Lögmaður ósáttur: Alltof mikil umræða um kynferðisbrot á Íslandi

Vil­hjálmur H. Vil­hjálms­son lög­maður telur að umræðan um kyn­ferð­is­brot á Íslandi sé „alltof mikil“ og að þeir sem lýsi sig ósam­mála Stíga­mótum séu úthróp­aðir.

Lögmaður ósáttur: Alltof mikil umræða um kynferðisbrot á Íslandi
Ósáttur við umræðu um kyn­ferð­is­brot Vil­hjálmur H. Vil­hjálms­son lög­maður í við­tali við Hæpið á RÚV. Mynd: RÚV

Alltof mikil umræða er um kyn­ferð­is­brot á Íslandi, að mati lög­manns­ins Vil­hjálms H. Vil­hjálms­sonar. Vil­hjálmur var einn af við­mæl­endum í þætt­inum Hæpið á RÚV í gær­kvöldi, þar sem fjallað var um kyn­frelsi og kyn­ferð­is­brot. Hann telur að þeir sem séu ósam­mála Stíga­mótum verði fyrir „úthrópun“. 

„Ég held að rétt­ar­kerfið á Íslandi í kyn­ferð­is­brota­málum, að það virki mjög vel. Sér­stak­lega fyrir brota­þola. Það er mikil og opin umræða um kyn­ferð­is­brota­mál á Íslandi. Og raunar alltof mikil á köflum, að mínu mati. Það er að segja að maður opnar varla fjöl­miðil á Íslandi í dag án þess að það sé verið að ræða kyn­ferð­is­brot sem eiga að hafa átt sér stað. Og vanda­málið við umræð­una er að mínu mati það að það eru þarna ákveðnir hópar sem telja sig vera eig­endur þess­arar umræðu, og ef það sem sagt er er ekki alger­lega í sam­ræmi við þá stefnu sem þessir hópar hafa, svo sem Stígamót, þá eru þeir sem leyfa sér að vera á önd­verðri skoðun oft á tíðum úthróp­aðir karl­rembur eða stuðn­ings­menn kyn­ferð­is­brota, eða eitt­hvað þaðan af verra, og það tel ég afskap­lega slæmt.“

Lögmaður kærðra í kynferðisbrotamálum

Vil­hjálmur hefur meðal ann­ars verið verj­andi manna sem kærðir hafa verið fyrir kyn­ferð­is­brot. Um miðjan októ­ber féll dómur í máli þar sem hann varði mann sem dæmdur var til fjög­urra ára fang­els­is­vistar fyrir að beita konu ólög­mætri nauð­ung vegna aðstöðumunar og nýtt sér and­lega og lík­am­lega yfir­burði til að eiga kyn­ferð­is­mök við hana. Þá varði hann mann sem dæmdur var fyrir tvö kyn­ferð­is­brot gegn 14 ára stúlku, en dómur féll í Hæsta­rétti í byrjun mán­aðar. 

Vil­hjálmur hefur einnig sér­hæft sig í meið­yrða­málum og meðal ann­ars varað meinta brota­þola við því að tjá sig um meinta ger­endur opin­ber­lega með til­kynn­ingum um mál­sókn. Hann sendi meðal ann­ars máls­höfð­un­ar­hótun á Akureyri viku­blað í byrjun árs, vegna frá­sagnar ungrar konu af meintum kyn­ferð­is­brotum í Grímsey.

Bryn­hildur Yrsa Guð­munds­dóttir, sem hefur greint frá kyn­ferð­is­of­beldi sem hún varð fyrir á þjóð­há­tíð í Vest­manna­eyjum fyrir tveimur ára­tugum, er ein þeirra sem gagn­rýna við­horf Vil­hjálms á Facebook.

„Ég snar­lega hætti að borða og fékk sting í mag­ann. Sérlega fyrir hönd þeirra sem hafa lent í því að rétt­ar­kerfið hafn­aði þeim. Og að láta út úr sér að það hafi verið of mikið af umræð­unni fær mig til að vilja auka enn meira á hana,“ skrif­aði hún.

Önnur, sem stefndi manni fyrir tæl­ingu, seg­ist hafa hlegið. „Það að hann hafi sagt að kerfið virkar vel fyrir brota­þola fékk mig til þess að hlæja. Af hverju? Jú, því hann er lög­fræð­ingur [fyrir] þann [sem] ég stefndi fyrir tæl­ingu.“

Sakfellt í miklum minnihluta mála
Sakfellt í miklum minni­hluta mála Samkvæmt rann­sókn EDDA center of excellence var sak­fellt í 12 pró­sent til­kynntra kyn­ferð­is­brota árin 2008 og 2009.

Aðeins tíunda hvert tilfelli leiðir til dóms

Samkvæmt nið­ur­stöðum rann­sóknar Hildar Fjólu Ant­ons­dóttur og Þor­bjargar Sigríðar Gunn­laugs­dóttur sem unnin var fyrir EDDU, Center of Excellence, á ein­kennum og með­ferð nauðg­un­ar­mála innan rétt­ar­kerf­is­ins árin 2008 og 2009 nást sak­fell­ingar í algerum minni­hluta kærðra kyn­ferð­is­brota. Af 189 til­kynn­ingum og kærum sem bár­ust lög­regl­unni stóðu eftir 23 mál þar sem sak­fell­ing fékkst. Það jafn­gildir því að í rétt rúm­lega tíunda hvert atvik, sem meintur brota­þoli lítur á sem kyn­ferð­is­brot gegn sér, upp­lifir meintur brota­þoli rétt­læti að eigin mati. 12,2% slíkra lauk með sak­fell­ingu ger­anda. 
Í flestum til­fellum voru málin felld niður hjá rík­is­sak­sókn­ara, eða 57 mál af 189. Þá var rann­nsókn hætt af lög­reglu í 31 máli. Ákæra var gefin út í 31 tifelli. Í minni­hluta mála sem röt­uðu fyrir dóm var meintur ger­andi sýkn­aður, eða í 8 til­fellum af 31.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár