Mynd: Heiða Helgadóttir

Reyndi að kúga dreng til kynlífs með nektarmyndum

Kyn­ferð­is­leg kúgun ung­menna í gegnum sam­skipta­miðla er vax­andi vanda­mál á Íslandi, sem og um allan heim. Lögregla segir afar erfitt að eiga við þessi mál því oft sé um erlenda aðila að ræða. Í síð­asta mán­uði féll tíma­móta­dómur er varðar kyn­ferð­is­lega kúgun þegar karl­maður var dæmdur fyrir að hóta að dreifa nekt­ar­mynd af 15 ára dreng ef hann hefði ekki kyn­ferð­is­mök við sig. Karlmenn eru í meiri­hluta þolendur í þessum málum hér á landi, að sögn lög­reglu.

Í apríl í fyrra tók fimmtán ára drengur eftir því að ein­hver honum ókunn­ugur hafði bætt honum við á sam­skipta­for­rit­inu Snapchat. Sá ókunn­ugi sagð­ist vera sautján ára og að hann hefði óvart skrifað rangt nafn þegar hann hafi verið „að adda“.

Drengirnir fóru að ræða saman um kyn­hneigðir og fljót­lega varð sam­talið mjög kyn­ferð­is­legt. Unga drengnum þóttu sam­skiptin til að byrja með spenn­andi og skemmti­leg, en spjallið varð sífellt gróf­ara og skipt­ust þeir meðal ann­ars á nekt­ar­myndum. Dreng­ur­inn hélt að það myndi auka spenn­una, en sjálfum fannst honum það ekki hjálpa til.

Sá sautján ára beindi tali sínu meðal ann­ars að eldri manni, sem þeir virt­ust báðir þekkja til. Maðurinn væri meðal ann­ars sagður vera „fkn góður í rúm­inu“. Þá hvatti hann dreng­inn til að leita til manns­ins og sagði að örugg­ara væri að fá reynslu frá mun eldri manni en jafn­öldrum. Undir lokin var ungi dreng­ur­inn kom­inn með nóg, þetta var ekki skemmti­legt lengur, og hann vildi ekki meira. 

Daginn eftir hófust hót­an­irnar. Ef dreng­ur­inn hefði ekki kyn­ferð­is­mök við þennan eldri mann fyrir klukkan ell­efu sama kvöld færu mynd­irnar og kyn­ferð­is­leg sam­skipti þeirra í dreif­ingu. Síðar átti eftir að koma í ljós að mað­ur­inn stóð sjálfur að baki Snapchat-skila­boð­unum.

Ætlaði að kenna honum lexíu

Þegar klukkan fór að nálg­ast ell­efu seg­ist dreng­ur­inn hafa verið far­inn að íhuga að strjúka, til að losna undan afleið­ing­unum við birt­ingu mynd­anna. Móðir hans tók hins vegar eftir því að hann væri eitt­hvað 

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár