Mynd: Pressphotos

Íslendingar eru hinir verstu umhverfissóðar

Íslensk stjórn­völd hafa aldrei sett lofts­lags­málin í for­gang þrátt fyrir alþjóð­legt ákall um að bregð­ast hratt við hlýnun jarðar. Metn­að­ar­fullum aðgerð­ar­á­ætl­unum hefur ekki fylgt fjár­magn, upp­bygg­ing í stór­iðju heldur áfram og að öllu óbreyttu munum við ekki standa við alþjóð­legar skuld­bind­ingar. Losun gróð­ur­húsa­loft­teg­unda á hvern íbúa á Íslandi er þrefalt með­al­tal íbúa á heims­vísu og nær tvö­falt meiri en á hvern íbúa í Evrópu.

Óspillt nátt­úra, hreint vatn, hreint loft og nær ein­göngu end­ur­nýj­an­leg orka. Goð­sögnin um umhverfisparadís­ina Ísland er á meðal þess sem fær millj­ónir ferða­manna til þess að flykkj­ast til lands­ins á ári hverju en kann­anir sýna sífellt fram á að íslensk nátt­úra er það sem dregur lang­flesta ferða­menn hingað til lands. Íslenskir ráða­menn eru dug­legir að halda þess­ari ímynd á lofti. „Á Íslandi hefur okkur auðn­ast að feta þessa slóð þannig að við höfum við­haldið sterkri ímynd Íslands sem nátt­úru­ger­semi sam­hliða auk­inni orku­fram­leiðslu,“ sagði Bjarni Bene­dikts­son, nú for­sæt­is­ráð­herra, á árs­fundi Lands­virkj­unar árið 2015. „Við höfum for­skot á margar aðrar þjóðir í heim­inum varð­andi losun út af okkar grænni orku,“ sagði Sigrún Magn­ús­dóttir, þá umhverf­is­ráð­herra, við full­gild­ingu Par­ís­ar­sátt­mál­ans á síð­asta ári. Gögnin sýna hins vegar fram á að Íslend­ingar eru hinir verstu umhverf­is­sóðar.

Íslend­ingar þurfa að gera rót­tækar breyt­ingar í umhverf­is­málum ætli þeir að standa við alþjóð­legar skuld­bind­ingar sínar. Losun gróð­ur­húsa­loft­teg­unda …

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.
Tengdar greinar

Loftslagsbreytingar

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár