Sýslumaður klagaður til innanríkisráðuneytis vegna Austurs

Deilurnar um veitinga­staðinn Austur harðna. Nýtt félag sagt standa að rekstrinum en hefur ekki leyfi. Tekjur fara framhjá gamla félaginu.

Illdeilur
Ill­deilur Logandi deilur hafa staðið um veit­inga­stað­inn Austur í rúmt ár. Nú hefur sýslu­mað­ur­inn á höf­uð­borg­ar­svæð­inu verið klag­aður til inn­in­rík­is­ráðu­neyt­is­ins.

Hörku­deilur hafa staðið á meðal eigenda veitinga­staðarins Austurs allt frá því Ásgeir Kolbeinsson og samstarfs­menn hans yfirtóku reksturinn í mars, fyrir tæpu ári. Nú hafa Kamran Keivanlou og félagar hans klagað Sýslu­manninn á höfuð­borgar­svæðinu til inannríkisráðuneytisins fyrir að loka ekki staðnum sem rekinn sé í leyfis­leysi. Áður hafði ráðuneytið úrskurðað að rekstrar­félagið 101 Austur­stræti skyldi svipt rekstrar­leyfi þar sem ólöglegt framsal hefði átt sér stað. 

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár