„Ég þoli ekki óréttlæti“

Margir kann­ast vafa­lítið við nafn Hermanns Ragn­ars­sonar, vel­gjörð­ar­manns albönsku fjöl­skyld­unnar sem var vísað úr landi en fékk síðan rík­is­borg­ara­rétt. Mörgum brá í brún þegar fréttir bár­ust af því að tveimur lang­veikum börnum hefði verið vísað úr landi ásamt fjöl­skyldum og aftur til heima­lands­ins þar sem þau höfðu ekki aðgengi að við­eig­andi heil­brigð­is­þjón­ustu. Hermann, vinnu­veit­andi ann­arrar fjöl­skyld­unnar, tók málið í sínar hendur, barð­ist fyrir rík­is­borg­ara­rétti þeirra og stóð fyrir söfnun sem fjár­magn­aði meðal ann­ars flugið aftur heim til Íslands. Stundin varði degi með Hermanni Ragn­ars­syni og fékk að kynn­ast mann­inum á bak við góð­verkið.

„Ég þoli ekki óréttlæti“

Hermann var nýkom­inn úr Úlf­árs­dalnum þegar hann leit við á skrif­stofu Stund­ar­innar. Hann var þar að afhenda Kastriot og Xhuliu Pepaj lyklana að nýrri leigu­í­búð í hverf­inu, en íbúðin sem þau fengu fyrst á Braga­götu var ekki nógu hentug. Síðustu vikur hefur Hermann gefið sig allan að aðstoð­inni við albönsku fjöl­skyld­urnar tvær og hefur allt annað fengið að sitja á hak­anum. „Ég hef ekki gert neitt annað en þetta í rúman mánuð,“ segir Hermann, en hann rekur fyr­ir­tækið Meist­ara­múr ásamt félaga sínum. „Hann hefur séð um rekst­ur­inn á meðan, líkt og ég væri í fríi. Sem betur fer er þetta rólegur tími og flestir starfs­menn í verk­efni norður á Húsavík.“

Hermann kynnt­ist Kastriot í haust þegar sá síð­ar­nefndi kom og sótti um vinnu í fyr­ir­tæk­inu. „Hann sagð­ist geta gert allt og ef hann gæti það ekki þá myndi hann læra það á einum degi,“ segir Hermann. „Mér leist bara hel­víti vel á hann og sagði honum að mæta dag­inn eftir.“ Á þessum tíma­punkti hafði Hermann hins vegar ekki hug­mynd um að Kastriot væri hæl­is­leit­andi, en það átti fljót­lega eftir að kom­ast í ljós. 

Fyrstu kynnin

Pepaj fjöl­skyldan talar hvorki íslensku né ensku. Hermann seg­ist fyrst og fremst hafa átt í sam­skiptum við Kastriot í gegnum aðra erlenda starfs­menn en einnig með lát­bragði og sýni­kennslu. Kastriot mun hafa verið maður orða sinna og var fljótur að læra réttu hand­tökin. Þá segir Hermann það hafa verið áber­andi hvað hann var alltaf snyrti­legur til fara. Þegar Kastriot hafði unnið fyrir Hermann í tæpar tvær vikur fékk hann örlaga­ríkt sím­tal. Sjálfur tal­aði hann stutt­lega í sím­ann á móð­ur­mál­inu en gaf vinnu­veit­enda sínum sam­band. Maðurinn á hinni lín­unni sagði Hermanni að Kastriot þyrfti að vera kom­inn á fund niður á Útlend­inga­stofnun eftir tíu mín­útur. 

„Þá átt­aði ég mig fyrst á því að hann væri lík­lega hæl­is­leit­andi,“ segir 

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár