Sigmundur Davíð vill inngrip í skipulag borgarinnar til að forða henni frá ógn

Sig­mundur Davíð Gunn­laugs­son for­sæt­is­ráð­herra segir að þar til gerð stofnun þurfi að grípa inn í skipu­lag mið­borgar Reykja­víkur til að forða henni frá mestu ógn síð­ustu hálfrar aldar á fag­ur­fræði­legum og menn­ing­ar­legum for­sendum.

Sigmundur Davíð vill inngrip í skipulag borgarinnar til að forða henni frá ógn

Miðborg Reykja­víkur stendur frammi fyrir mestu ógn í hálfa öld, eða frá því deilt var um Bern­höft­s­torf­una, að sögn Sig­mundar Davíðs Gunn­laugs­sonar for­sæt­is­ráð­herra. Vegna þess­arar ógnar vill Sig­mundur að eft­ir­lits­stofnun grípi fram fyrir hend­urnar á borg­ar­yf­ir­völdum til að bjarga menn­ing­ar­verð­mætum, líkt og um væri að ræða heil­brigð­is­eft­ir­lit með því að matur væri ekki hættu­legur.

Sig­mundur Davíð fékk í gegn laga­breyt­ingu í síð­asta mán­uði sem veitir honum ein­hliða vald til að koma á vernd­ar­svæðum í byggðum lands­ins. Sjá hér. 

Niðurlæging gamallar byggðar

Sig­mundur skrifar langa grein um ógn­ina við mið­borg­ina á blogg­síðu sinni í dag undir fyr­ir­sögn­inni Ugg­væn­leg þróun í skipu­lags­málum borg­ar­innar. Hann varar við fyrri tíma­bili í sögu Reykja­víkur, á fyrstu ára­tugum eftir seinni heims­styrj­öld, þar sem „skorti ekki aðeins virð­ingu fyrir sögu­legri byggð og sígildum arki­tektúr heldur mætti slík byggð oft hreinum fjand­skap og nið­ur­læg­ingu.“

Að mati Sig­mundur hefur „allt það versta við skipu­lags­nálgun eft­ir­stríðs­ár­anna“ skotið upp koll­inum á ný. Það felist í því að eig­endur gam­alla húsa, sem geri þau upp, fái ekk­ert fyrir sinn snúð, en þeir sem láti húsin drabb­ast niður og eyði­leggj­ast fái leyfi til að rífa þau. Því sé það hagur eig­enda gam­alla húsa að eyði­leggja þau.

„Nú fara saman skeyt­ing­ar­leysi, stundum jafn­vel andúð á því litla og gamla“

Sig­mundur segir að tæki­færi sem skap­að­ist við hrunið hafi glat­ast. Það hefði um tíma ríkt „virð­ing fyrir vernd og hóf­semi“ og minni þrýst­ingur hafi verið frá „fjár­magni í leit að fer­metrum“.

Áformuð bygging við Lækjargötu
Áformuð bygg­ing við Lækj­ar­götu Sig­mundur vill hús í gömlum stíl við Lækj­ar­götu, en þar er nú áformað stórt hús í sam­tíma­stíl í stað­inn fyrir Iðn­að­ar­banka­húsið.

„Andúð á því litla og gamla“

„Ástæðan fyrir því að gamla byggðin í Reykja­vík hefur lík­lega aldrei staðið frammi fyrir jafn­mik­illi ógn og nú er sú stað­reynd að nú fara saman skeyt­ing­ar­leysi, stundum jafn­vel andúð á því litla og gamla, og blind dýrkun á hinu nýja og stóra á sama tíma og ekki skortir fjár­magn til að raun­gera það við­horf. Allt er svo rök­stutt með gömlum öfug­mælum á borð við „borgir mega ekki staðna“ eða að mið­bær­inn megi ekki vera ein­hvers konar Dis­neyland.

Iðnaðarbankahúsið
Iðn­að­ar­banka­húsið Sig­mundur tekur dæmi af Iðn­að­ar­banka­hús­inu við Lækj­ar­götu, sem reist var árið 1962 í módernískum stíl. Að hans mati fellur húsið illa að mið­borg­inni. Hann vill „laga horn Lækj­ar­götu og Von­ar­strætis“.

Sig­mundur lýsir áhyggjur af nýbygg­ingum í módernískum stíl, eða sam­tíma­stíl, sem reistar eru hærri en nær­liggj­andi eldri hús í mið­borg­inni. 

„Það er hins vegar frá­leitt að halda því fram að ekki megi byggja í hefð­bundnum stíl þar sem það á við, t.d. til að styrkja heild­ar­mynd­ina. Allt er þetta spurn­ing um sam­hengi. Það væri jafn­frá­leitt að byggja báru­járns­k­lætt turn­hús í Ármúla eins og það er að byggja gráa kassa­bygg­ingu í gamla bænum.“

Stjórnvöld grípi inn í til bjargar verðmætum

Sig­mundur rök­styður í grein sinni þörf­ina á að stjórn­völd grípi inn í skipu­lags­mál og upp­bygg­ingu í mið­borg­inni til að tryggja að menn­ing­ar­verð­mæti glat­ist ekki og að umhverfið verði fag­urt.

„Það er hlut­verk borg­ar­yf­ir­valda að leggja lín­urnar í skipu­lags­málum á þann hátt að það skapi jákvæða hvata en ekki nei­kvæða, ýti undir fegrun umhverf­is­ins og vernd menn­ing­ar­arfs­ins, þess sem tengir okkur við sögu borg­ar­innar og gerir gamla bæinn að sér­stæðum og aðlað­andi stað. Yfirvöld þurfa að gæta jafn­ræðis og umfram allt forð­ast að menn séu verð­laun­aðir fyrir að ganga á umhverf­is­gæði nágrann­ans en refsað fyrir að leggja til umhverf­is­ins.

„Ef borg­ar­yf­ir­völd van­rækja það hlut­verk þarf þar til gerð stofnun að grípa inn í“

Ef borg­ar­yf­ir­völd van­rækja það hlut­verk þarf þar til gerð stofnun að grípa inn í á sama hátt og fjár­mála­eft­ir­litið á að passa upp á að menn fari ekki út af spor­inu á fjár­mála­mark­aði og heil­brigð­is­eft­ir­lit fylgist með því að matur og umhverfi séu ekki hættu­leg.“

Sig­mundur und­ir­strikar í grein sinni að þörf sé á aðkomu rík­is­valds­ins til að tryggja að ákvarð­anir borg­ar­yf­ir­valda skaði ekki menn­ing­ar­arf­inn og leiði til fag­ur­fræði­legra mis­taka. 

„Það má þó ljóst vera að áfram verður mikil þörf fyrir að þar til gerð stjórn­völd gæti þess að þau miklu verð­mæti sem liggja í sögu­legri byggð glat­ist ekki.“

Borgarfulltrúi segir enga deilu um vernd gamalla húsa 

Hjálmar Sveins­son, borg­ar­full­trúi Sam­fylk­ing­ar­innar, segir í sam­tali við Stundina að lítil sem engin póli­tísk deila sé um að vernda gömlu byggð­ina í Reykja­vík. „Það er ekk­ert flokkspóli­tískt álita­mál lengur,“ segir Hjálmar.

„Kjarninn í þeim skila­boðum sem hann virð­ist vilja koma á fram­færi er að hann vill hrein­lega sjá stórt timb­ur­hús eða hús í timb­ur­húsa­líki og 19. aldar stíl á horni Lækj­ar­götu og Von­ar­strætis. Misjafn er smekkur manna. Það er bara hans sýn.“

Að öðru leyti telur hann gagn­rýni Sig­mundar ósann­gjarna. Í fyrsta lagi hafi Sig­mundur sjálfur verið vara­for­maður skipu­lags­ráðs borg­ar­innar 2008 til 2009 þegar núver­andi deiliskipu­lag við Aust­ur­höfn­ina var tekið til end­ur­skoð­unar, án þess að gera athuga­semd við það. „Hann hefði þá getað komið með athuga­semdir um þetta stór­skorna skipu­lag, en gerði það ekki,“ segir Hjálmar. Í öðru lagi hafi borg­ar­yf­ir­völd lagt mikla áherslu á að vernda hið smá­gerða í mið­borg­inni og því síður en svo sýnt hinu litla og gamla andúð.

„Það hefur verið í gangi mjög mikil vinna við end­ur­upp­bygg­ingu og end­ur­gerð gam­alla húsa­þyrp­inga, við norð­an­vert Skóla­vörðu­holt og víðar. Ein birt­ing­ar­mynd þess er Hljóma­lind­ar­reit­ur­inn þar sem voru afhjúpuð um dag­inn fal­leg hús, 17 og 19. Sama má segja um Bar­óns­stígs­reit sem nú er í vinnslu, milli Lauga­vegs, Hverf­is­götu og Vita­stígs. Þar er deiliskipu­lags­vinna sem gerir ráð fyrir end­ur­reisn gamla þorpskjarn­ans.“

Hjálmar segir að gömlu sjáv­ar­garð­arnir sem komu í ljós þegar hafnar voru fram­kvæmdir við Tryggva­götu og víðar við Aust­ur­höfn­ina séu til skoð­unar. „Hvernig menn með­höndla þessu gömlu garða sem hafa fund­ist í grunn­inum er sam­tal borg­ar­innar, fram­kvæmda­að­ila og Minja­stofn­unar,“ segir hann.

Vald til inngripa fært undir ráðuneyti Sigmundar

Óljóst er með hvaða hætti Sig­mundur vill haga inn­gripum rík­is­valds­ins í fag­ur­fræði­legum og menn­ing­ar­legum til­gangi. Sú stofnun sem fer með friðun húsa er Minja­stofnun Íslands. Þegar Sig­mundur Davíð tók við for­sæt­is­ráðu­neyt­inu árið 2013 var Minja­stofnun og tengd mál flutt frá mennta­mála­ráðu­neyt­inu undir for­sæt­is­ráðu­neytið. Tækin sem rík­is­valdið hefur til inn­grips eru því nú á for­ræði ráðu­neytis Sig­mundar Davíðs. Minja­stofnun getur meðal ann­ars gert til­lögu til Sig­mundar um frið­lýs­ingu húsa.

 

 

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Mest lesið

Ástleysið er sárt
5
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

„Margt sem ég hef séð situr í mér“
4
Viðtal

„Margt sem ég hef séð situr í mér“

Þegar Halla Bergþóra Björns­dóttir varð fyrst kvenna til þess að sinna lög­gæslu á Húsavík fékk hún að heyra að konur ættu ekk­ert erindi í lög­regl­una. Hún lét það ekki á sig fá, varð lög­reglu­stjóri og loks rík­is­lög­reglu­stjóri. Starfið hefur breytt henni, enda hefur hún komið að erf­iðum málum og fengið hót­anir. Á sama tíma hefur hún öðl­ast skarp­ari sýn á lífið, sterk­ari löngun til að gera gagn og fundið fyrir þakk­læti fyrir allt það góða.

Mest lesið í mánuðinum

Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
5
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár