Mynd: Shutterstock

Leiðin að Stjórnstöðinni

Ný Stjórn­stöð ferða­mála mun kosta ríkið 70 millj­ónir á ári en á sama tíma fæst ekki fjár­veit­ing í stór verk­efni hjá Ferða­mála­stofu. Stóru málin eru enn óleyst. Guðfinna S. Bjarna­dóttir, fyrr­ver­andi þing­maður Sjálf­stæð­is­flokks­ins, fór fyrir tveimur stýri­hópum og tekur þátt í að inn­leiða nýja ferða­mála­stefnu. Hún hefur alls fengið greiddar 22 millj­ónir frá atvinnu­vega­ráðu­neyt­inu og Ferða­mála­stofu. Þá hefur reynst erfitt að útfæra leiðir til gjald­töku í grein­inni.

Fjölgun erlendra ferða­manna sem koma hingað til lands hefur verið á bil­inu 18 til 24 pró­sent á hverju ári frá 2010 og verður árið í ár lík­lega fyrsta árið þar sem yfir milljón ferða­menn koma til lands­ins. Ragn­heiður Elín Árna­dóttir, iðn­aðar- og við­skipta­ráð­herra, sagði í við­tali fyrr á árinu að Íslend­ingar hefðu verið „teknir í bólinu“ og að inn­viðir ferða­þjón­ust­unnar hefðu ekki verið byggðir upp í sam­ræmi við þessa hröðu fjölgun. Nú sé því tími fram­kvæmda. 

Á kjör­tíma­bil­inu hefur Ragn­heiður Elín lagt fram tvö umdeild frum­vörp í mála­flokknum sem bæði liggja nú hjá atvinnu­vega­nefnd. Lítið hefur hins vegar verið um fram­kvæmdir hjá fram­kvæmda­vald­inu á meðan mik­ill tími hefur farið í kort­lagn­ingu og stefnu­mótun. Í síð­asta mán­uði var til að mynda kynnt ný ferða­mála­á­ætlun, Vegvísir í ferða­þjón­ustu, sem gildir til árs­ins 2020. Bar þar hæst stofnun Stjórn­stöðvar ferða­mála en hún hefur verið harð­lega gagn­rýnd af þing­­mönnum flestra flokka, utan Sjálf­stæð­is­flokks, og þá hafa ungir sjálf­stæð­is­menn lagst gegn henni. Sér­fræð­ingur í ferða­málum hefur bent á að ný ferða­mála­stefna feli ekki í sér neinar aðgerðir í mest aðkallandi verk­efnum ferða­þjón­ust­unnar.

Guðfinna fær 18 milljónir frá ráðuneytinu

Í jan­úar 2014 fól atvinnu­vega- og nýsköp­un­ar­ráðu­neytið Ferða­mála­stofu að taka til skoð­unar starfs­um­hverfi ferða­þjón­ust­unnar. Verk­efnið hafði að mark­miði að ein­falda starfs­um­hverfið. Stýri­hóp­ur­inn var skip­aður full­trúum frá Ferða­mála­stofu, for­sæt­is­ráðu­neyt­inu, Samtökum ferða­þjón­ust­unnar, Ferða­mála­sam­tökum Íslands og Sam­göngu­stofu. Þá voru Guðfinna S. Bjarna­dóttir, fyrr­ver­andi þing­maður Sjálf­stæð­is­flokks­ins, og Vil­hjálmur Krist­jáns­son, frá LC ráð­gjöf, fengin til að leiða verk­efnið og fengu alls fjórar millj­ónir fyrir. Ferða­mála­stofa stóð að þeirri ráðn­ingu en ekki var leitað fleiri til­boða í verk­efnið.

Hópurinn skil­aði til­lögum í maí sama ár og fólu þær í sér ýmis konar ein­fald­anir á reglu­verki tengdu ferða­þjón­ustu. Þá lagði hóp­ur­inn til að ráð­herra end­ur­skoði gild­andi stefnu í ferða­málum. Í kjöl­farið voru Guðfinna 

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár