Mynd: Af Facebook-síðu Sjálfstæðisflokksins

Saga mesta valdaflokks Íslands

Nafn­arnir Bjarni Bene­dikts­son og Bjarni Bene­dikts­son gegndu báðir for­mennsku í helsta valda­flokki Íslands, Sjálf­stæð­is­flokknum, en eru ólíkar týpur. Karl Th. Birg­is­son skrifar um sögu flokks­ins.

Að óbreyttu verða einkum þrenn tíð­indi í kom­andi þing­kosn­ingum: Píratar þre- eða fjór­falda fylgi sitt, Sam­fylk­ingin fær minnsta fylgi frá stofnun og Sjálf­stæð­is­flokk­ur­inn líka.

Ein­hverjir vilja kannske bæta Viðreisn við þennan lista, en gengi hennar – að óbreyttu – telst ekki til stórra tíð­inda í sögu­legu ljósi.

Vonandi er ein­hver að skrá sög­una af hinu ævin­týra­lega gengi pírata. Enginn virð­ist skilja til hlítar afhroð Sam­fylk­ing­ar­innar. En af Sjálf­stæð­is­flokknum er hægt að segja tals­verða sögu.

Hún er ekki aðeins um sögu­lega lítið fylgi, heldur breyt­ing­una á inn­taki flokks­ins og því hvernig for­ystu­menn hans hugsa. Þetta er jú ekki alveg nýr flokkur.

Alls ekki.

Skoðum fylgið fyrst.

 

Hrunið

Síð­ast­liðin fimm­tíu ár hefur Sjálf­stæð­is­flokk­ur­inn notið að jafn­aði 36-38 pró­sentu­stiga fylgis á lands­vísu. Mest 42,7 (1974), minnst 32,7 (1978, sama ár og hann missti í fyrsta sinn meiri­hluta sinn í Reykja­vík­ur­borg).

Þetta voru algerir yfir­burðir. Á sjö­unda ára­tugnum komst Fram­sókn­ar­flokk­ur­inn tvisvar upp undir 30 pró­sentin, en hefur alla­jafna verið öðru hvorum megin við 20. 

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.
Tengdar greinar

Alþingiskosningar 2016

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár