Ald­eyj­ar­foss Ljós­mynd­ina tók Christopher Lund. Mynd: Christopher Lund

Náttúruperlur í hættu

Orku­stofnun leggur til að ýmsir virkj­ana­kostir í nýt­ing­ar­flokki verði teknir til end­ur­skoð­unar. Þessar nátt­úruperlur eru meðal þeirra sem yrðu í hættu verði til­lögur Orku­stofn­unar að veru­leika.

Christopher Lund ljós­mynd­ari tók þessar fal­legu myndir af nátt­úruperlum sem eru í hættu verði virkj­un­ar­til­lögur á lista Orku­stofn­unnar að veru­leika. Nú er þriðji áfangi ramma­á­ætl­unar að hefj­ast og þá kemur í ljós hvort þessi svæði verði tekin til umræðu og hvort þau lenda í virkj­un­ar­flokki, bið­flokki eða vernd­ar­flokki. 

Þjórsá 

Þegar eru sex vatns­afls­virkj­anir í Þjórsá, lengstu á Íslands. Þetta eru Búr­fells­stöð, Sult­ar­tanga­stöð, Hraun­eyja­foss­stöð, Sig­öldu­stöð, Vatns­fells­stöð og Búð­ar­háls­virkjun. Á teikni­borð­inu eru sex til við­bótar; Kjalöldu­veita, stækkun Búr­fells­stöðvar, Hvamms­virkjun, Holta­virkjun, Urriða­foss­virkjun og hin umdeilda Norð­linga­öldu­veita. Samkvæmt núgild­andi ramma­á­ætlun er Norð­linga­öldu­veita í vernd­ar­flokki, en hinar þrjár til­lög­urnar eru í bið­flokki. Engu að síður hefur Orku­stofnun sent erindi um alla þessa virkj­ana­kosti til verk­efn­is­stjórnar 3. áfanga ramma­á­ætl­unar. Undir lok nóv­em­ber síð­ast­liðnum til­kynnti meiri­hluti atvinnu­vega­nefndar að hann hygð­ist færa átta virkj­ana­kosti úr bið­flokki ramma­á­ætl­unar í nýt­ing­ar­flokk, þar á meðal eru Hvamms­virkjun, Holta­virkjun og Urriða­foss­virkjun.

Helstu ferða­manna­staðir:
Dynkur
Urriða­foss
Árnes
Þjórsá er …

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár