Segir það alrangt að forgangsraðað hafi verið í þágu þeirra með mestu fjármunina

Fjármála- og efna­hags­ráð­herra segir að for­gangs­raðað hafi verið í þágu þeirra sem minnst höfðu fram að bjóða í hluta­bréfa­út­boði Íslands­banka. Þing­flokks­for­maður Sam­fylk­ing­ar­innar er ekki sam­mála.

Bjarni Benediktsson, fjármála- og efnahagsráðherra.
Bjarni Bene­dikts­son, fjár­mála- og efna­hags­ráð­herra. Mynd: Bára Huld Beck

Oddný Harð­ar­dóttir þing­flokks­for­maður Sam­fylk­ing­ar­innar og Bjarni Bene­dikts­son fjár­mála- og efna­hags­ráð­herra ræddu sölu rík­is­ins á hlut í Íslands­banka í óund­ir­búnum fyr­ir­spurna­tíma á Alþingi í dag.

„Ekki er furða að þátt­taka í útboð­inu hafi verið afbragðs­góð, enda verið að gefa hluta af arð­bærri eign. Fjár­festar fengu eign almenn­ings að gjöf og það er ekk­ert annað en banka­gjöf að selja hluti bank­ans á und­ir­verði sem kaup­endur seldu svo á rúm­lega fullu verði örfáum dögum síðar,“ sagði Oddný. Ráð­herr­ann sagði að í umræð­unni sæist í „vinstri vanga“ Sam­fylk­ing­ar­innar.

Þing­mað­ur­inn hóf mál sitt á þingi í dag með því að segja að salan á 35 pró­senta hlut rík­is­ins í Íslands­banka hefði verið gagn­rýnd harð­lega. Rík­is­stjórnin hefði með söl­unni boðið rík­ustu Íslend­ing­unum og erlendum fjár­fest­ing­ar­sjóðum til veislu á kostnað almenn­ings.

„Arfavitlaus“ fjármálastjórn að selja banka á undirverði

Oddný sagði enn fremur að fjár­mála- og efna­hags­ráð­herra hefði ákveðið að selja banka á und­ir­verði, banka sem gefið hefði millj­arða í rík­is­sjóð und­an­farin ár og styrkt þannig vel­ferð­ar­sam­fé­lagið. „Það er arfa­vit­laus fjár­mála­stjórn að selja banka á und­ir­verði til að greiða niður skuldir á lágum vöxtum. Í eig­enda­stefnu rík­is­ins segir um sölu banka að gæta þurfi að lang­tíma­hags­munum rík­is­sjóðs og stuðla eigi að heil­brigðu eign­ar­haldi til lengri tíma.“

Spurði hún hvort ekki væri aug­ljóst að fjár­mála­ráð­herra hefði mis­tek­ist að laða að bank­anum heppi­lega bak­hjarla með áhuga fyrir lang­tíma­banka­rekstri og þjón­ustu við íslenska við­skipta­vini, sterka bak­hjarla sem kynnu banka­rekstur líkt og lagt væri til í hvít­bók sem rík­is­stjórnin sjálf hefði látið gera sem und­an­fara söl­unnar.

Vísaði hún í grein Ásgeirs Brynjars Torfa­sonar, dokt­ors í fjár­málum, sem birt­ist í Vís­bend­ingu í síð­ustu viku þar sem hann spurði hver hagur íslenskra við­skipta­vina bank­anna, líf­eyr­is­sjóð­anna eða íslenska fjár­mála­mark­að­ar­ins væri yfir höfuð af því að þjóð­ar­sjóður Abú Dabí eða kon­ungs­ríki Sádi-Arabíu gæti komið hingað til lands og náð 20 til 25 pró­senta ávöxtun á einni viku. „Getur hæst­virtur ráð­herra svarað því? Og gróð­inn er allur á kostnað almenn­ings vegna ákvörð­unar hæst­virts ráð­herra og rík­is­stjórn­ar­innar að selja banka á und­ir­verði.“

Hafa beitt markaðinum til þess að fá endanlegt verð

Bjarni svar­aði og sagði að menn keppt­ust nú við að útskýra fyrir þeim að „við höfum selt banka á of lágu verði sem sögðu að ekki væri hægt að selja bank­ann vegna þess að ekki myndi fást nægi­lega hátt verð. Þetta er fólkið sem allt lagð­ist gegn því af þeim ástæðum að aðstæður byðu ekki upp á það. En við héldum okkar striki og sýndum fram á að eft­ir­spurnin var næg og hún var mikil og við náðum okkar helstu mark­miðum með því að fá hluta­bréf í Íslands­banka skráð.“

Vildi hann minna á að rík­is­stjórn sem hann átti aðild að hefði á sínum tíma tekið Íslands­banka af kröfu­höf­unum án end­ur­gjalds. „Nú vitum við hvers virði eign­ar­hluti rík­is­ins er sem ekki var seldur. Við höfum beitt mark­að­inum til þess að fá end­an­legt verð á þann hlut og það kemur í ljós að við höfum lík­lega verið að van­meta þessa eign okkar þrátt fyrir að við höfum núna selt á mark­aði yfir bók­færðu verði rík­is­ins.“

Bjarni vildi einnig vekja athygli á því að með söl­unni hefði ríkið ein­ungis selt um það bil 12,5 pró­sent af eign­ar­hlutum sínum í fjár­mála­fyr­ir­tækjum „en fyrir söl­una vorum við langstærsti eig­andi að fjár­mála­fyr­ir­tækjum í Evrópu. Þeir eru til sem vilja ekki sjá fjár­mála­fyr­ir­tæki nema í eigu rík­is­ins, nú eða í eigu líf­eyr­is­sjóða. En ég er þeirrar skoð­unar að almenn þátt­taka fólks­ins í land­inu, í gegnum skrán­ingu, Kaup­höll­ina, sé af hinu góða.“

Sagði hann það vera alrangt sem Oddný sagði að það hefði verið for­gangs­raðað í þágu þeirra sem mesta fjár­muni hafa. „Þvert á móti, eina fólkið sem ekki var skert var fólkið sem bauðst að kaupa fyrir 50.000 krónur eða allt upp í 1 milljón af sparn­aði sínum með þessum hætti. Það var því for­gangs­raðað í þágu þeirra sem minnst höfðu fram að bjóða í þessu útboði, sem fór afskap­lega vel, og ríkið stendur miklu betur á eftir.“

Ekkert annað en bankagjöf

Oddný spurði í annað sinn og sagði að það hlytu að vera tölu­verð von­brigði fyrir Bjarna að þeir sem gagn­rýndu sölu­á­formin og nú söl­una hefðu í raun haft rétt fyrir sér allan tím­ann.

„En nei, svo er ekki. Hann er hæstá­nægður. Ekki er furða að þátt­taka í útboð­inu hafi verið afbragðs­góð, enda verið að gefa hluta af arð­bærri eign. Fjár­festar fengu eign almenn­ings að gjöf og það er ekk­ert annað en banka­gjöf að selja hluti bank­ans á und­ir­verði sem kaup­endur seldu svo á rúm­lega fullu verði örfáum dögum síðar.

Blasir ekki við að nýir eig­endur, hverjir sem þeir nú eru eða verða, geri hærri ávöxt­un­ar­kröfu og að við­skipta­vinir bank­ans, sem flestir höfðu ekki ráð á því að taka þátt í útboð­inu því það er ekki svo að allur almenn­ingur eigi milljón til að skella á borðið til að kaupa sér hlut á afslátt­ar­verði í banka, þurfi að greiða fyrir arð­sem­is­kröfu nýrra eig­enda með hærri vöxtum og þjón­ustu­gjöldum til bank­ans?“ spurði hún.

„Fólkið sem vill ekki selja banka á bara að segja það hreint út“

Bjarni greip þessi orð þing­manns­ins á lofti og sagði að þarna sæist í „vinstri vang­ann á Sam­fylk­ing­unni. Vangann sem trúir því ekki að fjár­mála­fyr­ir­tæki geti yfir höfuð verið í einka­eigu, þ.e. á almennum mark­aði. Sam­fylk­ingin sem trúir því ein­göngu að ríkið eigi að fara með slíka hluti og eigi að beita eign­ar­hlutum sínum í fjár­mála­fyr­ir­tækjum til að gefa fólki góð kjör. Vænt­an­lega að fara í ein­hvers konar núll­rekstur.

Það var nákvæm­lega þessi hug­mynda­fræði sem hefði mátt koma fram fyrir söl­una. Ekki koma hingað eftir söl­una og tala um að verðið hafi ekki verið nógu hátt. Þið eruð ekk­ert að tala um það. Þið eruð að tala um það að þið viljið ein­fald­lega ekki að svona hlutir séu mark­aðs­settir, jafn­vel þótt þið hafið á sínum tíma setið í rík­is­stjórn og boðað 30 pró­senta sölu á eign­ar­hlut rík­is­ins í Íslands­banka. Fólkið sem vill ekki selja banka á bara að segja það hreint út. Aðferða­fræðin sem notuð var í þessu dæmi, þessu máli, söl­unni á eign­ar­hlut rík­is­ins í Íslands­banka, var teiknuð upp í rík­is­stjórn­ar­tíð Sam­fylk­ing­ar­innar. Lögin um Banka­sýsl­una, aðferða­fræðin sem beitt var – nákvæm­lega for­skrift Sam­fylk­ing­ar­innar úr rík­is­stjórn.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

1
Innlent

Hætta á að lánin hækki þó íbúða­verð lækki

Már Wolfgang Mixa hag­fræði­pró­fessor segir að stór hluti eigin fjár íbúða­eig­enda gæti þurrkast út á kom­andi mán­uðum. Verð­tryggðar fast­eigna­skuldir hækki í verð­bólgu­tíð sam­hliða því að íbúða­verð gæti lækkað. Hann leggur til að verð­tryggð hús­næð­is­lán fylgi íbúða­verði en ekki vísi­tölu neyslu­verðs. Þá myndu bank­arnir bera hluta áhætt­unnar.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár