Mynd: Kristinn Magnússon

Leynibrúðkaup á gamlársdag

Pálmi Gestsson end­aði óvænt í leik­list þar sem auka­vinnan varð að ævi­starfi. Hann segir frá ævi sinni og starfi, átökum við for­sætis­ráð­herra, brott­rekstri af RÚV og Spaug­stof­unni sem er ódrep­andi.

Leik­ar­inn Pálmi Gestsson hefur verið einn af mest áber­andi leik­urum sam­tím­ans. Um ára­tuga­skeið hefur hann verið fyr­ir­ferð­ar­mik­ill í Spaug­stof­unni þar sem hann hefur tek­ist á við hlut­verk for­seta Íslands og ann­arra ráða­manna svo þjóðin hefur setið í hlát­ur­skrampa. Pálmi er Bol­vík­ingur að ætt og upp­runa. Framan af ævi hans var fátt sem benti til ann­ars en að hann myndi eyða ævinni í vest­firska bænum. 

Pálmi segir að það hafi í raun verið óvart að hann tók að sér að herma eftir mönnum. Það hafi ein­fald­lega gerst af illri nauð­syn þegar Spaug­stofu­menn skiptu með sér verkum. En hvernig nær hann ein­kennum þeirra sem hann hermir eftir?

„Ég hafði lítið feng­ist við þetta áður. Þó hafði ég nokkurn áhuga á þessu sem ung­lingur þegar ég hlust­aði á upp­tökur með snjöllum eft­ir­hermum á borð við Karl Ein­ars­son og Jörund Guð­munds­son. Svo hef ég lært mikið af því að fylgj­ast með Jóhann­esi Krist­jáns­syni frá Brekku á Ingj­alds­sandi. Ég hafði gaman af að fylgj­ast með ein­kennum í fari fólks en ekki hvarfl­aði að mér að þetta ætti eftir að liggja fyrir mér. Þó man ég eftir því að hafa staðið fyrir framan spegil og reynt að ná munn­stöðu Nóbels­skálds­ins, Halldórs Laxness. Það átti eftir að nýt­ast mér löngu seinna. Og þó ég segi sjálfur frá fannst mér Halldór vera harla góður hjá mér og kannski það besta sem ég hef gert á þessu sviði. Ég lék hann í ára­mótaskaupi þegar gæsalappa­mál Hannesar Hólm­steins reis sem hæst. Þá lék ég hann í heim­ild­ar­þáttum eftir Þorvald Gylfason. Vandinn við að herma eftir ein­stak­lingum er sá að koma auga á lyklana. En þegar þeir eru komnir þá er eft­ir­leik­ur­inn auð­veldur,“ segir Pálmi.  

Karvel frændi

Á æsku­slóðum Pálma í Bol­ung­ar­vík snérist lífið að miklu leyti um sjó­mennsku og fisk­vinnslu. For­eldrar Pálma eru Gestur Pálmason, sem er lát­inn, og Sig­ur­borg Sig­ur­geirs­dóttir. Báðum fylgir stór ætt­bogi sem tengj­ast bæði útgerð­ar­mönnum og alþýðu. Móð­ur­amma Pálma var systir eins umsvifa­mesta útgerð­ar­manns Íslands, Einars Guð­finns­sonar, sem var um ára­tuga­skeið stærsti atvinnu­rek­and­inn í Bol­ung­ar­vík. Og föð­ur­bróðir hans var verka­lýðs­for­ing­inn og þing­mað­ur­inn Karvel Pálmason. Karvel skaust inn 

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár