Mynd: Helga Helgadóttir

Hamingjan á Hólmavík

Það er ein­hver dulúð sem fylgir Stranda­mönnum. Heiða Helga­dóttir ljós­mynd­ari upp­lifði Ham­ingju­dag­ana á Hólmavík frá sjón­ar­horni aðkomu­manns­ins.

Jón Loftsson er 88 ára Hólm­vík­ingur sem er afskap­lega ánægður með Ham­ingju­daga, sem haldnir eru á Hólmavík á hverju ári. Brott­flutt börn hans og barna­börn koma árvisst á Ham­ingju­daga. Hann hafði nýlega lokið við að slá blett­inn heima hjá sér þegar við hittum hann.
Jón og kona hans Stefanía hafa verið saman í 63 ár og eiga nú 25 afkom­endur, börn, barna­börn og barna­barna­börn.

Hamingjusamasta kakan
Ham­ingju­samasta kakan Verðlaun veitt fyrir ham­ingju­söm­ustu kök­una. Ragnar Torfason heldur á kök­unni, Kristín Sigurrós Ein­ars­dóttir kynnir og Ingi­björg Bene­dikts­dóttir verk­efn­is­stjóri hátíð­ar­innar stendur hjá.

Bragginn gerður tilbúinn
Bragginn gerður til­bú­inn Kristján Jóhanns­son gerir „Braggann“ til­bú­inn fyrir tón­leika kvölds­ins. Gunnar Þórð­ar­són stillir hljóð­færin í bak­grunni.

Garðpartý
Garð­partý Garð­partý á Ham­ingju­dögum.

Fjöl­breytt dag­skrá var í gangi alla helg­ina. Sem dæmi má nefna kassa­bíl­arallý, trommunám­skeið, hoppukast­ala og tón­leika. Leik­hóp­ur­inn Lotta sýndi stór­kost­legt barna­leik­rit, Litlu gulu hæn­una, og svo var haldið ham­ingju­hlaup þar sem þátt­tak­endur hlupu 35 kíló­metra, en það var ekki keppni og komu því allir saman í mark. Að loknu ham­ingju­hlaupi buðu 

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár