Þegar flestir fara af stað út í daginn eru margir löngu vaknaðir til að sinna hinum ýmsu störfum sem til þurfa til að halda borginni hreinni og gangandi. Á meðan margir sofa er málað yfir veggjakrot, glerbrot eru hreinsuð upp eftir nóttina, fólk sendist með vörur í verslanir og á hótel, enn aðrir grafa fyrir nýjum húsgrunnum og ferðamenn koma og fara. Ljósmyndari Stundarinnar mætti eldsnemma í bæinn einn morguninn til að upplifa miðborgina vakna.
Athugasemdir