Umsjónarmaður sóttvarnarhússins segir gesti Gistiskýlisins eiga skilið betra úrræði

Ungir, heimilis­lausir karlar sem glíma við fíkni­vanda hafa þurft að sækja sóttvarnar­húsið eftir covid-smit í Gistiskýlinu á Granda. Gylfi Þór Þorsteinsson, umsjóna­maður sóttvarnar­hússins, segir gest úr gistiskýlinu hafa gengið úr húsinu og þar með brotið sóttkví. Hann segir ennfremur að þessir aðilar gætu hlotið betri þjónustu annars staðar.

Gylfi Þór Þorsteinsson, umsjóna­maður sóttvarna­hússins á Rauðarár­stíg, segir að gestir gistiskýlisins á Granda eigi skilið betra úrræði en að vera í húsi sem getur ekki sinnt þeim. Gistiskýlinu, sem er neyðar­hýsing fyrir heimilis­lausa karla undir þrítugu, var lokað í fyrrardag vegna covid-smits. Það þýðir að hópur heimilis­lausra manna, sem sumir eru í neyslu, hafa þurft að sækja hýsingu í sóttvarnar­húsið á Rauðarár­stíg ásamt öðrum í sóttkví án athvarfs.

Gestur Gistiskýlisins á Granda, sem dvelur nú í sóttkví í sóttvarna­húsinu á Rauðarár­stíg, gekk út úr húsinu í gær eftir að hafa átt í orða­skiptum við starfs­menn hússins í gær. 

Starfs­menn hússins gerðu þá lögreglu viðvart sem fann hann skömmu síðar nálægt sóttvarnar­húsinu. Aðilinn sem um ræðir samþykkti svo sjálfur að snúa til baka og halda sig í sóttkví. 

„Það voru ekki átök sem slík“

Gylfi Þór Þorsteinsson segir í samtali við Stundina að ekki sé rétt að um átök hafi verið að ræða eins og kom fram í dagbók lögreglu. „Það voru ekki átök sem slík. Þetta er eitthvað sem dagbók lögreglu setur fram, en það voru ekki slagsmál, það var enginn sem meiddist eða neitt slíkt.“

Hann segir aðilann sem gekk út hafa verið ósáttann við að fá ekki að vera frjáls ferða sinna og þar af leiðandi ekki getað nálgast þau vímuefni sem hann teldi sig þarfnast.

Hann segir að aðilinn hafi gengið út því ekki sé hægt að neyða neinn til að vera í sóttkví, þó svo að það séu ákveðin tilmæli að fólk virði þær reglur sem um sóttkví gilda. „Þessi einstaklingur virti það ekki. Það var talað við hann á þeim stað sem hann náðist og hann fenginn til að koma til baka og hefur verið til fyrir­myndar síðan.“

Gylfi segir starfs­menn Sóttvarnar­hússins koma til móts við gesti Gistiskýlisins með öllum þeim tiltæku ráðum sem til eru. „Sumt tekur lengri tíma,“ segir hann þá. „Við erum með fíknigeðdeildina okkur til aðstoðar sem veitir þeim viðeigandi meðferð. Í þesssu tilfelli kemur inn stór hópur manna með mismun­andi sögu og þarfir sem tekur tíma að vinna í.“

Aðspurður hvort þessi hópur þurfi sérúrræði svarar hann játandi. „Þeir þurfa meiri umönnun en við getum veitt þeim. Við erum með full hús nú þegar. Þessi hópur þarf alla þá aðstoð sem hægt er að veita þeim. Spurningin er sú hvort það sé betra fyrir þessa einstaklinga að þessi aðstoð verði veitt annarsstaðar en hér,“ segir hann og bætir síðan við að ef húsið væri ekki fullt væri líklega hægt að veita þeim betri þjónustu.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.
Tengdar greinar

Covid-19

InnlentCovid-19

Hópsýking greindist eftir þorrablót í Brúarási – Guðrún Hafsteins­dóttir meðal gesta

Enn ein matar­sýking er komin upp eftir þorrablót en í þetta sinn er það eftir blót sem haldið var í Brúarási í Jökulsár­hlíð á Fljótsdals­héraði á laugar­daginn. Guðrún Hafsteins­dóttir, formanns­efni Sjálfstæðis­flokksins sótti blótið. Samkvæmt Austur­frétt eru Heilbrigðis­eftirlit Austurlans (HAUST) og Heilbrigðis­stofnun Austur­lands (HSA) að vinna að því að rekja uppruna matar­sýkingar sem upp kom á þorra­blóti í Brúarási á laugardags­kvöld....

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár