Ferða­þjón­ustan fer í gegnum vaxt­ar­verki Eitt af hverjum þremur störfum á Íslandi eru í ferða­þjón­ustu, en fag­menn innan hennar hafa áhyggjur af áherslum á fjölda­túrisma frekar en gæða­túrisma. Mynd: Shutterstock

Íslenskir leiðsögumenn segja frá kjarabrotum og hættu

Leið­sögu­menn lýsa alvar­legum vanda­málum innan ferða­þjón­ust­unnar á Íslandi og áhyggjum á hvaða leið hún er. „Mér fannst þetta vera orðið hættu­legt,“ segir leið­sögu­maður um vinnu­að­stæður sínar.

Við afhend­ingu íslensku þekk­ing­ar­verð­laun­anna í lok apríl sagði for­seti Íslands að ferða­þjón­ustan stæði á tíma­mótum, að hún þyrfti að vera á varð­bergi og forð­ast að taka rót­tækar ákvarð­anir. Þemað í ár var „fag­mennska og færni í ferða­þjón­ustu“; Íslenskir fjalla­leið­sögu­menn voru til­nefndir til verð­laun­anna, en biðu lægri hlut gegn Bláa Lóninu. 

Það eru bara fáein ár síðan litið var á leið­sögn sem sum­ar­starf fyrir vaska kenn­ara, og því má telj­ast til stór­frétta að fyr­ir­tæki sem sér­hæfir sig í leið­sögn sé til­nefnt til slíkra verð­launa. Upp­gangur iðn­að­ar­ins virð­ist aukast á hverju ári og ef spár ganga eftir um að 2,3 millj­ónir ferða­manna komi til lands­ins í ár má búast við því að það verði nóg að gera fyrir leið­sögu­menn. 

Þrátt fyrir þessa vel­gengni kraumar undir yfir­borð­inu óánægja vegna kjara­mála, fljót­færni og skamm­sýnna atvinnu­rek­enda, og jafn­framt ótti við að vaxt­ar­verkirnir sem iðn­að­ur­inn er að fara í gegnum séu merki um hvernig …

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.
Tengdar greinar

Réttindabrot á vinnumarkaði

Starfsfólk launalaust fjórum mánuðum eftir gjaldþrot Sternu
ÚttektRéttindabrot á vinnumarkaði

Starfs­fólk launa­laust fjórum mán­uðum eftir gjald­þrot Sternu

Ferða­þjón­ustu­fyr­ir­tækið Sterna var sett í gjald­þrot í mars og starfs­fólk­inu sagt upp, en síðan var gjald­þrotið dregið til baka. Fjórum mán­uðum síðar hafa fjöl­margir ekki enn fengið laun eða upp­sagn­ar­frest borg­aðan frá fyr­ir­tæk­inu. Starf­andi fram­kvæmda­stjóri neitar því ekki að fyr­ir­tækið sé hugs­an­lega að skipta um kenni­tölu.

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár