Það sem ég lærði af krabbameininu

Bryndís Ísfold Hlöðvers­dóttir sér lífið í sterk­ari litum eftir að hún fór í gegnum ótt­ann sem fylgdi því að grein­ast með krabba­mein, haf­andi misst móður sína unga úr krabba­meini, og létt­inum sem fylgdi í kjöl­farið þegar það kom í ljós að þetta væri mjög með­færi­legt. Það var eins og að vinna í lífslottó­inu og Bryndís ákvað að láta veik­indin ekki skil­greina sig, heldur þann lær­dóm sem hún dregur af þess­ari reynslu.

Það sem ég lærði af krabbameininu
Hugsaði til mömmu Bryndís seg­ist hafa hugsað til mömmu sinnar þegar hún greind­ist og ótt­að­ist að hennar biðu sömu örlög. Mynd: Kristinn Magnússon

Bryndís Ísfold Hlöðvers­dóttir var 22 ára gömul, búsett í Hollandi og í háskóla­námi, þegar hún fékk sím­tal frá Íslandi. Á hinum enda lín­unnar var læknir á líkn­ar­deild­inni að kalla hana heim til að kveðja mömmu sína. Nú voru góð ráð dýr, sölu­skrif­stofa Icelandair var lokuð og tím­inn sem hún hafði til stefnu var naumur. Hún hugsar til þess með þakk­læti þegar skrif­stofan var opnuð sér­stak­lega fyrir hana, svo hún fengi flug­miða heim. Umhyggjan sem henni var sýnd um borð var einnig eft­ir­minni­leg. „Allt var gert fyrir þessa ungu stelpu sem sat þarna stjörf að fara að kveðja mömmu sína. Þegar flug­vélin lenti stóð ég strax upp og gekk að útgang­inum þar sem ég beið eftir því að kom­ast út. Flug­freyj­urnar virt­ust skilja að þarna var eitt­hvað í gangi og leyfðu mér að standa þarna þar til hurðin opn­að­ist. Svo var eins og öll hlið opn­uð­ust á undan mér á flug­vell­inum og ég var komin út skömmu síðar.“ Sem betur fer. Þetta stóð tæpt. Bryndís fór bein­ustu leið inn í Kópavog þar sem móðir hennar kvaddi tveimur tímum síðar. „Það var mér svo mik­il­vægt að ná að kveðja.“

 „Ég þekki æxli þegar ég sé það“

Móðir hennar lést úr krabba­meini 45 ára gömul. Sextán árum síðar var Bryndís aftur komin út, nú í meist­ara­nám í New York þegar hún veikt­ist sjálf. Til að byrja með leit­aði hún á bráða­mót­töku vegna maga­krampa en var gefið asperín. Í heilan mánuð gekk hún á milli lækna, illa haldin af verkjum og eng­inn vissi hvað var að. Að lokum kom í ljós að eitt­hvað lok­aði melt­ing­ar­veg­inum. „Þetta getur verið æxli…“ sagði lækn­ir­inn, „… en það er allt eins lík­legt að það sé bara sýk­ing.“ Hún var send í skoðun til dr. Liebermans, pró­fess­ors í Cornell sem er yfir melt­ing­ar­skurð­lækn­ing­unum á New York Pres­byt­er­ian háskóla­sjúkra­húss. Dr. Lieberman vissi greini­lega ekki að ég vissi ekki að þetta væri æxli því hann byrj­aði bara að tala um það. Mér brá dálítið og spurði hvort þetta væri örugg­lega æxli, við ættum eftir að fá nið­ur­stöð­urnar úr rann­sóknum. „Ég þekki æxli þegar ég sé það,“ var svarið. „Þetta er æxli og það er mjög stórt.“

Þarna sat ég og tók á móti þeim fréttum að ég væri með ristil­krabba­mein, sem er mjög sjald­gæft hjá konum á mínum aldri. Með­al­aldur þeirra sem fá ristil­krabba­mein er um sjö­tíu ár. Enginn í nán­ustu fjöl­skyldu hafði fengið ristil­krabba­mein og ég var ekki með neina und­ir­liggj­andi sjúk­dóma sem gætu ýtt undir það. Ég hef stundum hugsað til baka og velt því fyrir mér af hverju mín fyrsta hugsun var sú að það þyrfti nú ein­hver að taka að sér að vera þessi töl­fræði­legi útlagi. Kannski af því að þetta voru of stórar fréttir til að ég gæti með­tekið þær strax.“

Kjósa
2
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár