Mynd: Bára Huld Beck

Útgjöld aukin, tekjur lækka og niðurstaðan er 533 milljarða króna halli á tveimur árum

Stjórn­völd ætla ekki að skera niður eða hækka skatta til að takast á við yfir­stand­andi kreppu vegna kór­ónu­veiru­far­ald­urs­ins. Í fjár­laga­frum­varpi næsta árs kemur fram að tekjur og gjöld verði nán­ast þau sömu og áætlað er að þau verði í ár.

Halli á rekstri rík­is­sjóðs í ár verður 269,2 millj­arðar króna. Það er mesti halli sem nokkru sinni hefur verið á rekstri hans. Fjárlög fyrir árið 2020 gerðu ráð fyrir tíu millj­arða króna halla þegar þau voru sam­þykkt í nóv­em­ber 2019.

Á næsta ári verður staðan nán­ast sú sama. Áætlaður halli er 264,2 millj­arðar króna. Á tveimur árum verða tekjur rík­is­sjóðs því 533,4 millj­örðum krónum lægri á árunum 2020 og 2021 en útgjöld hans. Þessi munur verður fjár­magn­aður með lán­tökum.

Til sam­an­burðar má nefna að hall­inn á rekstri rík­is­sjóðs árið 2008, þegar banka­hrunið varð, nam 194 millj­örðum króna. Mesti tekju­af­gangur sög­unnar varð árið 2016, þegar að tekjur voru 302 millj­örðum króna meiri en útgjöld í kjöl­far þess að slitabú fall­inna fjár­mála­fyr­ir­tækja greiddu stöð­ug­leika­fram­lög í rík­is­sjóð.

Ástæðan blasir við öllum: kór­ónu­veiru­far­aldur sem er að valda mesta sam­drætti í heila öld út um allan heim.

Staða sem getur leitt af sér aukinn ójöfnuð

Hér­lendis mun hann leiða til þess að 7,6 pró­sent sam­dráttur verður í ár, sam­kvæmt nýrri þjóð­hags­spá Hagstofu Íslands sem birt­ist í morgun. Þar munar mestu um 30 pró­sent minni útflutn­ings­tekjur. Þorri þess sam­dráttar er vegna þess að ferða­þjón­usta, sem var orðin sú stoð undir hag­kerf­inu sem skap­aði mestar útflutn­ings­tekjur, hefur nær lam­ast vegna far­ald­urs­ins, en sam­dráttar gætir líka í hinum tveimur útflutn­ings­stoð­unum, sjáv­ar­út­vegi og áli sem er fram­leitt fyrir íslenska raf­orku.

Fyrir almenn­ing í land­inu fram­kallar þessi staða mikla erf­ið­leika fyrir hluta þjóð­ar­innar, sér­stak­lega þá sem missa vinn­una eða treysta á tekjur þeirra. Vinnu­mála­stofnun spáir því að atvinnu­leysi verði komið upp í 10,2 pró­sent í lok þessa mán­aðar og þá verða á þriðja tug þús­und manns án atvinnu.

Eins snúið og það hljómar þá batnar hins vegar hagur margra ann­arra sem missa ekki vinn­una. Kaup­mátt­ar­aukn­ing hefur mælst umtals­verð und­an­farið rúmt ár, eða 4,8 pró­sent, og stýri­vextir hafa lækkað niður í sögu­legar lægðir, eða eitt pró­sent. Fyrir vikið hefur láns­fjár­magn, til dæmis til hús­næð­is­kaupa, orðið ódýr­ara. Sú hætta er því til staðar að yfir­stand­andi kreppa muni auka ójöfnuð. Sér­stak­lega ef hún stendur yfir í lengri tíma.

Tekjur og gjöld stöðug milli ára

Fjárlög rík­is­stjórn­ar­innar fyrir næsta ár, sem Bjarni Bene­dikts­son, fjár­mála- og efna­hags­ráð­herra kynnti í morgun, bera þess eðli­lega merki að vera að öllu leyti sniðin að bar­átt­unni gegn áhrifum kór­ónu­veiru­far­ald­urs­ins. Fyrir liggur að það á ekki að hækka skatta til að takast á við stöð­una né heldur að ráð­ast í stór­felldan nið­ur­skurð, heldur að taka lán til að fleyta hag­kerf­inu í gegnum það sem vonir standa til að verði skamm­vinn nið­ur­sveifla. Þær vonir birt­ast meðal ann­ars í því að Hag­stofan spáir 3,9 pró­sent hag­vexti strax á næsta ári. Sú spá hlýtur þó að byggja á þeim for­sendum að bólu­efni við veirunni sem veldur COVID-19 sjúk­dómnum verði til­búið á næsta ári og að það tak­ist að dreifa því víða hratt.

Tekjur rík­is­sjóðs í ár eru áætl­aðar 769 millj­arðar króna en útgjöld 1.038 millj­arðar króna. Fjár­laga­frum­varp næsta árs gerir ráð fyrir að tekj­urnar auk­ist um rúma þrjár millj­arða króna milli ára en að gjöldin lækki um tæpa tvo millj­arða króna.

Semsagt mjög svipuð staða sem end­ur­spegl­ast í því að hall­inn á rekstri rík­is­sjóðs er áætl­aður nán­ast sá sami á báðum árunum.

Útgjöld vegna atvinnuleysis 50 milljarðar

Í fjár­laga­frum­varp­inu kemur fram að bein efna­hags­leg áhrif far­ald­urs­ins geri það að verkum að afkoma rík­is­sjóðs versni um 192 millj­arða króna. Þar vegi sam­dráttur skatt­tekna vegna minni umsvifa mestu, en hann er áætl­aður 89 millj­arðar króna. Til við­bótar við þann sam­drátt bæt­ast þær aðgerðir sem stjórn­völd hafa gripið til vegna kór­ónu­veiru­far­ald­urs­ins, og fela meðal ann­ars í sér tíma­bundna lækkun á sköttum og end­ur­greiðslu á virð­is­auka­skatti.

Brotthvarf ferðamanna vegna kórónuveirufaraldursins er lykilbreyta í því að atvinnuleysi hérlendis stefnir í methæðir.
Brott­hvarf ferða­manna vegna kór­ónu­veiru­far­ald­urs­ins er lyk­il­breyta í því að atvinnu­leysi hér­lendis stefnir í met­hæðir.

Útgjöld aukast líka. Þegar fjár­lög fyrir árið 2020 voru sam­þykkt fyrir tæpu ári var reiknað með að þau yrðu 919 millj­arðar króna. Í ár stefnir hins vegar, líkt og áður sagði, í að þau verði 1.038 millj­arðar króna, eða 119 millj­arða króna frá því sem lagt var upp með. Stóru lið­irnir þar eru útgjöld vegna mót­væg­is­að­gerða vegna far­ald­urs­ins, meðal ann­ars greiðsla á beinum styrkjum, auk­inn kostn­aður vegna greiðslu atvinnu­leys­is­bóta og flýt­ing á fram­kvæmda­verk­efnum hins opin­bera.

Þessi útgjalda­aukn­ing heldur áfram á næsta ári þar sem gert er ráð fyrir að atvinnu­leys­is­bætur hækki alls um 23 millj­arða króna og verði 50 millj­arðar króna. Útgjöld vegna ýmissa mót­væg­is­að­gerða eru áætluð um 35 millj­arðar króna. en þar má nefna fjár­fest­ingar- og upp­bygg­ing­ar­á­tak, efl­ingu háskóla- og fram­halds­skóla­stigs til að bregð­ast við atvinnu­leysi og auknar end­ur­greiðslur vegna rann­sókna- og þró­unar.

Þá er gert ráð fyrir að arð­greiðslur rík­is­sjóðs lækki um 27 millj­arða króna. Þær koma frá fyr­ir­tækjum í eigu rík­is­ins, aðal­lega Lands­bank­anum, Íslands­banka og Lands­virkjun.

Koma á böndum á skuldasöfnun á næstu árum

Samhliða fram­lagn­ingu fjár­laga­frum­varps­ins var kynnt fjár­mála­á­ætlun fyrir árin 2021-2025. Í henni kemur fram að helsta áskor­unin verði að snúa við miklum halla­rekstri og koma böndum á skulda­söfnun. Í til­kynn­ingu frá fjár­mála- og efna­hags­ráðu­neyt­inu vegna þessa segir að við aðstæður sem þessar feli „halla­rekst­ur­inn ekki í sér þjóð­hags­legt tap. Fénu er varið til að styrkja fjár­hags­lega stöðu ein­stak­linga og fyr­ir­tækja og til að koma í veg fyrir að verð­mæti og störf tap­ist með var­an­legum hætti. Mark­miðið er að styðja við og örva hag­kerfið svo að út úr lægð­inni komi sam­keppn­is­hæft þjóð­fé­lag þar sem vel­sæld bygg­ist á öfl­ugum mannauði og kröft­ugu efna­hags­lífi.“

Vegna þess mikla halla sem verður á rekstri rík­is­sjóðs á árunum 2020 og 2021 er búist við að skuldir hins opin­bera fari úr því að vera 28 pró­sent af vergri lands­fram­leiðslu í lok síð­asta árs í 48 pró­sent í lok árs 2021. Gert er ráð fyrir að skulda­söfn­unin stöðv­ist við 59 pró­sent af vergri lands­fram­leiðslu árið 2025 og taki svo að lækka á grunni hag­vaxt­ar­getu sem lögð er til grund­vallar í fjár­mála­á­ætl­un­inni.

Rík­is­stjórnin, sem á innan við ár eftir af stjórn­ar­setu sinni, telur mik­il­vægt að sett verði „skýrt og raun­hæft stefnumið um að stöðva hækkun á skuldum hins opin­bera sem hlut­fall af lands­fram­leiðslu eigi síðar en á loka­ári fjár­mála­á­ætl­un­ar­innar og rjúfa með því víta­hring halla­rekst­urs og skulda­söfn­unar til að end­ur­heimta styrka fjár­hags­stöðu hins opin­bera.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Covid-19

InnlentCovid-19

Hóp­sýk­ing greind­ist eftir þorra­blót í Brúarási – Guðrún Haf­steins­dóttir meðal gesta

Enn ein mat­ar­sýk­ing er komin upp eftir þorra­blót en í þetta sinn er það eftir blót sem haldið var í Brúarási í Jök­ulsár­hlíð á Fljóts­dals­hér­aði á laug­ar­dag­inn. Guðrún Haf­steins­dóttir, for­manns­efni Sjálf­stæð­is­flokks­ins sótti blótið. Samkvæmt Aust­ur­frétt eru Heil­brigð­is­eft­ir­lit Aust­ur­l­ans (HAUST) og Heil­brigð­is­stofnun Aust­ur­lands (HSA) að vinna að því að rekja upp­runa mat­ar­sýk­ingar sem upp kom á þorra­blóti í Brúarási á laug­ar­dags­kvöld....

Mest lesið undanfarið ár