Núpur í Dýra­firði Jón Gnarr sagði frá því í við­tali við Frétta­blaðið um helg­ina, og í nýrri bók sinni, að ofbeldi hefði við­geng­ist á Hér­aðs­skól­anum að Núpi í Dýra­firði, þar sem hann dvaldi í heima­vist­ar­skóla árin 1981 til 1983. Mynd: Wikipedia

Hvað gerðist raunverulega á Núpi?

Jón Gnarr lýsir kyn­ferð­is­legu ofbeldi í hér­aðs­skól­anum á Núpi. Stundin ræðir við fyrr­ver­andi nem­endur og kenn­ara.

Fyrrum kenn­arar við heima­vist­ar­skól­anum Núpi ætl­ast til þess að Jón Gnarr, fyrrum borg­ar­stjóri og núver­andi fram­kvæmda­stjóri dag­skrársviðs 365, skýri betur orð sín um að einn þeirra hafi brotið á nem­anda á árunum 1981 til 1983.

Jón lýsti grófu ofbeldi af höndum bæði nem­enda og kenn­ara sem á að hafa átt sér stað við skól­ann í for­síðu­við­tali við Frétta­blaðið síð­ast­lið­inn laug­ar­dag. Auk þess að lýsa meintri hópnauðgun á heima­vist skól­ans, seg­ist Jón í við­tal­inu hafa sterkan grun um að vinur hans, „Sprelli“, hefði verið mis­not­aður af einum kenn­ara.

„Svo kom nýr kenn­ari og hann var töffari, hlust­aði á pönk og vissi um tón­list og svona. Og hann bauð Sprella inn í kenn­ara­í­búð­ina til sín til að drekka og hlusta á tón­list og spjalla. En svo vildi Sprelli aldrei tala um þetta og ég hugs­aði eftir á, af hverju býður kenn­ar­inn mér ekki? Ég veit miklu meira en Sprelli. Ég var afbrýði­samur út í Sprella, og mér fannst þessi kenn­ari vera í svo miklu rugli að hafa ekki boðið mér – ég drakk og vissi svo mikið um pönk. Það var ekki fyrr en ég skrif­aði niður sög­una hans Sprella, og ég er að verða fimm­tugur, sem ég fatt­aði – auð­vitað var verið að mis­nota hann inni í þess­ari kenn­ara­í­búð,“ er haft eftir Jóni í við­tal­inu.

Raunin er sú að á þessum tíma voru karl­kyns­kenn­arar ein­ungis um átta tals­ins og liggja þeir nú allir undir grun. Stundin hefur rætt við þrjá kenn­ara og sex nem­endur við skól­ann á þessum árum. Sjálfur hefur Jón ekki svarað.

Kenn­ar­arnir tala allir var­lega og vilja lesa bók Jón, Útlaginn, sem kemur út á næst­unni áður en þeir vilja tjá sig mikið efni­lega um málið. Þeir voru þó allir á sama máli um að Jón þurfi að svara fyrir orð sín. Flest skóla­systk­ini Jóns, sem Stundin hefur rætt við, segja upp­lifun sína af skól­anum allt aðra en Jóns. „Mér finnst þetta rosa­legt, því það er fullt af fólki sem getur ekki varið sig. Mér finnst þetta mjög ósmekk­legt hjá Jóni,“ segir eitt fyrrum skóla­systk­ini hans.

„Nú liggja allir undir grun“

Björn Hafberg
Björn Hafberg Var kenn­ari á Núpi í byrjun níunda ára­tug­ar­ins og er ósáttur við ásökun gegn ónafn­greindum kenn­ara um kyn­ferð­is­of­beldi.

Björn Hafberg er einn þeirra karl­kenn­ara sem kenndu við skól­ann á sínum yngri árum. Hann segir ásak­anir Jóns alvar­legar í sam­tali við Stundina.

„Okkur er eig­in­lega alveg óskilj­an­legt hvað hann er að gefa til kynna, hver þetta gæti verið sem liggur þarna undir grun. Nú eru allir undir grun þegar svona er gefið til kynna,“ segir Björn. Hann seg­ist vilja lesa bók­ina og von­ast hann til að í henni séu þessar ásak­anir betur skýrðar.

„Kannski er hægt að álykta eitt­hvað meira út frá bók­inni hvað hann er að gefa til kynna og hverja hann er að vísa til. Ég get ekki séð þennan kenn­ara sem hefur áhuga á pönki. Mér er það algjör­lega óskilj­an­legt hver það gæti verið. Þetta er rosa­lega ein­kenni­leg ályktun hjá Jóni. Það kom auð­vitað fyrir að nem­endur kæmu til kenn­ara til að leysa úr ein­hverjum málum og það var rosa­lega mikið návígi því við vorum með íbúð á end­ann á gang­inum. Það var ekk­ert úti­lokað að nem­endur kæmu inn til kenn­ara af ýmsum ástæðum. Það að ein­hver nem­andi kæmi inn til kenn­ara, að það þýði kyn­ferð­is­leg mis­notkun er ótrú­leg skýr­ing sem honum dettur til hugar þrjá­tíu árum síðar,“ segir Björn.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár