„Þetta mál snýst um að viðhalda forréttindum innvígðra og innmúraðra auðmanna“

Jón Steins­son hag­fræð­ingur telur það að skýrt hags­muna­mál þjóð­ar­innar að afla­heim­ildir verði boðnar upp í stað þess að þeim sé útdeilt á grund­velli veiði­reynslu. Gagn­rýnir Sjálf­stæð­is­flokk­inn fyrir tví­skinn­ung í mál­inu þar sem flokk­ur­inn sé yfir­leitt fylgj­andi mark­aðs­lausnum.

„Þetta mál snýst um að viðhalda forréttindum innvígðra og innmúraðra auðmanna“
Skilur ekki Sjálf­stæð­is­flokk­inn Jón Steins­son hag­fræð­ingur skilur ekki þá afstöðu Sjálf­stæð­is­flokks­ins, sem yfir­leitt er fylgj­andi mark­aðs­lausnum, að vilja ekki bjóða upp afla­heim­ildir í sjáv­ar­út­vegi.

Jón Steins­son, hag­fræð­ingur við Columbia-háskóla í Banda­ríkj­unum, furðar sig á því hvað Sjálf­stæð­is­flokk­ur­inn er tor­trygg­inn í garð þeirrar lausnar að bjóða upp afla­heim­ildir í sjáv­ar­út­vegi í stað þess að útdeila kvót­anum til útgerð­anna á grund­velli veiði­reynslu eins og nú er gert. Hag­fræð­ing­ur­inn skrif­aði inn­legg um málið með grein sem fjallar um að meiri­hluti sé nú fyrir því á Alþingi, sam­kvæmt skoð­ana­könn­unum, að feta upp­boðs­leið­ina í sjáv­ar­út­vegi.

Pistill Jóns er birtur hér í heild sinni en grein­ina sjálfa í Stund­inni má nálg­ast með því að smella á þennan hlekk. 

 „Mér finnst alltaf jafn athygl­is­vert hvað Sjálf­stæð­is­flokk­ur­inn er tor­trygg­inn varð­andi þessa mark­aðs­lausn. Af hverju skyldi það vera að mark­að­ur­inn virk­aði illa í þessu til­viki en vel almennt að þeirra mati? 

„Sátta­nefnd­inni" mistókst full­komn­lega að kom­ast að nið­ur­stöðu sem getur verið grund­völlur sáttar. Tillögur þeirrar nefndar um svo­kall­aða samn­inga­leið myndi í raun bæta stöðu útgerð­ar­innar á kostnað þjóð­ar­innar með því að veita útgerð­inni óupp­segj­an­legan samn­ing til langs tíma. Tillagan gengur í raun­inni út á að tryggja eins vel og unnt er að rík­is­stjórnir fram­tíð­ar­innar geti ekki breytt úthlutun afla­heim­ilda á þann veg að þjóðin fái fullt gjald fyrir afnota­rétt­inn af auð­lind­inni. Ég er ekki viss um að allir þeir sem sam­þykktu til­lög­una hafi áttað sig á þessu á sínum tíma. En í dag vísar eng­inn í þessa til­lögu nema þeir sem ganga erinda útgerð­ar­innar í þessu máli.

Það er smjör­klípa að halda því fram að upp­boð hafi ekki reynst vel í öðrum löndum við úthlutun á veiði­heim­ildum. Uppboð hafa verið notuð við úthlutun alls kyns nátt­úru­gæða víða um heim og einnig við sölu á opin­berum eignum og rétt­indum. Almennt hafa þau reynst vel og hafa fest sig í sessi sem algert lyk­il­tæki í opin­berri stjórn­sýslu. Engum dettur í hug að selja rík­is­skulda­bréf á annan veg en með upp­boði. Í dag er einnig gerð krafa um útboð þegar ríkið ræðst í verk­legar fram­kvæmdir. Þetta á við um öll lönd sem ekki eru þeim mun spillt­ari. Önnur dæmi um upp­boð af hálfu hins opin­bera víða um heim eru upp­boð á far­símarásum, upp­boð á rétti til olíu­leitar, upp­boð á rétti til skóg­ar­höggs, og svo mætti lengi telja. Það er almenn sam­staða á meðal fræði­manna um að upp­boð séu besta aðferðin til þess að úthluta tak­mörk­uðum gæðum af hálfu hins opin­bera. Það sem helst kemur í veg fyrir enn meiri notkun upp­boða er spill­ing. Svo ein­falt er það. Þegar upp­boð eru ekki notuð hafa þeir sem eru inn­vígðir og inn­múr­aðir mun meira svig­rúm til þess að sölsa undir sig verð­mæti á und­ir­verði. Það er þessi spill­ing sem þetta mál snýst um. En stjórn­ar­flokk­arnir vilja vita­skuld þyrla upp ryki og reyna að telja fólki trú um að málið snú­ist um eitt­hvað allt annað. En það gerir það ekki. Þetta mál snýst um að við­halda for­rétt­indum inn­vígðra og inn­múr­aðra auð­manna á kostnað almenn­ings.

Varðandi afstöðu VG þá efast ég ekki um ein­lægni þeirra. En ég held að það séu mis­tök hjá þeim að vilja heldur fara aðra leið en upp­boð. Ég hef hugsað um þetta mál í nærri tvo ára­tugi og kom­ist að þeirri nið­ur­stöðu að eina leiðin sem auð­mannaklíkan mun ekki geta koll­varpað sér í hag sé upp­boð. Það má vel vera að upp­boð nái ekki full­kom­lega öllum þeim mark­miðum sem VG vill ná. En aðrar leiðir munu held ég ná enn minni árangri (mun minni). Uppboð nær þeim mik­il­væga árangri að flytja auð­lind­arent­una til almenn­ings án þess að fórna hag­kvæmni í grein­inni. Það mun skila rík­is­sjóði 40 millj­örðum króna árlega og það munar um minna þegar kemur að end­ur­reisn vel­ferð­ar­kerf­is­ins. Eru hin mark­miðin sem VG vill ná virki­lega þess virði að þau séu til­búin að fórna stórum hluta þessa fjár í hendur útgerð­ar­manna? Og jafn­vel þótt þau telja að svo sé, hafa þau raun­hæfa aðra leið sem mun ná meiri árangri á öðrum sviðum? Ég efast mjög um það.“ 

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.
Tengdar greinar

Kvótinn

Sagan af vélstjóranum í Eyjum sem gagnrýndi kvótakerfið: „Ég var talinn óalandi og óferjandi.“
FréttirKvótinn

Sagan af vél­stjór­anum í Eyjum sem gagn­rýndi kvóta­kerfið: „Ég var tal­inn óalandi og óferj­andi.“

Stærsta útgerð­ar­fé­lagið í Vest­manna­eyjum, Ísfé­lagið stendur á tíma­mótum eftir að Guðbjörg Matth­í­as­dóttir færði eign­ar­haldið að mestu yfir á syni sína og skráði félagið á markað. Völd útgerð­ar­innar í Eyjum eru mikil og segir fyrr­ver­andi starfs­maður Ísfé­lags­ins, Árni Marz Frið­geirs­son, sögu af því þegar honum var sagt upp vegna greinar sem hann skrif­aði í DV um kvóta­kerfið.
Fyrrum Alþingsmaður vill róttækar breytingar: „Búið að rústa mörgum sveitarfélögum“
InnlentKvótinn

Fyrrum Alþings­maður vill rót­tækar breyt­ingar: „Búið að rústa mörgum sveit­ar­fé­lögum“

Grétar Mar Jónsson, fyrrum þing­maður Frjáls­lynda flokks­ins, telur að Sam­fylk­ingin geti hjálpað sjó­mönnum. Næst­kom­andi föstu­dag verður hald­inn fundur um stjórn fisk­veiða á Íslandi á Kaffi Catalínu og hefst fund­ur­inn klukkan 17:00. Grétar Mar Jónsson, fyrrum þing­maður Frjáls­lynda flokks­ins, verður einn af frum­mæl­endum fund­ar­ins en ásamt því að hafa verið Alþing­is­maður er Grétar þaul­vanur skip­stjóri. Mannlíf heyrði í Grétari til að...
Gunnar Smári hjólar í útgerðirnar og lygina: „Meira og minna einkavinavætt til auðhringja“
InnlentKvótinn

Gunnar Smári hjólar í útgerð­irnar og lyg­ina: „Meira og minna einka­vina­vætt til auð­hringja“

Gunnar Smári Egilsson, for­maður fram­kvæmda­stjórnar Sós­í­alista­flokks Íslands, tekur saman skipt­ingu útflutn­ings­verð­mæta loðnu­kvót­ans í nýjum pistli sínum. Þar fer hann yfir skipt­ingu útflutn­ings­verð­mæt­anna milli útgerð­ar­fyr­ir­tækj­anna sem eiga kvót­ann. Nú stefnir í stóra loðnu­ver­tíð, eftir loðnu­brest síð­ast­liðin tvö ár. Komandi ver­tíð hefur verið metin á 50-70 millj­arða króna í útflutn­ings­verð­mæti, sem eru um 1,5-2,0 pró­sent af lands­fram­leiðsl­unni. Gunnar Smári fer yfir skipt­ing­una:...

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífshættulegan meðgöngusjúkdóm
1
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
Ástleysið er sárt
2
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
3
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.
Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífshættulegan meðgöngusjúkdóm
4
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár