn á náms­lánum sem höfðu nagað þá árum og ára­tugum saman – því að Alþingi ákvað að afnema ábyrgðir á náms­lánum. Öll þau sem hafa barist fyrir því að auka skiln­ing á mik­il­vægi ósnort­innar nátt­úru og sáu Detti­foss og alla hans félaga í Jökulsá á Fjöllum frið­lýstan í takt við ákvörðun Alþingis um að skipa Jökulsá á Fjöllum í vernd­ar­flokk,“ sagði hún.

Ólíkar hugmyndir geta styrkt hver aðra eða kveikt nýjar

Þá benti Katrín á að allt sem ger­ist í Alþing­is­hús­inu snerti örlög fólks. „Og hlut­verk okkar allra er að gera sam­fé­lagið betra, fjöl­breytt­ara og jafn­ara þannig að fleiri fái notið sín, fleiri fái þroskað hæfi­leika sína og fleiri fái upp­fyllt drauma sína.

Nú eru kosn­ingar framundan á næsta ári og lesa má kunn­ug­lega spá­dóma um að allt muni nú leys­ast upp í karp um keis­ar­ans skegg. Allt verði hér und­ir­lagt í hefð­bundnum átökum um völd undir nei­kvæð­ustu for­merkjum stjórn­mála­á­taka. En gleymum því ekki heldur að á bak við átökin og skoð­ana­skiptin eru ólíkar stefnur og hug­myndir. Þessar ólíku hug­myndir geta styrkt hver aðra eða kveikt nýjar. Hug­mynd­irnar eru það sem gerir sam­fé­lagið okkar að því sem það er. Á bak við átökin eru mann­eskjur með sann­fær­ingu og hug­sjónir sem hver og ein vill vinna að betra sam­fé­lagi. Og ég trúi því að okkur muni áfram lán­ast að vinna að því að gera sam­fé­lagið betra fyrir hvern og einn.

Þó að far­ald­ur­inn hafi reynst erf­iður þá er bjart framundan. Við erum ýmsu vön hér á hjara ver­aldar. Við þekkjum það úr sög­unni að í íslensku sam­fé­lagi býr kynn­gi­kraftur og með þeim krafti munum við spyrna okkur sterk­lega frá botni. Þetta mun allt saman fara vel,“ sagði hún að lokum.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Covid-19

InnlentCovid-19

Hóp­sýk­ing greind­ist eftir þorra­blót í Brúarási – Guðrún Haf­steins­dóttir meðal gesta

Enn ein mat­ar­sýk­ing er komin upp eftir þorra­blót en í þetta sinn er það eftir blót sem haldið var í Brúarási í Jök­ulsár­hlíð á Fljóts­dals­hér­aði á laug­ar­dag­inn. Guðrún Haf­steins­dóttir, for­manns­efni Sjálf­stæð­is­flokks­ins sótti blótið. Samkvæmt Aust­ur­frétt eru Heil­brigð­is­eft­ir­lit Aust­ur­l­ans (HAUST) og Heil­brigð­is­stofnun Aust­ur­lands (HSA) að vinna að því að rekja upp­runa mat­ar­sýk­ingar sem upp kom á þorra­blóti í Brúarási á laug­ar­dags­kvöld....

Mest lesið

1
Innlent

Hætta á að lánin hækki þó íbúða­verð lækki

Már Wolfgang Mixa hag­fræði­pró­fessor segir að stór hluti eigin fjár íbúða­eig­enda gæti þurrkast út á kom­andi mán­uðum. Verð­tryggðar fast­eigna­skuldir hækki í verð­bólgu­tíð sam­hliða því að íbúða­verð gæti lækkað. Hann leggur til að verð­tryggð hús­næð­is­lán fylgi íbúða­verði en ekki vísi­tölu neyslu­verðs. Þá myndu bank­arnir bera hluta áhætt­unnar.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár