Ljóst að ekki verði af hálendisþjóðgarði í bili

Meiri­hluti umhverfis- og sam­göngu­nefndar Alþingis hefur lagt til að frum­varpi umhverfis- og auð­linda­ráð­herra, Guð­mundar Inga Guð­brands­sonar, um stofnun hálend­is­þjóð­garðs verði vísað aftur til ráð­herra.

Meiri­hluti umhverfis- og sam­göngu­nefndar Alþingis hefur lagt til að frum­varpi umhverf­is­ráð­herra um stofnun hálend­is­þjóð­garðs verði vísað aftur til ráð­herra. Frá þessu er greint í frétt RÚV í dag.

Hanna Katrín Frið­riks­son, full­trúi Við­reisnar í nefnd­inni, stað­festir þetta í sam­tali við Kjarnann og bendir á að frum­varpið verði því ekki afgreitt á þessu þingi. Fundur umhverfis- og sam­göngu­nefndar er á dag­skrá Alþingis klukkar 15 í dag og telur þing­mað­ur­inn lík­legt að til­lagan verði afgreidd þá. Guð­mundur Ingi Guð­brands­son, umhverfis- og auð­linda­ráð­herra, vildi ekki tjá sig um málið fyrr en í fyrsta lagi eftir fund nefnd­ar­innar seinna í dag.

Hálend­is­þjóð­garður hefur verið mjög umdeildur innan stjórn­mál­anna, sem og í sam­fé­lag­inu. Í könnun sem Gallup gerði í byrjun árs sögð­ust 43 pró­sent and­víg frum­varpi um stofnun hálend­is­þjóð­garðs en 31 pró­sent fylgj­andi. Rúmlega fjórir af tíu sögð­ust hafa litla þekk­ingu á frum­varp­inu.

Í frétt RÚV kemur fram að á fundi umhverfis- sam­göngu­nefndar í morgun hefði Kolbeinn Ótt­ars­son Proppé þing­maður Vinstri grænna og fram­sögu­maður máls­ins lagt fram nefnd­ar­á­lit með frá­vís­un­ar­til­lögur. Í álit­inu kemur meðal ann­ars fram að ekki hafi náðst sátt um málið og því verði því vísað aftur til rík­is­stjórnar og umhverf­is­ráð­herra.

„Þetta er fal­legt orða­lag yfir þegar málið dagar uppi í nefnd. Þessi frá­vísun þýðir efn­is­lega ekki neitt. Það er hefð fyrir því að málum sé vísað til rík­is­stjórnar eða ein­stakra ráð­herra til gera eitt­hvað við. Það eru þá mál sem eru full­kláruð í nefndum. Þetta mál er ekki full­klárað og hefði raun­veru­lega átt að daga uppi en af því að þetta er flagg­skip rík­is­stjórn­ar­innar og ekki síst Vinstri grænna þá fær það svona heið­urs­með­ferð sem er að vera vísað aftur heim til ráð­herra,“ segir Hanna Katrín við RÚV.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

1
Innlent

Hætta á að lánin hækki þó íbúða­verð lækki

Már Wolfgang Mixa hag­fræði­pró­fessor segir að stór hluti eigin fjár íbúða­eig­enda gæti þurrkast út á kom­andi mán­uðum. Verð­tryggðar fast­eigna­skuldir hækki í verð­bólgu­tíð sam­hliða því að íbúða­verð gæti lækkað. Hann leggur til að verð­tryggð hús­næð­is­lán fylgi íbúða­verði en ekki vísi­tölu neyslu­verðs. Þá myndu bank­arnir bera hluta áhætt­unnar.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár