Hættu að vera dólgur í umferðinni

Ásdís Olsen kennir fólki núvitund eða mindfulness. Sjálf tileinkaði hún sér þessa tækni eftir að hafa fengið kvíðakast og leitað á bráða­móttöku. Núvitund skapar hugarró og gerir fólk fært að njóta augna­bliksins. Aðferðin hefur bjargað fólki úr sálar­háska og gert fólk að umburðar­lyndari ökumönnum.

Handleiðsla
Hand­leiðsla Ásdís Olsen hjálpar fólki að ná jafn­vægi í líf­inu með því að kenna því núvit­und. Aðferðin hefur hjálpað fjöl­mörgum til að öðl­ast hug­arró. Sjálf bjarg­aði hún sér frá kvíða með því að nota mind­ful­ness. Mynd: Heiða Helgadóttir

„Ég hélt að ég væri að deyja og var send með sjúkrabíl á braða­móttöku,“ segir Ásdís Olsen, um aðdrag­anda þess að hún sneri sér að núvitund, eða mindfulness.

Án þess að vera meðvituð um það var Ásdís með undir­liggjandi kvíða sem braust fram. „Það reyndist ekkert vera að mér líkamlega heldur var hugurinn að leika mig grátt. Ég starfaði sem háskóla­kennari á þessum tíma, með lífs­leikni sem sérgrein en var síður en svo lífsleikin. Ég vissi í raun ekki hvernig hugurinn starfar, hvað stýrir upplifun minni, líðan og viðbrögðum. Með því að læra núvitund rann upp fyrir mér ljós og það er óhætt að segja að núvitund hafi gjör­breytti líðan minni og lífi,“ segir Ásdís Olsen sem starfar nú við að kenna Íslendingum núvitund, eða „mindfulness“, til að finna hugarró og sátt með sjálf­vitund, komast í jafnvægi og öðlast lífs­hamingju.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár