Þórdís Inga­dóttir Formaður Félags áhuga­fólks um Downs-heil­kennið fær reglu­lega fyr­ir­spurnir frá erlendum fjöl­miðlum, vegna hárrar tíðni skim­ana fyrir Downs-heil­kenni hér á landi, sem á sér enga hlið­stæðu. Mynd: Heiða Helgadóttir

Fóstrum með Downs hvergi eins markvisst eytt og hér

Downs-heil­kennið er hvorki sjúk­dómur né van­sköpun, þrátt fyrir að vera sett undir þá skil­grein­ingu í lögum um fóst­ur­eyð­ingar. Þetta áréttar Þórdís Inga­dóttir, for­maður Félags áhuga­fólks um Downs-heil­kennið, sem segir að auk­innar umræðu sé þörf í sam­fé­lag­inu og á vett­vangi stjórn­mála um þá stað­reynd að nær öllum fóstrum sem grein­ast með Downs-heil­kenni sé eytt hér á landi.

Þórdís Inga­dóttir er lög­fræð­ingur og for­maður Félags áhuga­fólks um Downs-heil­kennið en hún er jafn­framt móðir sjö ára stúlku með Downs-heil­kennið. Sjálf var hún komin yfir fer­tugt þegar hún eign­að­ist hana. Líkt og flestar konur á Íslandi hafði hún farið í sam­hæft lík­inda­próf en ekk­ert kom út úr því sem benti til þess að auknar líkur væru á litn­inga­frá­viki hjá barn­inu sem hún bar undir belti. „Eins og margar aðrar konur var ég lítið að velta þessu fyrir mér.“

Eftir að hún varð móðir barns með Downs hefur hún hins vegar heldur betur velt hlut­unum fyrir sér, meðal annar sem for­maður félags­ins. Margt er varðar fram­kvæmd­ina á fóst­ur­skimun hefur komið henni mjög á óvart.

Óvenju mörg börn með Downs fædd í fyrra

Sex börn með Downs-heil­kenni fædd­ust hér á landi í fyrra en þau voru fjögur árið 2015. Það er tals­verð fjölgun frá síð­ustu árum en að jafn­aði hafa fæðst um tvö börn með Downs frá því að skipu­lögð skimun hófst árið 2000. Þórdís seg­ist vona að ein­hver barn­anna hafi fengið að fæð­ast vegna auk­innar umræðu, vand­aðri aðkomu heil­brigð­is­starfs­fólks og upp­lýst­ari ákvörð­unum for­eldra. Hins vegar sé of snemmt að segja til um hvort sú sé raunin, enda séu ekki enn aðgengi­legar tölur um það hversu margar af mæðr­unum sem gengu með þau börn vissu að þau væru með Downs-heil­kennið, né heldur hvort þær geng­ust undir lík­inda­prófið eða ekki.

Á und­an­förnum árum, allt frá alda­mótum, hefur hins vegar öllum fóstrum sem greinst hafa með Downs-heil­kenni verið eytt. Um 90% þung­aðra kvenna í Reykja­vík fara í sam­hæfða lík­inda­prófið. Ef það sýnir auknar líkur á litn­ing­ar­frá­viki gang­ast um 85 pró­sent undir legvatns­á­s­tungu, sem getur valdið fóst­ur­láti. Á und­an­förnum árum hefur öllum fóstrum sem fæst stað­fest að séu með Downs-heil­kennið verið eytt í kjöl­farið. Nýjustu töl­urnar sem til­tækar eru á vef Land­spít­al­ans eru frá árinu 2014. Þar sést að allar konur sem fengu stað­fest að þær gengju með barn með Downs-heil­kenni létu eyða fóstr­inu það ár en alls voru fóstrin 11. Á árinu 2013 greindust 15 fóstur með Downs-heil­kenni í kjöl­far skimunar, þeim var einnig öllum eytt.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Mest lesið undanfarið ár