Grímsey Eyjan er skorin af norður-heim­skauts­baug. Ferða­menn eru áhuga­samir um að koma þangað, en sam­göngur koma í veg fyrir umfangs­meiri ferða­mennsku.

Grímsey er of falleg til að leggjast í eyði

Kyn­ferð­is­brota­mál og ofur­skuld­setn­ing draga ekki kjarkinn úr íbúum í Grímsey. Hjalti Ómar Ágústs­son kenn­ari lýsir lausnum, lífs­gleði og bjart­sýni eyj­ar­skeggja.

Hjalti Ómar Ágústs­son kenn­ari flutti ásamt Sigrúnu Magn­ús­dóttur eig­in­konu og tveimur ungum börnum þeirra til Gríms­eyjar síð­ast­liðið haust. Í við­tali við Sigurð Bjarna­son, ibúa í Grímsey í síð­asta tölu­blaði Stund­ar­innar, stað­hæfði Sigurður að allir íbúar eyj­unnar, 73 tals­ins, vildu búa áfram í eynni. Hjalti tekur undir að það sé gott að búa í Grímsey.

Sigurður lýsti þó miklum áhyggjum af stöð­unni og kall­aði eftir annað hvort opin­beru átaki eyj­unni til bjargar eða sam­fé­lags­legri ábyrgð Íslands­banka. Útgerð­ar­fé­lögin þrjú í eynni dingla öll í snöru bank­ans vegna skuld­setn­ingar og hafa eyja­skeggjar neyðst til að velta vöngum yfir eigin örlögum ef sjó­sókn verður úr sög­unni.„Atvinnu­lífið byggir aug­ljós­lega að mestu á fisk­veiðum, annað hvort beint eða óbeint. Það byggir á vinnu í kringum veiddan afla og þjón­ustu við útgerðir. Svo er afleidd þjón­usta eins og verslun og skóli,“ segir Hjalti, spurður hvort byggð í eynni muni lifa af drastískar breyt­ingar í sjáv­ar­út­vegi.  

…

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár