Við þyrftum sex jarðir Vistspor Íslend­inga á heim­inn er slíkt að sex jarðir þyrfti til að fram­leiða fyrir neyslu okkar. Mynd: Getty images

Skaðinn sem við völdum

Íslend­ingar valda einna mestri losun gróð­ur­húsa­loft­teg­unda á mann af öllum þjóðum heims. Til við­bótar er stefnt að því að Ísland verði olíu­ríki. Lofts­lags­breyt­ingar valda ham­förum hjá fátæk­ustu jarð­ar­bú­unum.

Hundruð þús­unda deyja árlega vegna hnatt­rænnar hlýn­unar, næstum öll í þró­un­ar­löndum. Þau lönd sem verst verða úti valda nær engum útblæstri gróð­ur­húsa­loft­teg­unda sjálf. Verði losun ekki minnkuð strax og haf­ist handa við kolefn­is­bind­ingu í stórum stíl er mikil hætta á mun alvar­legri afleið­ingum. Þetta eru nið­ur­stöður margra ára­tuga rann­sókna sem hafa legið fyrir í minnst fimm ár. Þrátt fyrir það hefur kolefn­islosun aldrei verið meiri og sjaldan vaxið hraðar. Losun Íslend­inga er með þeirri mestu í heimi, en hún á sér að miklu leyti stað við fram­leiðslu neyslu­varn­ings erlendis.

Að ein­hverju leyti má skrifa síaukna losun á hrapal­lega mis­heppn­aða ráð­stefnu í Kaup­manna­höfn 2009, þegar sam­þykkja átti arf­taka Kyoto-bók­un­ar­innar. Þar við­ur­kenndu ráð­stefnu­gestir að halda þyrfti hlýnun jarðar innan 2°C, miðað við upp­haf iðn­bylt­ingar, og að draga þyrfti veru­lega úr losun gróð­ur­húsa­loft­teg­unda. Þrátt fyrir það voru engar bind­andi ákvarð­anir teknar og engin lang­tíma­mark­mið sett.

Áhrif manna
Áhrif manna Kolefn­is­notkun mann­kyns í …

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.
Tengdar greinar

Loftslagsbreytingar

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár