Björn Leví og eig­in­konan knús­ast á kosn­inga­vöku Pírata Mynd: Heiða Helgadóttir

Maður verður þingmaður

Róttækar breyt­ingar eru að verða á lífi Björns Leví Gunn­ars­sonar. Hann var annar maður á lista Pírata í Reykja­vík norður og er því um þessar mundir að hefja störf á sínum nýja vinnu­stað, hinu háa Alþingi. Ljós­mynd­ari Stund­ar­innar fylgdi Birni eftir í kosn­inga­bar­átt­unni og í gegnum nótt­ina þegar hann varð að þing­manni.

Upp­gangur Pírata innan íslenskra stjórn­mála á sér engin for­dæmi í sög­unni. Flokkur sem byggir á grunni anar­kís­krar hug­mynda­fræði þre­fald­aði þing­manna­fjölda sinn og á kom­andi kjör­tíma­bili munu tíu Píratar sitja á þingi.

Einn þeirra er Björn Leví Gunn­ars­son, en hann var í öðru sæti fyrir Pírata í Reykja­vík­ur­kjör­dæmi norður. Björn er að eigin sögn tölv­un­ar­fræð­ingur, eig­in­maður, faðir og nörd. „Lands­byggð­ar­barn úr Þor­láks­höfn, Grund­ar­firði og Sauð­ár­króki en flutt­ist á möl­ina til að fara í fram­halds­skóla. Losnaði þá við ein­elti grunn­skól­ans sem tók nokkur ár að kom­ast yfir.“

Úr fram­halds­skóla fór Björn aftur á leik­skóla. Síðan þá hefur hann flakkað milli þess að vera í námi, að kenna og vinna með tölvur. Hann er tveggja barna faðir en börnin hans heita Alex­ander Arnar, sjö ára og Ársól Ísafold sem er alveg að verða tveggja.

Fyrstu kynni Björns af stjórn­málum var fyrir kosn­ing­arnar 2013 þegar hann gekk til liðs við Pírata. …

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.
Tengdar greinar

Alþingiskosningar 2016

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár