Íslenskt smáforrit í fjölskyldurými Google

Google tilkynnti nýverið að smáforritið Mussila, sem framleitt er af íslenska fyrirtæki, hafi verið valið til þess að vera kynnt í sérstöku fjölskyldu­rými sem Google var að opna.

Bandaríska stór­fyrirtækið Google tilkynnti nýverið að smáforritið Mussila, sem framleitt er af íslenska fyrir­tækinu Rosamosa, hafi verið valið til þess að vera kynnt í sérstöku fjölskyldu­rými sem Google var að opna.

Frá þessu er greint í Morgun­blaðinu í morgun.

Fjölskyldu­rýmið, sem á ensku kallast Family link, er öruggt svæði fyrir börn til þess að vafra á netinu. Foreldrar geta fylgst með vefnotkun barna sinna á svæðinu og sérstök áhersla er lögð á að efnið sem er í boði innan rýmisins sé bæði fjölskyldu­vænt og fræðandi.

Í fréttinni segir að Mussila-leikurinn, sem kennir börnum grunn­atriði í tónlist í gegnum skapandi leik og áskoranir, verði efstur á síðu Google-fjölskyldu­rýmisins og mæli Google sérstak­lega með leiknum fyrir foreldra til að kynna börnum sínum. Fjölskyldu­rýmið sé komið til 33 landa en Ísland sé ekki enn þar á meðal.

Margrét Sigurðar­dóttir, framkvæmda­stjóri og annar stofnenda Mussila, segir í samtali við Morgun­blaðið að einungis hafi verið valin inn smáforrit sem ætluð eru ákveðnum aldurs­hópi. „Google Play-store“ sé tiltölu­lega óritskoðaður vettvangur, en núna sé komið svæði þar sem foreldrar geta opnað reikning fyrir börnin sín og vitað að þau geta treyst þeim forritum sem er þarna að finna.

Hún segir jafnframt að aukin markaðs­setning sé á næsta leiti. „Google er að fara að markaðs­setja rýmið meira, þeir hafa ekki haft mjög hátt um þetta á meðan þeir eru að fínpússa og láta þetta virka fullkomlega. Núna ætla þeir að fara að leggja meiri áherslu á þetta rými og ætla að taka nokkur vel valin öpp og auglýsa þau sérstak­lega. Við erum eitt af þeim öppum.“

Mussila-smáforritið verður haldið framarlega innan fjölskyldu­rýmisins í nokkrar vikur í röð og svo með reglu­legum hætti eftir það, segir Margrét. Í viðtalinu kemur fram að þau séu búin að fara í gegnum nokkrar síur, fyrst þar sem leitarvél þeirra finnur forritið vegna góðrar einkunnar sem það er með í versluninni. Svo sé Google með sitt kennara­teymi sem valdi úr þeim smáforritum sem komust í gegnum fyrstu síuna.

„Þetta er mjög góð auglýsing fyrir okkur en við eigum eftir að sjá hvað þetta skilar miklu. Fjölskyldu­rýmið er ekki orðið mjög stórt ennþá, en við sjáum til hvað verður. Ég hef mikla trú á því að þetta eigi eftir að vaxa mikið. Þetta er fyrst og fremst viðurkenning, að vera valin þarna inn. Þetta er ótrúlega stórt,“ segir Margrét við Morgun­blaðið.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár