„Við erum hvergi af baki dottin“ þegar kemur að hálendisþjóðgarðinum

Umhverfis- og auð­linda­ráð­herra seg­ist sann­færður um að hálend­is­þjóð­garður verði að veru­leika í fram­tíð­inni. Ekki hafi náðst að vinna málið á þessu kjör­tíma­bili – en VG muni setja það á odd­inn í kom­andi kosn­inga­bar­áttu.

Guðmundur Ingi Guðbrandsson, umhverfis- og auðlindaráðherra.
Guð­mundur Ingi Guð­brands­son, umhverfis- og auð­linda­ráð­herra. Mynd: Bára Huld Beck

„Auðvitað hefði ég kosið að geta klárað málið á þessu kjör­tíma­bili en staðan er ekki þannig – og við höldum ótrauð áfram að vinna þessu máli braut­ar­gengi. Við erum hvergi af baki dottin þegar kemur að því.“

Þetta segir Guð­mundur Ingi Guð­brands­son umhverfis- og auð­linda­ráð­herra í sam­tali við Kjarnann þegar hann er inntur eftir fyrstu við­brögðum við því að frum­varp hans um hálend­is­þjóð­garð verði ekki að veru­leika á þessu kjör­tíma­bili.

Hann segir að þetta sé og verði mikið bar­áttu­mál hjá honum og hjá flokknum hans, Vinstri grænum. Meiri­hluti umhverfis- og sam­göngu­nefndar Alþingis lagði til í dag að mál­inu yrði vísað til rík­is­stjórn­ar­innar og að umhverfis- og auð­linda­ráð­herra yrði falið að leggja fram nýtt frum­varp um málið og byggja á vinnu nefnd­ar­innar í mál­inu. Nefndin hefur fjallað um málið á 14 fundum og alls bár­ust 155 umsagnir um málið, sam­kvæmt heim­ildum Kjarnans.

Eru þetta von­brigði í ljósi þess að sér­stak­lega er minnst á stofnun hálend­is­þjóð­garðs í stjórn­ar­sátt­mála rík­is­stjórn­ar­innar?

„Ég hefði mjög gjarnan kosið að við hefðum getað klárað málið með því að sam­þykkja frum­varpið en það var ekki nægur tími til þess. Margt spilar þar inn í, til að mynda voru margar athuga­semdir sem komu fram við frum­varpið. Ég ætl­aði nátt­úru­lega fram með það vorið 2020 en þá kom COVID og spil­aði inn í,“ segir hann og bætir því við að málið sé gríð­ar­lega stórt að umfangi og þarfn­ist mik­illar umræðu.

Það sem honum finnst standa upp úr er ferlið og þessi vinna sem lögð hefur verið í málið. „Við erum með óskap­lega gott mál í hönd­unum. Það er búið að eiga sér stað sam­tal við gríð­ar­lega margt fólk og maður heyrir fólk segja að þetta sé fram­tíðin, að búa til þjóð­garð á hálendi Íslands. Við eigum bara eftir að ná end­an­lega utan um það með hvaða hætti við gerum það. Og það þarf bara aðeins meiri tíma,“ segir hann.

Telur hann að ákveð­inn áfangi hafi náðst þegar hann mælti fyrir mál­inu á þingi og nú sé það búið að fá nokkra umfjöllun. „En það þarf að halda áfram með það.“

Hvað segir þú um þá and­stöðu gegn mál­inu sem greina má hjá sam­starfs­flokkum VG, Fram­sókn­ar­flokknum og Sjálf­stæð­is­flokknum?

„Ég held að þetta sé eitt­hvað sem megi ná utan um með meiri tíma og gagn­rýnin er svo sem ekk­ert bara hjá þeim. Það eru fleiri flokkar sem eru staddir þarna í líf­inu og aðrir sem sýnt hafa mál­inu áhuga út frá því að klára það. Þannig að aðal­at­riðið er að við erum búin að leggja mikla vinnu í þetta sem mun nýt­ast í fram­hald­inu, að teknu til­liti til þeirra athuga­semda sem borist hafa í þing­inu. Þannig að verk­efnið er að halda áfram með þetta og ég von­ast til þess að okkur auðn­ist það inn á þingi eftir næstu kosn­ingar að næsta rík­is­stjórn setji þetta á odd­inn.“

Guð­mundur Ingi segir að þrátt fyrir að málið hafi ekki náð fram að ganga á þessu kjör­tíma­bili þá sé ekki þar með sagt að það náist ekki í fram­tíð­inni. „Við höldum bara áfram með þetta og við munum setja þetta mál á odd­inn í kosn­inga­bar­átt­unni. Og ef við komumst í aðstæður til þess að fara í stjórn­ar­mynd­un­ar­við­ræður þá verður þetta að sjálf­sögðu mál sem við munum setja á odd­inn.“

Segist hann sann­færður um að þetta verk­efni verði að veru­leika í fram­tíð­inni. „Við þurfum bara aðeins meiri tíma til að vinna í því.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

1
Innlent

Hætta á að lánin hækki þó íbúða­verð lækki

Már Wolfgang Mixa hag­fræði­pró­fessor segir að stór hluti eigin fjár íbúða­eig­enda gæti þurrkast út á kom­andi mán­uðum. Verð­tryggðar fast­eigna­skuldir hækki í verð­bólgu­tíð sam­hliða því að íbúða­verð gæti lækkað. Hann leggur til að verð­tryggð hús­næð­is­lán fylgi íbúða­verði en ekki vísi­tölu neyslu­verðs. Þá myndu bank­arnir bera hluta áhætt­unnar.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár