Fárviðri spáð - Ör dýpkun lægðarinnar sem gerir hana „skeinuhætta“

Fárviðri er spáð á öllu landinu í dag, einkum seinni­partinn og í kvöld.

Það stefnir í hið versta verður í dag og verður fárviðri um svo til allt land seinni­partinn og í kvöld, gangi spár Veður­stofu Íslands eftir.

Almanna­varnir hafa beðið íbúa á Suður­landi um að halda sig heima eftir klukkan eitt í dag og íbúa annarra lands­hluta eftir klukkan fimm - meðal annars á höfuð­borgar­svæðinu. 

Einar Sveinbjörnsson, veður­fræðingur, segir að hröð dýpkun lægðarinnar geri hana skeinu­hætta og um margt sérstaka. „Það er ör dýpkun lægðarinnar og sérlega mikið loft­þrýstings­fall á undan skilum hennar sem gerir óveðrið skeinu­hætt. Norður af landinu og yfir Grænlandi heldur köld hæð á móti. Þarna á milli mætast stálin stinn, þ.e. beint yfir Íslandi. Vindátt er austlæg og afar fátítt er að sjá í veðurspám þetta mikla og almenna vindröst þessarar gerðar yfir nánast öllu landinu,“ segir Einar.

Hann segir að í ljósi þess hve mikill snjór sé yfir öllu landinu þá þurfi ekki mikla snjókomu til að gera „glóru­lausan“ byl. „Hvass vindur dugar einn og sér, enda er það vel þekkt að fluttningur lausa­mjallar eykst í 3 veldi af vind­hraðanum. Fljótlega upp úr hádegi verður þannig lítið skyggni syðst á landinu og þeir sem eiga erindi austur yfir fjall eða í bæinn af Suður­landi ættu að hyggja á ferðir fyrir miðjan daginn. Sama með Kjalarnes, þar sem blæs hressilega í þessari vindátt og snjókófið kemur þess vegna ofan úr Esjunni. Á Höfuð­borgar­svæðinu snjóar einnig síðdegi og fram á kvöldið og í 3 til 4 klst verður hríðar­veður og fennir í skafla. En skilin ganga yfir á endanum og rofar til. En um það leyti hlánar líka, hiti fer í 4 til 5°C um tíma og vatn tekur af renna og leita ser næsta niður­falls. Alls ekki þó nein asahláka, frekar að tala um væga leysingu,“ segir Einar.

Lægðinni er síðan spáð vestur fyrir Reykjanes og suðvestanlands getur hvesst að nýju á þriðjudags­morgun, en eins og alltaf þegar veðrið er annars vegar, þá er nokkur óvissa um framvindu mála.

Einar segir að á Norður-Atlantshafinu verði þessa dagana mörg stefnumót ólíkra loftmassa sem leiði til myndunar óveðurs­lægða. „Tíðindi hafa borist frá Skandinavíu og Bretlands­eyjum um veður­áraun þar sem rekja má til óróleikans sem verður þegar heimskauta­loft streymir í sífellu frá N-Ameríku og langt suður á Atlantshaf. Stefnir hins vegar í breytingar um miðja vikuna og dregur úr krafti lægðanna a.m.k. fyrst um sinn,“ segir Einar Sveinbjörnsson.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár